Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986.
15
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Ekki skortir hryllingssögur af raunum þess fólks sem nú er að koma
sér upp þaki yfir höfuðið.
Okur í neðan-
jarðarhag-
kerfinu
Vei yður, hræsnarar
Guðjón Guðmundsson skrifar:
Þessi setning meistarans mikla
kemur manni oft í hug þegar maður
les um menn og máleftii í Morgun-
blaðinu. Það virðist á stundum, sem
þeim hermm er þar stýra pennum séu
engin takmörk sett í ósvífninni.
Hroðalegasta dæmið um þetta eru
frásagnir þeirra Mbl-manna af at-
burðunum fyrir botni Miðjarðar-
hafsins og málum tengd þeim á einn
eða annan hátt. Nú síðast af þeim
voðaverkum er framin voru á flug-
völlunum í Róm og Vín.nýlega. Risa-
fyrirsagnir og myndir og svo orða-
flaumurinn eftir því. Mbl-menn hafa
vart nógu sterk lýsingarorð yfir
þessa hroðalegu glæpamenn er
brytja niður saklaust fólk. Ekki er
verið að hafa fyrir því að skýra það
fyrir lesendum blaðsins hvers vegna
þessir Palestínumenn eru í stríði við
Israelsmenn.
Hverjir eru þessir Palestínumenn,
hvers vegna eru þeir dreifðir út um
heiminn? Hvar bjó þetta fólk áður?
Nei, þeir eru ekkert að hafa fyrir því
að svara þessu og álíka spurningum
þessir herrar. Við athæfi ísraels-
manna er auðvitað ekkert að athuga,
þeir eru bara að hefna sín þegar þeir
eru að brytja Palestinumennina nið-
ur í hundraðatali. Þannig er þeirra
athæfi afgreitt. Það er búið að fara
það hroðalega með palestínsku þjóð-
ina að það verður ævarandi blettur
á mannkyninu og þar bera Banda-
ríkjamenn stærsta sök, þar eð þeir
styðja Israela beint og óbeint á
hverju sem gengur og gera þeim
kleift að herja miskunnarlaust á
þetta fólk. Hafa ekki þeir sem búið
hafa við hernám ávallt reynt að berja
á kúgurum sínum? Voru það ekki
hetjur sem börðust við þýsku nasist-
ana á hernumdu svæðunum? Eru það
ekki hetjur sem nú berjast við rúss-
nesku kommúnistana og leppa þeirra
í Afganistan? Vitanlega, maður dáist
kúgurum enda þótt við algert ofurefli
sé að etja. Það er því ekkert annað
en viðbjóðsleg hræsni þegar þeir
Mbl-menn eru að fordæma Palest-
ínumenn fyrir grimmdarverk en rétt-
læta svo á sama tíma mörgum sinn-
um hryllilegri hluti. Fara verður allt
Við athæfi ísraelsmanna er auðvitað ekkert að athuga, þeir eru bara
að hefna sín.
að því fédæma hugrekki er þetta fólk
sýnir í verki.
Nákvæmlega sama er með Palest-
ínumennina, þeir berjast gegn sínum
aftur til þýsku nasistanna til að finna
hliðstæður, slík er útrýmingarstefna
ísraela í reynd gagnvart palestínsku
þjóðinni.
Páll Daníelsson skrifar:
Það hefur verið fremur hljótt um
Búseta upp á síðkastið. Það hefur
hins vegár ekki skort hryllingssögur
um raunir þess fólks sem nú er að
koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Ástandið er geigvænlegt og okur
grasserarí neðanjarðarhagkerfinu.
Skuldir kunningja míns hækkuðu
um 30.000 krónur um mánaðamótin.
Þó skuldar hann ekki „okrurum“.
Hins vegar skuldar hann lífeyrissjóði
o.fl. og áhöld um það hvað telst orðið
okur.
Látum vera þótt lífeyrissjóðslán
séu verðtryggð. Annað væri óeðli-
legt. En að krefjast allt að 5% vaxta
umfram verðtryggingu er okur. Það
er skiljanlegt að lífeyrissjóðirnir séu
í erfiðri aðstöðu núna eftir allar
gjafimar á umliðnum áratugum.
Kynslóðin, sem rændi foreldra sína
og veðsetti framtíð barnanna sinna,
lætur ekki deigan síga. Nú eru það
okurlán til þeirra sem eftir eiga að
byggja.
Ef þessir vesalingar, sem lúra á
lífeyrissjóðunum, drattast ekki til að
reikna út afturvirkar verðbætur hið
snarasta, með aðstoð tölvutækni, og
láta fólk greiða upp sín gömlu lán,
þá versnar ástandið svo mikið að
útilokað gæti orðið að útvega nægi-
legt fjármagn til húsbygginga sem
augljóslega þarf að stórauka á allra
næstu árum.
Það væri óskandi að tréhausar eins
og Halldór Blöndal, Þorsteinn Páls-
son o.fl. sæju sóma sinn í að hrinda
þessu í framkvæmd í stað þess að
streitast gegn fólkinu i Búseta - sem
hefur þó fundið hagkvæma leið til
lausnar húsnæðisvandanum.
Búseti hyggst reisa íbúðarhúsnæði
fyrir lánsfé frá hinu opinbera sem
félagarnir endurgreiða á löngum
tíma, í stað þess að stela helmingnum
með verðbólgu.
Byggingaverktakar gera tilboð í
framkvæmdirnar og samkeppnin
tryggir hagkvæmni í stað þess að
einstaklingarnir séu að berjast í
bökkum allt lífið (með félagslega
hroðalegum afleiðingum).
Fólk hefur tekið eftir hversu grun-
samlega hljótt er um stjórnarskrár-
frumvarpið á Alþingi. Auðvitað þora
þessi smámenni, sem þar hafa grafið
um sig, ekki fyrir sitt litla líf að
hreyfa við því enda fjórflokkurinn
að falli kominn. Sem betur fer eru
þó nokkrir þingmenn þama sem
virðast hugsa vitrænt.
Afturvirkar verðbætur inn í stjórn-
arskrárfrumvarpið og í gegn með
það. Kosningar í mars og þá kjósi
. fólk Bandalag jafnaðarmanna. Ekk-
ert nema ömggur meirihluti á Al-
þingi getur tryggt BJ svigrúm til að
hrinda í framkvæmd þeim breyting-
um sem þurfa að eiga sér stað.
Ég vil ekki trúa því að íslendingar
séu svo skyni skroppnir að þeir kjósi
áfram gömlu flokksdruslurnar sem
eru svo langt komnar með þessa þjóð
á kaf í skuldafenið, með áberandi
fávitalegum lagasetningum á síðast-
liðnum árum. Nú er komið að nýja
tímanum.
Toppþjónusta
Árdís skrifar:
Ég vil með þessum línum koma á
framfæri þakklæti til starfsfólks
verslunarinnar Sautján í Reykjavík
fyrir frábæra þjónustu.
Þannig er að ég bý á Akureyri og
skrapp í dagsferð til höfuðborgarinn-
ar fyrir nokkrum dögum. Þar keypti
ég mér dragt í versluninni Sautján
(17) eftir margar mátanir sem kost-
uðu starfsfólkið ótal snúninga. Af-
greiðsludömumar vom áberandi
liprar og líflegar.
Þegar heim var komið að kvöldi
dags reyndist jakkinn vera gallaður
svo að ég varð með einhverju móti
að fá gert við hann eða fá nýjan. Ég
hringdi í verslunina daginn eftir og
varð það úr að ég skyldi senda jakk-
ann til þeirra. Ég gerði það og tæpum
sólarhring seinna var ég búin að fá
nýjan jakka í hendumar.
Bestu þakkir fyrir toppþjónustu.
sBSaSSwSlBWfi
innritunardagur
erá
morgun. Æ
Barna-
dansar
THOMAS
STAUDT
Samkvæmis
dansar
kennir jazzballettog
discodansa. Stórkostlegur
dansari.
Þýskalandsmeistari
1984 og 1985
í diskódansi.
Freestyle
Einka
timar
Innritun daglega
í símum 20345,
74444 og 38126
kl. 13 til 18.
Kennsla
Keflavík Suðurnes
sími 8249