Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Page 1
■
t
t
I
I
í
t
í
I
i
I
t
I
i
i
i
I
i
í
i
i
i
i
i
i
i
t
i
DAGBLAÐIЗVlSIR
18. TBL. -76. og 12. ÁRG. - MIÐ'VIKUDAGUR 22. JANÚAR 1986.
NEYÐARÁSTAND VEGNA
ÓVEÐURS A HORNAFIRÐI
—vatnslaust og raf magnslaust á Höf n í gær og nótt
Neyðarástand hefur ríkt á Homa-
firði vegna veðurofsa sem þar var
í gær og fram á nótt. Bærinn var
vatns- og rafmagnslaus. Nágranna-
sveitimar eru enn rafmagnslausar
þar sem allar sveitalínumar nema
ein em niðri vegna snjóþunga. Það
er aðeins rafmagn á svæðinu kring-
um Nesjaskóla.
Vegna rafinagnsleysis varð
vatnslaust á Höfn í gær og kl. 19.30
í gærkvöldi fór rafmagnið af bæn-
um. „Rafmagnið var komið aftur á
bæinn rétt upp úr miðnætti og þá
kom vatnið einnig á. Við fengum
lánaða dísilrafstöð hjá Vegagerð-
inni, þannig að rafinagn kom á
línuna að vatnsbólinu. Þegar við
vorum að vinna í þessu þá datt
veður mjög óvænt niður og veðrið
er ágætt hér núna,“ sagði Tryggvi
Ámason, sveitarstjóri á Höfn, í
viðtali við DV í morgun.
Tryggvi sagði að snjóþyngslin
væm geysileg og ísing á rafinagns-
línum hefði orðið til þess að báðar
línumar til Hafiiar hefðu fallið
niður í gærkvöldi. Suðurlínan lá
algjörlega niðri þegar við fórum
með dísilstöðina að vatnsbólinu í
gærkvöldi. Við þurftum að fara
með stöðina undir línuna, upp við
mastur.
„Það em ekki aðeins rafinagns-
línur sem liggja niðri. Ljóst er að
miklar skemmdir hafa orðið á trjá-
gróðri. Mörg tré hafa brotnað nið-
ur vegna snjóþyngsla. Hér er miklu
meiri snjór heldur en við eigum að
venjast. Götur em ófærar. Það var
unnið að því í nótt að ryðja aðal-
götumar. Vegir til sveita em ill-
færir ef ekki ófærir," sagði Tryggvi.
„Það var ekki aðeins rafinagn og
vatn sem fór af. Símakerfið fór allt
úr sambandi þannig að erfitt var
að hringja og koma tilkynningum
á framfæri,“ sagði Tiyggvi.
Það hefur mikið snjóað á Aust-
fjörðum í nótt. Færð er slæm á
Neskaupstað og Seyðisfirði.
• Rafinagnið datt út um tíma á
Djúpavogi i nótt og rafmagnstrufl-
anir vom á Breiðdalsvík. Veð-
urspáin er þannig að það á að
ganga í n-austur í dag.
Það hefur einnig snjóað mikið á
Norðurlandi og var þungfært á
Akureyri í morgun.
• Á Vestfjörðum er mjög hvasst
og þar hefur verið skafrenningur.
Lögreglan á ísafirði fór mönnum
til hjálpar í Álftafirði í nótt þar sem
mennimir vom fastir í bíl.
-SOS
—sjá einnig bls. 2 og 32
Geir banka-
stjóri
1. september
Utanríkisráðherraskipti verða á
föstudagsmorguninn. Þá tekur Matt-
hías Á. Mathiesen við af Geir Hall-
grímssyni. í dag verður tilkynnt að
Geir taki við bankastjórastarfi af
Davíð Ólafssyni í Seðlabankanum
þann 1. september. Formleg ákvörð-
un verður tekin um að mæla með
Geir á bankaráðsfundi sem hefst
klukkan 15.30 en viðskiptaráðherra
skiparí stöðuna.
-HERB
„Alger
tilbún-
— segirtíeir
Hallgrímsson
um Þjódviljafrétt
„Fyrir þessu er ekki flugufótur og
mér er alveg óskiljanlegt, hvemig
blaðamönnum hefur dottið þetta í
hug,“ sagði Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra í morgun. í frétt Þjóð-
viljans segir að Geir hafi sótt um
Þessa dagana stendur yfir sameiginlegur leiðangur vatnamælingamanna frá Orkustofn-
un og Landsvirkjun. Þeir aka um miðhálendið á öflugum snjóbíl og mæla rennsli í ám
og stöðu grunnvatnsins. Þetta er þriðji veturinn sem þessar mælingar eru gerðar og
er farið tvisvar sinnum á vetri. Hver leiðangur stendur yfir í um 10 daga.
Þessi mynd var tekin af leiðangursmönnum þegar þeir voru að mæla rennslið í Blöndu
undir brúnni við Löngumýri. DV-mynd GVA.
ritarastöðu í höfuðstöðvum NATO
en verið hafnað af „frjálslyndum
ríkisstjórnum", sem talið hafi Geir
of hallan undir Bandaríkjastjóm.
Hjá Atlantshafsbandalaginu er
ekki nema ein staða sem til greina
kæmi að manna með fyrnærancli
forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra, staða aðalframkvæmdastjóra
eða aðalritara sé notuð bein þýðing
á enska starfsheitinu. „Staða Carr-
ingtons lávarðar er ekki laus og ég
endurtek að þessi Þjóðviljafrétt er
alger tilbúningur og á sér hvorki flís
né fjöður í veruleikanum," sagði
Geir.
-HERB
Úrleðjunni I tillífsins j — sjáSviðsljós áMs.37 ■ Veðsetturlax -sjáMs.3 Stjómar- : formaður Hafskipsveitír vinnumiðlun i fórstððu — sjábls.11 | Þrettánára | skákmeistarí l — sjá Viðtalið 1 ábls. 11 ; Útborgun lækki íGQprósent — sjábls.2 |;
4 ^ ” '
Avaxtakúr
— sjá Neytendur
ábls.6og7
Kaffiáuglýs-
ingarílandi
tedrykkju
—sjáMs.10