Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986.
11
Aflimífyira
Heildarafli desembermánaðar
var rúm 176 þúsund tonn sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Fiski-
félags íslands. Af þessu eru rúm
142 þúsund tonn af loðnu og rúm
16 þúsund tonn af þorski.
Þorskafli síðasta árs er rúm 314
þúsund tonn og annar botnfiskur
var yfir 266 þúsund tonn. Síldar-
aflinn var tæp 50 þúsund tonn
og loðnan rúm 992 þúsund tonn.
Ársaflinn af rækju var rúmt 21
þúsund tonn og hörpudiski rúm
15 þ.t. og humri rúm 2 þ.t.
Mestu magni af þorski var lan-
dað á Norðurlandi á síðasta ári
eða tæpum 75 þúsund tonnum.
Austfirðir eiga vinninginn með
mestan loðnu- og síldarafla.
Heildarársafli landsmanna er
1.652.851 þúsund tonn, árið 1984
var heildaraflinn rúm ein og hálf
milljón tonn. -ÞG
„Draumar
áhvolfi”
— verðlaunaverk
Kristín Ómarsdóttir hlaut
fyrstu verðlaun í leikritasam-
keppni Þjóðleikhússins sem efnt
var til á sl. ári. Elísabet K. Jök-
ulsdóttir og Kristin Bjamadóttir
hlutu önnur og þriðju verðlaun.
Samkeppnin var í tileftii af lok-
um kvennaáratugarins meðal
kvenna um gerð einþáttunga
fyrir leiksvið. Fyrstu verðlaun
era fimmtíu þúsund krónur.
Einþáttungur Kristinar ómars-
dóttur heitir „Draumar á hvolfi“.
Kristin er við nám í Kaupmanna-
hafnarháskóla og nemur þar
spönsku. -ÞG
Nýjung
hjáSjóvá
Sjóvá býður nú viðskiptavinum
sínum nýjung í vátryggingum.
Er það svokölluð atvinnurekstr-
artrygging Sjóvá. Er það alhliða
vátrygging fyrir atvinnurekstur.
AR-tryggingin, eins og hún er
kölluð, er sniðin að þörfúm fyrir-
tækja á einfaldan og hagkvæman
hátt, þannig að jafnframt yfir-
gripsmikilli vemd veitir þessi
vátrygging atvinnurekandanum
yfirsýn yfir öll vátryggingamál
fyrirtækisins. Er ráðgjöf innifal-
in í tryggingunni, þegar þess er
óskað, auk þess sem fulltrúar frá
Sjóvá koma reglulega í heimsókn
í þau fyrirtæki sem AR-trygging-
ar njóta, ræða við forráðamenn
þeirra, fara yfir vátryggingamál-
in meðþeim og kanna breytingar
sem kunna að hafa orðið á vá-
tryggingaþörf fyrirtækjanna.
KÞ
Hafskipsmenn
með
atvinnumiölun
Hafskipsmenn opna atvinnu-
miðlun fyrir fyrrum starfsmenn
fyrirtækisins á föstudag. Veitir
Ragnar Kjartansson, fyrrum
stjórnarformaður Hafskips, miðl-
uninni forstöðu.
„Það eru komnjr um 60 manns
á skrá hjó okkur," sagði Ragnar.
,,Er það um fjórðungur þeirra
starfemanna sem unnu hjá fyrir-
tækinu hér heima. Við höfum
verið að senda bréf til allra frá-
farandi starfsmanna til að kynna
þetta og biðja þó um að vera í
sambandi við okkur. Þó hefur
fráfarandi stjórn ritað bréf til
fyrram viðskiptavina okkar og
sagt þeim frá þessu."
Ragnar sagði að af þeim 240
manns, sem unnu hjá fyrirtæk-
inu, væri stór hópur þegar búinn
að ráðstafa sér, auk þess sem
nokkrir ynnu þar ennþá við að
ganga frá ýmsum málum.
Eins og fyrr segir tekur at-
vinnumiðlunin til starfa á föstu-
'dagsmorgun. Hún verður opin
virka daga milli klukkan 9 og 17.
Atvinnumiðlunin er til húsa í
Síðumúla 33. • KÞ
Viðtalið
Hannes Hlífar, þrettán ára skákmeistarí:
„Skákin á sér alþjóðlegt tungumár
Þótt Hannes Hlífar Stefánsson sé
aðeins 13 ára.hefur hann orðið Norð-
urlandameistari 3 sinnum, unglinga-
skákmeistari Reykjavíkur 1985 og
nú er hann efstur í opna flokknum á
Skáþingi Reykjavíkur með 6 vinn-
inga.
En skákafrek Hannesar eru ekki
upptalin, hann hefur fengið svo
marga verðlaunapeninga að hann er
bókstaflega að drakkna.
„Þegar ég var 7 eða 8 ára byijaði
ég í Taflfélagi Reykjavíkur. Ég fékk
strax mikinn áhuga og hef verið mjög
iðinn við skákborðið. Ég byrjaði að
koma á laugardagsæfingar, síðan
þriðjudagsæfingar. Ég æfi mig nokk-
uð vel og ég stefni að því að taka
þátt í Reykjavíkurskákmótinu. Það
er ekki víst að ég fái það, ég ætla
að reyna. Og þótt ég tapaði öllum
skákum þar þá mundi ég ekki gefast
upp,“ sagði Hannes.
Hannes er í 7. bekk í Hagaskóla:
líkar vel en é ekkert uppáhaldsnáms-
efni. „Maður getur ekki bæði haldið
og sleppt. Skákin krefst mikils tíma.
Þó er ekki gott að stunda hana
næstum eingöngu. Maður verður
líka að stunda líkamsrækt, sund eða
eitthvað. Ég geri það að vísu ekki;
kannski seinna. Menn geta farið illa
á því einangra sig í skákinni, t.d.
eins og Fischer."
í herbergi Hannesar stendur skák-
borðið í öndvegi, skókbækur liggja í
öllum skúffum og skópum. „Ég hef
lesið mjög mikið af skákbókum.“ -
Getur þú lesið skákbækur á öllum
tungumálum? „Skákin á sitt tungu-
Skákborðið í öndvegi og verðlaunagripir í bunkum hjá Hannesi Hlífari Stefánssyni sem er einn af efnileg-
ustu skákmönnum ungu kynslóðarinnar. DV-mynd KAE
mál sem er alþjóðlegt. Ég fylgi leikj-
unum eftir, það er allur galdurinn.11
- Hver er þinn uppáhaldsskákmað-
ur?
„Kasparov heimsmeistari, hann
teflir svo vel og svo hvasst," sagði
Hannes Hlífar Stefánsson.
-KB
REDHEAD
A-10 naglabyssa frá Red Head.
10 skota magasín, í þrem skota-styrkleikum.
Naglar, frá 1/2" til 3" lengdir. ________
m
No. B 888,p42 |n the U.K.
Múrboltar og
hulstur í flestum
stærdum og lengdum.
rsteinsson
&ionnsonhf
ÁRMÚLI 1 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-685533