Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986 13 Menn eru að óskapast yfir því þessa dagana að fólk lendir æ ofan í æ fyrir bílum í Lækjargötunni fyrir neðan MR. Það gildir auðvit- að einu þangað til einhver eða einhverjir láta lífið. Þá verður eflaust hlaupið upp til handa og fóta og „eitthvað gert í málinu“. Beinast liggur við að álykta að borgaryfirvöld láti malbika hressi- lega bungu þvert yfir götuna. Slík íjallvegagerð sýnist nú vera helsta von ráðamann á umferðarmálum, sem hafa fyrir löngu gefið upp öll eðlileg úrræði til þess að greiða götu fólks í þéttbýlisumferðinni. Rausnarleg óregla Umferðarmál eru meðal þeirra mörgu mála sem ráðamenn, eins og aðrir menn, hafa áhyggjur af. En jafnframt eitt þeirra mála sem ýmist danka í kerfinu eða er slegið á frest með úttektum og skýrslu- gerðum. Af og til birtast hrikalegar tölur um slys og óhöpp í umferðinni hér á landi sem kosta ekki aðeins hundruð milljóna króna á ári í peningum heldur líf og örkruml fjölda fólks. Raunar er uppi stór- vægilegur ágreiningur um allan þennan hrikaleik þar sem feiknin öll ber á milli í opinberum og óop- inberum athugunum. Það fæst ekki einu sinni botn í þetta. Persónulega hef ég lesið tvo ör- lagavalda út úr skýrslum og af vettvangi, sem þátttakandi í um- ferðinni, og sem ég met banabita. Annars vegar stendur sú fullyrð- ing að af 175.000 ökuleyfishöfum séu 20-30% vanhæfir eða óhæfir ökumenn. Með öðrum orðum að svona 45.000 ökumenn ættu ekki að stjórna ökutækjum nema þá að þeir hefðu staðist nýtt hæfnispróf eftir endurhæfingu. Á þessu máli er ekki tekið þótt ótal greiðfærar leiðir séu fyrir hendi til þess að kippa þama í liðinn. Hins vegar blasir það við að í þéttbýlinu, þar sem umferðin er þyngst og hættulegust, á höfuð- borgarsvæðinu, ríkir svo rausnar- leg óregla í útbúnaði umferðaræða að slík sérviska hlýtur að vera einstæð í hinum svokallaða menn- Hryllingur ingarheimi. Þetta á eins við annars staðar í þéttbýli hér á landi, en kemur ekki eins að sök þar og á höfuðborgarsvæðinu vegna léttari umferðar. Heljarslóðir Gangbrautin á Lækjargötu í Reykjavík er dæmigerð slysagildra. Merking gangbrautarinnar var horfin, nema skiltin, sem standa nú í sólarhæð. Þau em auk þess þétt við gangbrautina. Aðdragandi fyrir ökumenn er því enginn og hefur aldrei verið. I alvöruumferð væri þessi gangbraut rækilega merkt varúðarsvæði með minnst 50 metra aðdraganda. Sannleikurinn er sá að gang- brautir í Reykjavík og yfirleitt hér á landi em gerðar af algeru handa- hófi, samræmi er ekkert og við- haldið nákvæmlega ekki neitt. Kjallarinn HERBERT GUÐMUNDSSON BLAÐAMAÐUR Sömu sögu er að segja af gang- brautum með ljósum. Ljósin em mislangt frá brautunum og merk- ingar alltaf litlar og oftast engar og aldrei samræmi milli neinna tveggja brauta. Þetta allt er svo sem nógu rauna- legt. Ekki batnar þó ástandið þegar lagt er mat á sjálfar akbrautimar. Þótt víðfömll sé um höfuðborgar- svæðið kannast ég ekki við eina einustu akbraut sem núna er rétti- lega merkt í akgreinar og með ökutækjum, sem er nærri fjórða hver bifreið í landinu. Úrbætur í þeim efnum, sem ég hef gert að umtalsefni, kosta pen- inga sem em ekki einu sinni hé- gómi á við þá hrottalegu sóun sem stunduð er. Og hugsum okkur. í hverju slysi, hverju óhappi, er leitaður uppi sökudólgur, oft með fyrirhöfn fjölda löggæslu- og trygginga- manna. En enginn ber ábyrgð á heimsku eða vanrækslu stjóm- valda. Rétt eins og Steingrímur, Davíð og allir hinir séu friðhelgir með sín axarsköft. Hins vegar bæri Steingrímur sök á því ef ég háls- bryti mig á glærasvelli framan við heimili hans á Amarnesi. Þar er hann persóna en ekki stjómvald. ,,En enginn ber ábyrgð á heimsku og ^ vanrækslu stjórnvalda. Rétt eins og Steingrímur, Davíð og allir hinir séu frið- helgir með sín axarsköft.“ „Gangbrautin á Lækjargötu í Reykjavík er dæmigerð slysagildra. vegvísum, hvað þá með meira en æskilegum, máluðum aðdraganda að gatnamótum eða öðrum, sér- stökum varúðarsvæðum. Það litla af þessu tagi, sem þekkist hér á landi, er flokkað undir sumarvinnu unglinga og þykir greinilega ekki hafa aðra þýðingu. Þetta er sýnd- armennska og lýsir alveg ótrúlega brengluðu mati ráðamanna á um- ferðarmálum. Morðstefna Ég hika ekki við að kalla það klára morðstefnu þegar umferðar- yfirvöld ríkis og sveitarfélaga hleypa tugþúsundum ökuníðinga lausum og hundsa svo gersamlega framkvæmd á skipulagi umferðar- kerfisins og raun ber vitni. Eða hver er skýringin á því að umferð á íslandi, sem ætti að vera i örugg- ara lagi, tekur tugi manns árlega, ýmist yfir móðuna miklu eða raðar þeim á bekki örkumla fólks, slasar hátt í þúsund manns og veldur meira eða minna tjóni á 25.000 Ólán þjóðarinnar Þótt ég óski hvorki Steingrími né Davíð þess að lenda fyrir bíl i Lækjargötunni get ég ekki dregið aðra ályktun af sinnuleysi þeirra og annarra ráðamanna en þá að þeir verði að reka sig á. Þetta hefur verið eina, gilda ákallið -að menn reki sig á. Af ókunnum ástæðum eru íslenskir ráðamenn ekki fram- sýnni en þetta. Ekki ennþá að minnsta kosti. íslenska þjóðin virðist vera ein- staklega óheppin með ráðamenn, frá sjónarmiði þeirra sem vilja komast lifandi og ómeiddir úr umferðinni. Það er ef til vill ólánið, þrátt fyrir allt, að þessum ráða- mönnum er ekið af þaulreyndum ökumönnum í eins konar bryn- drekum um vegi, götur og torg. Allavega ferðast íslenskir stórpól- itíkusar um kor.tóra sína og sam- kundusali meðvitundarlausir um óöldina i umferðarmálum þjóðar- innar. Herbert Guðmundsson. Batnandi þjóð er best að lifa Gott ár í efnahagslegu tilliti er liðið í aldanna skaut og allar líkur eru á því að enn betra ár í því tilliti fyrir íslensku þjóðina sé að heilsa. Metafli barst á land og aldrei fyrr höfum við íslendingar flutt út önnur eins verðmæti og á síðasta ári. Að vísu gekk eitthvað á út- flutningsbirgðir en á hinn bóginn er alltaf gleðilegt þegar vara selst. Fáum þjóðum fremur en okkur ætti að vera kunnugra um það að betri er einn fugl á hendi en tveir í skógi í útflutningsmálum. Svo oft höfum við brennt okkur á óseljan- legri framleiðslu eða brunnið inni með vörur sem lentu í verðfalli. Skreiðin óseld Ennþá sitjum við uppi með tveggja milljarða skreiðarbirgðir af framleiðslu fyrri ára og sjá allir hversu gott það væri fyrir fjárhag þjóðarinnar ef einhver sala fengist á þeim útflutningsbirgðum. Afsal fyrir Kröflu Önnur afurð, sem við íslendingar eigum meira en nóg af, er raf- magnið. Ekki þarf að fjölyrða um það að við eigum nú nánast einni vatnsaflsvirkjun of mikið og streymir afurð hennar sífellt út á ódáinsakur íslenskrar efnahags- stjómunar. Auk hennar gáfu stjómvöld þjóðinni nýlega endan- legt afsal fyrir Kröflu upp á tvo milljarða, án þess að króna fengist upp í kostnað. Landsvirkjun fékk svo hálfan annan milljarð af ævin- týrinu til þess að ráðskast með, svona sem aukagetu til að gleðja landsmenn með í raforkuverði. Var þó búið að efna ágætlega í þann glaðning fyrir. Byggjum líka Blönduvlrkjun Svo erum við líka að byggja Blönduvirkjun þótt allir hafi eigin- lega verið á móti henni en þó kratar og Höllustaðabóndinn mest. Guðlaugsstaðakyninu til óham- ingju ráða þó kratar ekki landinu en það er huggun harmi gegn að frændinn, Hannes Hólmsteinn, er orðinn doktor í frjálshyggjunni, Hayek og Disraeli samanlagt, auk þess sem frænka hans fékk það staðfest úti í London um daginn að hún er fegursta kona heims. Eflum íslenskan iðnað Gáfaðir og fallegir, - ekkert stoð- ar þó landann f baráttunni við rafvæðinguna, enda nálgast raf- magnsverð hér á landi næstum að vera tvöfalt dýrara en annars stað- ar í hinum siðmenntaða heimi, - einhvem veginn verður að borga alla þessa framkvæmdagleði. Hitt er svo reyndar verra ef okkur tekst að drepa niður íslenskan iðnað með því að dengja raforkuverði óbyggðastefnunnar á almenna raforkutaxta. Hætt er við að stutt yrði í atvinnuleysið ef almennur iðnaður drægist saman. Alþjóðavextir lækka „Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott,“ stendur þar og nú berast fréttir af því að vextir á alþjóðamarkaði fari lækkandi og sú þróun geti orðið eitthvað við- varandi. Víkingaþjóðin í norðri L'PW'M'............"...... getur því ennþá slegið „valútu“ í framkvæmdir, sem hún hefur ekk- ert við að gera, af því að það er þó ódýrara en áður að stunda slátt- inn. Vissulega er samt fagnaðarefni að alþjóðavextir fari lækkandi. Nú er bara að skuldbreyta og gera lánin ódýrari. Rafmagn til Reyðarfjarðar Ódýrari lán þýðir einnig lægri fjármagnskostnað á virkjunar- framkvæmdunum og hin frægu 18 „mills“ viðmiðunarverð á rafinagni lækkar því eitthvað. Þeim mun meiri von að takist nú að selja eitthvað af þessu rafinagni þótt lítið heyrist frá viðræðum vinar litla mannsins, iðnaðrráðherrans, við Rússa og Kínverja. Aftur á móti virðist nú sem breska ljónið ætli að bjarga okkur með Reyðar- fjarðarverksmiðjuna og fæst þá vonandi einhver afsetning á öllu þessu blessaða rafinagni. Að vísu fylgir fréttinni að hund- urinn frá hringtengingunni niður í fjörðinn sé svo dýr að hann éti upp allan ábatann af raforkusöl- unni fyrsta árið en auðvitað kemur ár eftir þetta. Hagvöxtur þrátt fyrir skuldir Þá hafa þau undur og stórmerki gerst á alþjóðasviðinu að skuldug- asta ríki veraldar, Brasilía, sem skuldar hvorki meira né minna en hundrað milljarða dollara, var með Kjallarinn GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON HAGFRÆÐINGUR 7% - sjö af hundraði - hagvöxt á síðasta ári og var það met. Þetta sýnir, þótt það sanni auðvitað ekki neitt, að skuldug ríki geta þrátt fyrir allt stækkað kökuna og þann- ig unnið sig út úr erfiðleikunum. Lækkun vaxta á heimsmarkaði hjálpar einnig greinilega þessum skuldugu þróunarríkjum, sem á hinn bóginn eykur von um það að þau nái sér á strik sé réttum fjár- mála- og peningaaðgerðum beitt heimafyrir samfara hagstæðari alþjóða forsendum. Á móti þeim vinnur lækkað hrávöruverð á heimsmarkaði undanfarið sem auðvitað bitnar hart á hlutfallslega mikilli frumframleiðslu þróunar- ríkjanna. Þá er bara að nota lánin í hátækniiðnað og sérstaklega í bætta menntun þegnanna sem endanlega virðist í mörgum tilvik- um langbesta fjárfesting sem þjóð- irnar geta lagt í. Dollarinn og heildareftirspurn Séu svona möguleikar á því að fleyta þróunarríkjunum yfir erfið- asta hjallann í þeirri lánakreppu sem hár dollari og háir alþjóða- vextir hafa skapað þeim, ásamt með enn frekari skynsamlegri nið- urfærslu Bandaríkjanna á dollar- anum til þess að minnka hinn gíf- urlega viðskiptahalla án þess þó að heildareftirspurn í veröldinni bíði tjón af sem óneitanlega hefur skapað heimsbyggðinni mikla vel- sæld þá ættu flestar þjóðir heims að geta horft bjartsýnar fram á nýtt ár. Verum skynsöm Víkingaþjóðin í norðri með öll sín utanríkisviðskipti fær örugg- lega sinn góða skerf af heimsvið- skiptunum í þjóðarkökuna sína. Þrátt fyrir óselda skreið og raf- væðingu út um allar trissur þá er svo margt annað sem styður við bakið á henni að hún virðist geta verið ánægð með horfumar á nýju ári. Sjómannastéttin undursam- lega dregur mest en blómlegur iðnaður og ferðamennska ásamt margskonar annarri framleiðslu, þjónustu og verslun færir einnig björg í bú. Vonandi að ráðamenn þjóðarinn- ar klúðri ekki samningum við launþega á árinu, að útflutnings- markaðimir haldi og svo væri auðvitað mjög snjallt ef eitthvað af öllum þessum raforkufram- kvæmdum tækju stritið af þjóðinni í stað þess að hneppa hana í skuldabagga. Guðlaugur Tryggvi Karlsson. a „Hitt er svo reyndar verra ef okkur ™ tekst að drepa niður íslenskan iðnað með því að dengja raforkuverði óbyggða- stefnunnar á almenna raforkutaxta.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.