Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Side 40
68*78*58 Hafix þú ábendiugu eda vitn- eskjn un firétt - hringdu þá i sixna 687858, Fyrir hvert íréttaskot, sem birtist eða er notaö i DV, greiðast 1.000 krónnr. Fyrir besta fréttaskotíð i hverri viku gxeiöast 3.000 krónnr. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við töknm við fréttaskotum alian sólaxhringiz&n. MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1986. r;> íslendingar fluttir f rá S-Jemen ídag Níu íslendingar eru í borginni Mukalla í S-Jemen. Þeir eru undir verndarvæng Breta þar. í dag var búist við að þeir yrðu fluttir frá S-«Jemen til Djibouti. Þangað verða íslendingarnir og Danimir líklega sóttir og fluttir með danskri leiguvél til Kaupmannahafaar. Um 600 út- lendingar voru eftir í S-Jemen síðast þegar fréttist, þar af 250 í Mukalla. —'-Talið var ráðlegt vegna ástandsins í landinu að flytja þá alla á brott. Sigfás Thorarensen verkfræðingur hefur starfað á vegum danska fyrir- tækisins Phil & Sön í ein fjögur ár í S-Jemen. 1 gær náðist samband við hann og var allt gott að frétta af Islendingunum sem öðrum sem eru i vinnubúðum danska fyrirtækisins í Mukalla. íslendingamir sem hafa verið í S-Jemen em, auk Sigfúsar, eiginkona hans, Hjördís Þorsteins- dóttir, Stefán Hallgrímsson, Jómnn ^Bernódusdóttir, kona hans, og eitt bam þeirra. Aðrir em Sigfús Þormar, Bjarki Laxdal, Guðmundur Gunn- arsson og Ólafur Gröndal. -ÞG Bryndís íprófkjör Sjö einstaklingar gefa kost á sér í prófkjör Alþýðuflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna í vor, að sögn Björgvins Guðmundssonar, formanns fulltrúaráðs Alþýðuflokks- félaganna í Reykjavík. Framboðs- frestur rann út á miðnætti. 4í í fyrsta sæti: Sigurður E. Guð- mundsson og Bjarni P. Magnússon. í annað sæti: Bryndís Schram og Jón Baldur Lorange. í fyrsta og annað sæti: Skjöldur Þorgrímsson, Viðar Scheving og Örn Karlsson. Tillaga liggur fyrir um að prófkjö- rið verði helgina 8. og 9. febrúar. -KMU HEIMSKERFI TIL HEIMANOTA LOKV Albert fer nú ekkl aö gef- ast upp I lelkhlélnu! Særún M. á Blönduósi krefur Fiskveiðasjóð skýrínp á sölunni á Help S: EKKIRÆTTVIÐ u kcTR inn a mv> a Fiskveiðasjóður seldi Helga S. ekki hæstbjóðanda. Særún hf. á Blönduósi bauð 2,6 milljónum króna hærra í skipið en sá aðili sem fékkþað. Fiskiskipið var selt Samherja hf. á Akureyri fyrir 68 milljónir króna á gamlársdag. Særún hf. bauð 70,6 milljónir króna í skipið. Við það fyrirtæki var ekki rætt um hugsan- legkaup. Að sögn Kára Snorrasonar, fram- kvæmdastjóra Særúnar, hringdi Már Elísson, forstjóri Fiskveiða- sjóðs, til hans að loknum útboðs- fresti til að fó nokkrar skýringar á tilboði Særúnar hf. Kári kveðst hafa gefið umbeðnar skýringar og sagt forstjóranum að tilboðið væri byggt ó almennum lánareglum Fiskveiðasjóðs. Blönduósbúar fréttu næst á gamlórsdag úr útvarpinu að stjóm Fiskveiðasjóðs hefði selt Samherja hf. skipið. Særún hf. hefur skrifað stjóm Fiskveiðasjóðs tvö bréf, þann 2. janúar og 13. janúar, og krafist fullra skýringa ó ákvörðun stjóm- ar Fiskveiðasjóðs. í bréfi Særúnar hf. segir: „Okkur var aldrei gefið tækifæri til að ræða um greiðslutryggingar eða hugsanleg kaup okkar á skip- inu við stjóm Fiskveiðasjóðs. Við óskum fullra skýringa á þeirri staðhæfingu sjóðsstjómar- innar að tilboð Samherja hf. hafi verið hagstæðast að teknu tilliti til greiðslutíma og greiðslutrygginga. Stjóm Fiskveiðasjóðs er með opinbem útboði sínu á vs. Helga S. og öðrum skipum sjóðsins og sölu þeirra til bjóðenda að ráðstafa almannafé. Teljum við að stjóm sjóðsins beri skylda til að gera falla grein fyrir róðstöfanum sínum bæði gagnvart einstökum bjóðend- um sem og hverjum þeim skatt- greiðanda í landinu sem þess óskar.“ Særún hf. rekur rækju- og skel- fiskvinnslu ó Blönduósi. Fyrirtæk- ið gerir út þrjá báta. Sá stærsti er 165 lestir en hinir em 65 og 30 lestiraðstærð. Fyrirtækið er í eigu eínstaklinga á Blönduósi og í Reykjavík. Stærstu hluthafar em Kári Snorra- son og Óttar Y ngvason. -KMU/Rannveig Sigurðardótt- ir, Blönduósi. BilddPBUngftr le þefrrg reyndist a inn filboð sitt í tpgarann Sölva Bjarnason skömmn fyrfr klukkan 16 j gær, Tilkoð hæsta. DV-mynd; GVAr Bíldudalur ogHöfn buöubest Fyrirsjáanlegt er að Gmndfirð- ingar fá togarann sinn ekki til baka. Tilboð hlutafélags Grund- firðinga er það fimmta í röðinni af þeim sem bámst í Sigurfara II. Fjórir einstaklingar á Höfn í Homafirði buðu hæst, 190 milljónir króna. Gmndfirðingar buðu 168,3 milljónir króna. Bílddælingar buðu hins vegar best í togarann Sölva Bjamason, sem síðast var gerður út fró Bíldu- dal með leigusamningi við Tálkn- firðinga. Útgerðarfélag Bílddæl- inga bauð 150,5 milljónir króna. Næsthæsta tilboð í Sölva Bjama- son kom frá Bjarna Andréssyni ó Tálknafirði, 147,1 milljón króna. Bjami átti áður helminginn í skip- imh =KMy Kjötinnflutnðngurinn: SEINNIHALF- LEIKUR EFTIR? „Ég veit ekki hvort þetta mól er úr sögunni en eins og ég hef þegar bent.á heyra þessi mál ekki undir mitt ráðuneyti lengur. En það er della í Morgunblaðinu að segja að þessi innflutningur heyri ekki undir fjármólaráðuneytið. Hann fellur undir tollalög og þar af leið- andi er hann inni ó verksviði fjár- málaráðuneytisins. Ég reikna þó ekki með því að ég hafi meiri af- skipti af þessu máli,“ sagði Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra í viðtali við DV í morgun. Hann var minntur ó fallyrðingar sínar um að Alþingi hefði afsalað sér Keflavíkurflugvelli í hendur Bandaríkjanna. „Þessu fallyrðing er utan við kjötmálið. Við veröum að gæta að því að fólk ó fimmtugsaldri hefar ekki þekkt landið nema undir her- setu. Við verðum að vera vel vak- andi ef vera hersins getur skapað 8ér hefðir sem geta verið íslenskum lögum yfirsterkari," sagði Albert. - Varst þú kveðinn í kútinn í þessumóli.? „Nei. í mínu uppeldi hafa alltaf veriö tveir hálfleikir. Fyrri hólf- leikurinn er spilaður og síðan er það á valdi dómarans að ákveða hversu langa hvíld leikmennimir fá,“ sagði Albert og gaf í skyn að seinni hólfleikur þessa máls væri óleikinn. Hann bætti því við að hann hefði ekki verið beittur þrýst- ingi í þessu máli. Hann og Þor- steinn Pálsson fjórmólaráðherra hefðu lítillega vikið að þessum mólum á fandi í gær og rætt þau sem tveir vinir. „Enda hefur aldrei verið neinn ógreiningur ó milli okkar Þorsteins." -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.