Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Qupperneq 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Athuga
„fíngraför”
físktegunda
KANADÍSKUR
Fyrsta árið
í söftum sjó
Annaðáríð
ísöltumsjó
Fyrstaárið
í ferskvatni
Byrjunhreistur-
myndunar
SAMANBURÐUR Á HREISTRIKYRRAHAFSLAXINS
Bandaríska vikuritið Newsweek
íjallar í nýjasta hefti sínu um banda-
ríska tækninýjung er gerir mönnum
kleift að rannsaka lífsferil mismun-
andi fisktegunda með athugunum á
hreistri á áður óþekktan hátt.
Er rannsóknum á hreistrinu líkt
við fingrafaraathuganir þar sem
varpa má ljósi á ýmislegt í fortíð
fisksins, á hvaða hafsvæði var
hrygnt og hvar uppeldisstöðvamar
eru.
Breytilegt hreistur
Slíkt má ákvarða með athugunum
á margbreytilegu mynstri fiskhreist-
ursins. Fiskhreistrið er það marg-
breytilegt í eðli sínu að með rann-
sókn á því geta visindamenn, með
nokkurri nákvæmni, sagt fyrir um
hrygningar- og uppeldisstöðvar.
Hér tengjast einfaldar staðreyndir
úr fiskifræðinni lögum og reglugerð-
um hafréttarins er kveða á um rétt
þjóða yfir fiskistofhum sem hrygna
og alast upp innan hafevæða við-
komandi ríkja en aftur á móti engan
rétt þeirra á þeim fiskistofnum er
færa sig á hafsvæðið á síðari tímum.
Sjávarlíffræðingar hafa nú um
nokkurt skeið rannsakað fiskhreist-
ursmynstrið. Fram að þessu hefur
vinna sjávarlíffræðinganna við smá-
sjársýnarannsóknir fiskhreisturs,
sem er óteljandi, verið talin of viða-
mikil og því ekki hafa leitt af sér
neina raunhæfa niðurstöðu. Á næstu
vikum er búist við örri þróun i rann-
sóknum á fiskhreistri.
Greiningartæki fyrir laxfiska
Bandaríska fyrirtækið BioSonics í
Seattle í Washingtoniylki hefúr
framleitt tölvuvætt hreistursgrein-
ingartæki er einfaldar alla rann-
sóknarvinnu og flýtir fyrir marktæk-
um niðurstöðum. Hyggst fyrirtækið
markaðssetja greiningartæki fyrir
laxfiska í mars næstkomandi.
Rannsókn á fiskhreistri á margt
sameiginlegt með athugunum á
árhringum trjáviðar. Á hveiju ári
safnast upp á milli 10 og 30 hring-
bogar á hreistri fisksins. Ummál
hringboganna, lögun og breidd gefur
ekki aðeins til kynna aldur fisksins
heldur segir ýmislegt um sögu hans,
eða lífeferil.
Mjóir hringbogar breyta um lögun
ef fiskurinn heldur sig á hafevæðum
með köldum sjó eða þegar hörgull
er á vissum næringarefiium.
Á sumrin, þegar fæðuöflun er
auðveldari eða þegar fiskurinn hefur
fæðu sína á hafevæðum þar sem
kappnóg er af næringu, verða hring-
bogamir breiðari og meira bil á milli
hvers og eins.
Á fyrstu árum sínum í ferskvatni
fá til dæmis laxar og aðrar tegundir,
er alast upp í ferskvatni, yfirleitt
mjórri hringboga en síðar á lífeferli
þeirra er þeir komast í saltan sjó.
Nákvæmnisrannsóknir á lögun
hringboganna geta síðan gefið til
kynna hvort til dæmis smávaxinn
Kyrrahafelax eyddi fyrstu uppvaxt-
armánuðum sínum í Skeen ánni í
norðurhluta Bresku-Kolumbíu eða í
einhverri smáánni í Suðaustur-
Alaska sem eru fjölmargar.
Þetta virðist í fyrstu ekki skipta
máli en hér er um þýðingarmikið
atriði að ræða fyrir bandaríska og
kanadíska fiskimenn er stunda veið-
ar sínar á þessum svæðum.
Hið fullkomna greiningartæki
BioSonic fyrirtækisins gerir fiski-
fræðingum nú kleift varðandi fiski-
göngu að komast að því á innan við
hálftíma hvar var lxrygnt og hvar
uppeldisstöðvar voru. Áður fyrr tók
slíkt daga og vikur og mikið erfiði.
Bíða menn spenntir eftir að tækja-
búnaður BioSonic komi á almennan
markað.
Bætt stjómun fiskveiða
Stjómarstofiiun sú, er sér um sjáv-
arútvegsmál í Washingtonríki í
Bandaríkjunum, hefiir ákveðið að
festa kaup á hinum nýja búnaði og
nota hann sér til aðstoðar við stjóm
á laxveiðum við strendur fylkisins.
Ríkisstjómir Spánar og Finnlands
hafa sýnt áhuga á að kaupa tækja-
búnaðinn til reynslu á sínum haf-
svæðum.
Sjávarlíflræðingar BioSonics em
nú að vinna að hönnun forrita fyrir
rannsóknir á hreistri stórrar amerí-
skrar göngufisktegundar (Striped
Bass) er lifir við austurströnd Norð-
ur-Ameríku.
Og undirbúningur rannsókna á
hreistri annarra fisktegunda er haf-
inn.
Smávaxinn Kyrrahafslax: „Hvaðan kemur þú, góurinn?“ spyija nú vísindamenn.
„Aldrei aftur alvörueyja”
— segja Bretar vegna Ermarsundsgangna
Frá Ingunni Ólafsdóttur, fréttaritara
DV í Birmingham:
Tvö hundmð árum eftir að Napo-
leon Bonaparte kom fyrstur fram með
hugmyndina um byggingu samgöngu-
æðar milli Englands og Frakklands
hafa ráðamenn landanna loksins
komist að samkomuiagi.
Thatcher og Mitterrand hittust í
borginni Lille í Norður-Frakklandi og
skrifúðu undir samning um byggingu
neðanjarðarganga undir Ermarsund.
Miklar vangaveltur áttu sér stað
áður en fallist var á ódýrustu tillög-
una.
Lestargöng urðu fyrir valinu er
verða grafin frá Cheriton á Englandi
yfir til Sangatte í Frakklandi.
Á áttunda áratugnum samþykktu
Bretar og Frakkar að grafe lestargöng
og boranir hófúst báðum megin sunds-
ins. En 1975 hættu Bretar við hug-
myndina, meðaf annars sökum of
mikife kostnaðar.
Nú hefiir verið ákveðið að hefjast
handa að nýju á næsta ári og stefnt
er að því að opna göngin vorið 1993.
Bílum verður ekið inn í stórar enda-
stöðvar þar sem vegabréf era skoðuð
og síðan er bílunum komið fyrir inni
ísérstakrilest.
Aflt á þetta að ganga hratt og greið-
legafyrirsig.
Einkabflum er lagt á tveim hæðum
en rútur og flutningabflar verða á
sérstökum lestarvögnum með aðeins
einnihæð.
Á tveggja og hálfs tíma frestí
Á mesta annatímanum fera lestam-
ar af stað á tveggja og hálfe tíma
fresti.
Ferðalagið undir hafebotninn tekur
háfftima og á leiðinni er farþegum
boðið upp á hressingu
Umferð um göngin verður tölvu-
stýrð og auk þessara sérstöku bíla-
flutningalesta fera ferþega- og vöm-
lestirumgöngin.
Þannig verður hægt að fera með
lest beint frá London til Parísar á
London
FRAKKLAND
36 KÍLÓMETRAR |
ENGLAND
Dover
Folke-
Calais
aðeinsþremuroghálfriklukkustund. mannvirlti er áætlaður um 2,3 millj-
Kostnaður við þetta risavaxna arðar punda og talið að yfir 50 þúsund
Umsjón: Hannes Heimisson
manns sitt hvorum megin sundsins fei
vinnu við framkvæmdimar.
Það mun kosta hvem einstakling
um 20 pund að ferðast í gegnum
göngin aðra leið.
Thatcher hefúr lýst ánægju sinni
með samkomulagið og segir það tákn-
rænt fyrir batnandi samskipti Frakka
ogEnglendinga
Kreppa í ferjuflutningum
En ekki em alfir jafhánægðir.
Bændur í Kent óttast að enska
endastöðin eigi eftir að spilla sveita-
sælunni og íbúar Dover, er hingað til
hefúr verið aðalmiðstöð feijuflutninga
yfir sundið, sjá fyrir alvarlegan sam-
dráttviðskipta.
Frakklandsmegin hefúr einnig gætt
óánægju og ótta við breytingar sem
þessi nýja samgönguæð mun hafe í fór
meðsér.
Ferjuflutningsfyrirtækin hafe hótað
vörustríði og harðri samkeppni.
Flestir em þó sammála um að bygg-
ing ganganna er sögulegur viðburður.
Eða eins og Bretinn segir
„Komandi kynslóðfr munu minnast
okkar fyrir þessar stórframkvæmdir
en við munum aldrei aflur verða al-
vömeyja."