Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Side 28
40 DV. FÖSTUDAGUR24. JANÚAR1986. Utvarp_____________Sjónvarp Helga Thorberg leikkona: DAGSKRÁIN NEGLDIMIG SEM BETUR FER EKKIALVEG Ég hlustaði á rás tvö í gær, þætt- ina Gestagang, Svavar Gests og viðtalið sem Gísli átti við Kristin á rás eitt. Þetta var allt í lagi, negldi mig sem betur fer ekki alveg, þannig að ég gat bæði strauað, þrifið efri skápana og bakað nokkra svampbotna meðan ég hlustaði svona með öðru. Ég get ekki sagt að ég hafi saknað sjónvarpsins en það gerði aftur á móti sonur minn, það er að að segja bamastundarinnar. Það er erfitt að skýra fyrir honum af hverju fimmtudagar eru öðruvísi en aðrir og þetta er nú ekki besta leiðin held ég til að kenna honum að þekkjadagana. Vesturbærinn er bestur Um þessa helgi munu félagar úr íbúasamtökum Vesturbæjar ganga í hús og selja minjagrip, sem er ætlað- ur Vesturbæingum, bæði núverandi og (ekki síður) fyrrverandi. Gripur þessi er hattur úr keramiik sem á stendur „Vesturbærinn er bestur“. Ágóðinn af þessari óvenjulegu hatta- sölu rennur í sjóð sem ætlað er að standa straum af kostnaði við gerð listaverks sem samtökin hyggjast færa borginni að gjöf í tilefni 200 ára afmælis hennar á sumri komanda. Þrír listamenn, þau Jón Gunnar Ámason, Sigrún Guðmundsdóttir og Helgi Gíslason hafa verið beðin um að gera tillögur að listaverkinu en dómnefnd mun síðan skera úr um hvaða tillaga verður endanlega val- in. Listaverki þessu er ætlað að standa á opnu svæði innan marka gamla bæjarins, t.d. á Landakotst- úni. Ákvörðun um gjöf þessa var tekin á fundi samtakanna í haust og hefur fjáröflunarnefnd verið að störf- um í vetur. Er hattasalan ein þeirra tillagna sem nefndin stakk upp á. Hattarnir eru hannaðir og unnir af Önnu S. Hróðmarsdóttur. Fjöldi þeirra verður takmarkaður við töluna 500. Skorað er á félaga úr samtökunum að taka þátt í sölunni og sækja hatta í Vesturbæjarskólann kl. 13 laugardaginn 25. þ.m. Hattur þessi er bæði ljómandi fallegt skraut og auk þess staðfesting á því, sem allir reyndar vita: að Vesturbærinn er bestur. ' * Árný Matthíasdóttir lést 15. janúar sl. Hún fæddist í Reykjavík 25. okt- óber 1958. Foreldrar hennar vom Steinunn Svala Ingvadóttir og Matt- hías Ingibergsson. Eftirlifandi eigin- maður Ámýar er Örn Kjærnested. Þeim varð tveggja bama auðið. Út- för Ámýjar verður gerð frá Grinda- víkurkirkju í dag kl. 14. Bryndís Sigurðardóttir lést 17. jan- úar sl. Hún fæddist á Skagaströnd 8. september 1956 dóttir Guðbjargar Lámsdóttur og Sigurðar Ámasonar. Eftirlifandi eiginmaður Bryndísar er Haraldur Hinriksson. Þau hjón eign- uðust einn son. Útför Bryndísar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag kl. 14. Karl Ó. Guðmundsson skipstjóri lést 16. janúar sl. Hann fæddist 9. apríl árið 1911 að Nýjabæ í Þykkvabæ. Karl stundaði lengst af sjómennsku. Eftirlifandi eiginkona hans er Sig- ríður Sveinsdóttir. Þeim hjónum varð fjögurra bama auðið. Karl verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju í dag kl. 13.30. Jarðsett verður á Lágafelli. Hallgrímur Lúther Pétursson frá Hesteyri andaðist í Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 22. jan- úar. Katrín Jónsdóttir andaðist á sjúkra- deild Heilsuvemdarstöðvarinnar hinn 23. þ.m. Þorvaldur Emil Valdimarsson, Vall- argötu 20, Keílavík, lést af slysförum 22. janúar sl. Útför Hjalta Pálmasonar, Selsvöllum 7, Grindavík, sem lést af slysförum 14. janúar sl., fer fram frá Grindavík- urkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 14. Tilkynningar Árshátíð Snæfellingafélagsins í Reykjavík verður haldin í Domus Medica laug- ardaginn 1. febrúar nk. og hefst kl. 18.30 með upphitun eins og undan- farin ár. Borðhald, skemmtiatriði og dans fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar og borðapantanir hjá Þorgilsi Þorg- ilssyni, Lækjargötu 6b, sími 19276, frá kl. 4-6 frá 29. janúar. Fólk er beðið að panta miða í tíma því reynsla undanfarinna ára sýnir að færri hafa fengið en vilja. Nefndin Neskirkja - samvemstund aldraðra Kenya í máli og myndum og Jóhanna á morgun, laugardag, kl. 15. María Möller syngur einsöng við undirleik Sigurðardóttir segir frá ferð til Láru Rafnsdóttur. Tapað-Fundið Katrín týnd Lítil þriggja mánaða kisa, sem er, alveg hvít og frekar mjó með síams lagað andlit, hvarf frá heimili sínu að Fljótaseli í Breiðholti á föstudag- inn sl. Þeir sem hafa orðið varir við ferðir hennar eru vinsamlegast beðn- ir að hringja í síma 17472. Nafn mannsins sem drukknaði Maðurinn sem drukknaði í Bláa lóninu hét Þorvaldur Emil Valdi- marsson. Þorvaldur var 31 árs, fædd- ur 6. október 1954, til heimilis að Vallargötu 20 í Keflavík. Andlát Heíd að þaö gangi saman eftir helgi —segir oddvitinn á Bíldudal um kaupin á Sölva Bjarnasyni „Ég held að það gangi saman fljótlega eftir helgi,“ sagði Magnús Bjömsson, oddviti á Bíldudal, um samningaviðræður Útgerðarfélags Bílddælinga og Fiskveiðasjóðs um togarann Sölva Bjamason. Frystihúsið á Bíldudal á 70 pró- sent í Útgerðarfélaginu, sem sér- staklega var stofhað til að bjóða í skipið. Hreppurinn á 20 prósent en 10 prósent skiptast á 50-60 einstakl- inga eða nánast hverja fjölskyldu í kauptúninu. „Við erum í sambandi við Fisk- veiðasjóð," sagði Ari Jónsson, framkvæmdastjóri Vélsmiðju Homafjarðar, en hann er einn fjög- urra Homfirðinga, sem saman áttu hæsta boð í Sigurfara II. Hinir em Bragi Bjamason útgerðarmaður, ólafur Bjöm Þorbjömsson, út- gerðarmaður og skipstjóri, og Bim- ir Bjamason héraðsdýralæknir. -KMU Fulltrúar Bfldudals, þeir Slgurður BrynjóHsson sklpstjóri, Jakob Kristinsson, (ramkvæmdastjóri frystlhússins, Magnús BJömsson oddviti og Guömundur Sævar Guöjónsson hreppsstjóri, leggja inn tilboöið til Fiskveiða- sjóðs siðastliðinn þriöjudag. DV-mynd: GVA. Fundað um kísilmálm: Sitja með uppbrettar ermar og pæla í málinu Forráðamenn alþóðafyrirtækis- ins Rio Tinto Zink og íslenska samninganefndin um stofnun kísilmálmverksmiðju á Reyðar- firði sátu á fundi í gær og munu einnig funda í dag. „Málið er í fullum gangi. Hér sitja menn á skyrtunum með uppbrettar ermar og pæla í hlut- unum,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, eftir fundinn í gær. Hann sagði að enn væri ekki hægt að greina efnis- lega frá þessum viðræðum. Fjórir starfsmenn frá RTZ, þrír framkvæmdastjórar og einn tæknimaður, hafa staðið í þessum viðræðum hér á landi. Hluti þessa hóps fer til síns heima í dag og þeir er eftir verða munu dvelja hér í nokkra daga. Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti viðræðufundur þessara aðila verður. Og eins og áður hefur komið fram í DV er búist við að þessar viðræður standi yfir í allt.aðfimánuði. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.