Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Blaðsíða 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986.
Spurningin
Spilar þú í
happdrætti?
Maria Þorleifsdóttir, aðstoðarfor-
stöðumaður Árseli: Nei, en ég hef
gert það, spilaði í Happdrætti Hó-
skólans og fékk einu sinni vinning.
Ég held ég spili ekki aftur í bráð.
Kristrún Sigurðardóttir, vinnur á
skyndibitastað: Nei, aldrei en ég hef
keypt svona happdrættismiða. Því
miður hef ég aldrei unnið neitt. Það
gæti nú verið að ég eigi eftir að spila
i alvöruhappdrætti.
Ólöf Ágústsdóttir, vinnur á Lækjar-
brekku: Nei, engu. Ég spilaði lengi
í DAS en gafst upp þegar ég vann
ekkert. Þetta er bara peningaeyðsla,
þó veit maður reyndar aldrei, happ-
drætti er happdrætti.
Bæring Aðalsteinsson sjómaður: Nei,
ég spila ekki í happdrætti. Ég hef
nokkrum sinnum spilað í Happdrætti
Háskólans en aldrei unnið. Ég spila
kannski aftur ef ég verð ríkur.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Þagnarskylda varð-
andi AIDS-sjúklinga
Hr. ritstjóri.
í leiðara í blaði yðar þann 14.12.
1985 ásakið þér mig og tvo sérfræð-
inga um að blekkja alþjóð, þ.e. að
hafa reynt að koma því inn hjá
almenningi að alnæmi „væri
skemmra á veg komið hér á landi“
en raun ber vitni. Tilefnið er að
við gáfum blaðamanni yðar ekki
upp dánarstund, dánardag og dán-
arstað AIDS-sjúklings.
I byrjun októbermánaðar bauð
ég yður ásamt ritstjórum dagblað-
anna á fund til þess að ræða AIDS-
sjúkdóminn. Þér gátuð ekki mætt
á fundinn en fréttastjóri yðar kom
á fundinn. Síðar bauð ég yður aftur
af sama tilefni en þér kusuð að
koma ekki.
Á fyrsta fundinum var rætt um
horfur, gang og útbreiðslu sjúk-
dómsins ásamt vandamálum er upp
kynnu að rísa vegna hans hér á
landi. Menn voru sammála um að
fámennið hér á landi kallaði á
meiri árverkni heilbrigðisyfirvalda
og heilbrigðisstarfsfólks varðandi
þagnarskyldu um hagi sjúklinga
en í fjölmennari löndum. Á fundin-
um kom skýrt íram að landlækni
bæri m.a. skylda til að gefa upplýs-
ingar um útbreiðslu og gang sjúk-
dómsins en vitaskuld yrðu ekki
gefnar upplýsingar um einstaka
sjúklinga enda eru í landslögum
skýr fyrirmæli er kveða á um þagn-
arskyldu i því tilfelli.
Af lestri leiðarans er ljóst að
annaðhvort skrifið þér gegn betri
vitund og álasið læknum fyrir að
fara að lögum eða þér þekkið ekki
lög landsins.
I von um að lögvísin hafi brugðist
yður sendi ég læknalögin með
þessum skrifum.
Ólafur Ólafsson
landlæknir.
Aths. ritstjóra
Þagnarskylda er ekki sama og
lygaskylda. Bæði fyrir og eftir lát
fyrsta eyðni-sjúklingsins tjáði
landlæknir DV, að enginn íslend-
ingur væri með eyðni (alnæmi).
Landlæknir gat þagað, ef hann
vildi, en kaus að segja ósatt. Það
gildir því áfram, að DV mun ekki
treysta orðum landlæknis.
Kynna Flugleiðir sumar-
fargjöldin fyrr erlendis?
Flugfarþegi skrifar.
Hækkun flugvallargjaldsins hefur
vakið mikinn kurr meðal almennings
hér. Þessi hækkun á ekkert skylt við
þá stefhu sem kynnt var i kosningalof-
orðum Sjálfstæðisflokksins og segir
okkur einfaldlega það að óþarft er að
taka framvegis nokkurt mark á slagorð-
um stjómmálaflokkanna og loforðum
fyrirkosningar.
í Morgunblaðinu hinn 10. þ.m. er birt
grein, undimtuð af einum fram-
kvæmdastjóra Flugleiða hf., þar sem
hann fer hörðum orðum um þennan
nýja flugvallarskatt.
Undir þau orð er sjálfsagt að taka því
hækkunin á þessum skatti er ekkert
annað en mistök sem veiður að leiðrétta
eins og segir í grein framkvæmdastjór-
ans.
En það sem stingur í augu í grein
þessa framkvæmdastjóra Flugleiða er
sá rökstuðningur hans gegn flugvallar-
gjaldinu að flugfélag hans hafi nú kynnt
verð fyrir næsta sumar og þar sé þessar-
ar hækkunar ekki getið.
Oiðrétt segir í grein framkvæmda-
stjórans: „Flugleiðir hafa til dæmis
kynnt verð á íslandsfeiðum næsta
sumar á meginlandi Evrópu, Englandi,
í Bandaríkjunum ög víðar með bæklin-
gaútgáfii, þátttöku í ferðakaupstefhum
og auglýsingum. Ekki er viðlit að breyta
áður auglýstu verði gagnvart þeim er-
•*------
lendu aðilum sem búið er að semja við
eða kynna ákveðnar ferðir til íslands."
Ef það er rétt að búið sé að auglýsa
og dreife verðlistum erlendis um fargjöld
Flugleiða þá er það vægast sagt óveij-
andi að við íslendingar sitjum ekki við
sama borð og útlendingar í því efhi.
Mér datt i hug að hringja í nokkrar
ferðaskrifstofur og spyijast fyrir um
verð næsta sumar á „flug og bflT-
tilboðinu eða öðrum fargjöldum sumar-
ins, en alls staðar var svarið það sama:
Við höfum engin fargjöld fengið frá
Flugleiðum enn og getum ekki sagt
neitt um það nákvæmlega hvenær þau
verða tiltæk!
Og þama er komið að því atriði að
við Islendingar virðumst sífellt sitja við
annað og óæðra borð en hinir erlendu
viðskiptavinir flugfélaganna okkar.
Bæði hvað varðar þá þjónustu að
geta skoðað verð sumarsins snemma
ársins og svo að sjálfeögðu hvað snertir
verðið sjálft, sem er mun óhagstæðara
en verð það sem býðst útlendingum. Á
það ekki hvað síst við ferðir héðan til
Bandaríkjanna þar sem þeir sem fljúga
yfir hafið til Lúxemborgar eru mun
betur settir vaiðandi fargjöld.
En þetta með kynningu á fargjöldum
sumarins í Evrópu og annars staðar
erlendis á undan heimalandinu þarfn-
ast nánari skýringa fyrir íslenska við-
skiptavini. Að gengisbreytingar hér tefji
málið er ekki haldbær skýring.
Ónafiigreindur flugfarþegi telur að Flugleiðir sinni útlendingum betur en
íslendingum.
Hallbera Jónsdóttir húsmóðir: Nei,
ekki núna. Ég spilaði í tuttugu ár
hjá Háskólanum en er nú orðin
hvekkt á þessu. Ég kaupi nú samt
enn svona símahappdrættismiða.
Þorsteinn S. Þorsteinsson nemi: Nei,
bara keypt svona miða úti á götu.
Blessaður, ég hef aldrei unnið. Ég tel
líklegt að ég muni spila þegar fjár-
munimir verða meiri.
Hæ, tröllum á meðan við tórum
Lesandi skrifar:
Engum dylst, eftir þá miklu um-
ræðu sem farið hefur fram um mál-
efni íslenska Ríkisútvarpsins að
undanfömu og stendur enn, vissu-
lega í tilefni nýgerðra laga, að eitt-
hvað mikið er og á að gerast. Við sem
komin erum nokkuð til aldurs lítum
sennilega talsvert öðrum augum á
allt þetta brölt en unglingamir sem
sífellt eru að heimta Duran Duran
eða eitthvað álíka. Þjónusta þessara
ríkisfjölmiðla þokast líka í þá átt að
verða meir og meir fyrir æskulýðinn
um leið og ellilífeyrisþegum fjölgar.
Kannski er þetta furðuleg staðhæf-
ing og ekki rétt, sem sagt merkilegt
að gamla manninum skyldi detta
þessi fjarsfaeða f hug. Ef til vill er
hann bara svona kalkaður? Og á
sama tíma kom fram í einhverri
skoðanakönnun að aðeins 5 prósent
hlustenda, sem spurðir voru, hlust-
uðu á Kvöldvökuna í útvarpinu, ef
ég man rétt. Ég hefi þó alltaf álitið
að hún væri einkum sniðin við hæfi
þeirra sem væru búnir að slíta
bamsskónum og það fyrir allnokkru.
Ég hefi verið að gæla við þá hug-
mynd, nú þegar allt er að verða
fijálst, hvort ekki væri rétt að stofna
útvarp aldraðra. Ég er meira að segja
búinn að finna kynningarlagið, lag
sem flestir kunna: „Hæ, tröllum á
meðan við tórum“. Drýgstur hluti
þeirra sem standa að menningar-
starfsemi í landinu er kominn yfir
það sem við köllum miðjan aldur og
þama hafa menn það hvort sem þeim
líkar betur eða verr.
„Ég hefi verið að gæla við þá hugmynd, nú þegar allt er að verða
ftjálst, hvort ekki væri rétt að stofna útvarp aldraðra.“