Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Page 18
18
DV. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
• JOHNBOND.
Bond stjóri
Birmingham
Leonard rekinn
eftir7daga
Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi.
Framkvæmdastjórinn kunni, John
Bond, var í gær ráðinn stjóri 1. deild-
ar liðs Birmingham sem er í mikilli
fallbaráttu. Eftir að Ron Saunders
sagði upp sem stjóri Birmingham var
aðstoðarmaður hans þar, Keith
Leonard, ráðinn. Hann var hins
vegar rekinn nokkru eftir að Birm-
ingham tapaði fyrir Everton á
heimavelli sl. laugardag. Var sjö
daga í stjórastólnum. Aðeins einn
maður hefur gegnt stjórastarfi skem-
ur. Það er Bill Lampton, sem í apríl
1959 var þrjá daga stjóri Scuntorpe.
John Bond tók strax í gær við
starfinu hjá Birmingham og hefur
þar þjálfara, unglingaþjálfara og
lækni. Tveir þjálfarar hjá félaginu
voru reknir með Leonard. Hér á
árum áður var John Bond mjög
kunnur bakvörður hjá West Ham.
Eftir að leikferli hans lauk gerðist
hann stjóri hjá Boumemouth. Fór
síðan til Norwich og Man. City. Þá
iá leiðin niður á við á ný. Fór til
Bumley, siðan Swansea og hætti þar
í desember þegar gjaldþrot vofði yfir
Swansea. Þetta er í þriðja sinn sem
Bond sest eiginlega í stjórastól
Saunders því Ron var einnig stjóri
áður fyrr hjá Norwich og Man. City.
-hsím
Loks tap
hjá PSG
— tapaði ieíknum við
Lille ersetturvará
afturvegna biiunar
á fióðljósum
Frönsku meistaraefnin Paris Saint
Germain töpuðu sínum fyrsta leik i
frönsku 1. deildinni er liðið lá fyrir
Lille á útivelli, 2-o. Tap PSG var það
fyrsta í 27 leikjum sem að sjálfsögðu
er met.
Leikur þessi var settur á eftir að
liðin höfðu fyrr í vetur leikið í 84
mínútur. þá biluðu flóðljós vallaríns
f Lille og ákveðið var að liðin reyni
meðséraftur. -fros
Staðan í 1.
deild kvenna
Staðan í 1. deild kvenna á íslands-
mótinu í handknattleik er nú þannig
eftir leikina á miðvikudagskvöld:
Fram 7 7 0 0 178-125 14
Stjarnan 8 5 1 2 193-162 11
FH 7 5 0 2 128-116 10
Víkingur 7 3 1 3 142-141 7
Valur 7 2 1 4 141-140 5
Haukar 7 0 2 6 111-173 2
KR 6 0 1 5 114-150 1
Leikmaður úr þriðju
deild í HM-liði Dana
þrír leikmenn úr B-liði Dana á Baltic Cup í HM-liðinu
„Valið kom mér mjög á óvart þó
að ég hefði leikið vel í danska
B-landsliðinu í Baltic Cup. Það
gerðu margir aðrir í B-liðinu,“ sagði
John Mark Jensen hjá Brönderslev
þegar hann frétti að hann hefði verið
valinn i danska landsliðshópinn i
heimsmeistarakeppninni í Sviss í
handknattleiknum. Hann er 22ja ára
hornamaður og hefur ekki leikið
landsleiki. Hins vegar 38 piltalands-
leiki. Vissulega kom það á óvart að
leikmaður úr 3. deildar liði skyldi
valinn í HM-hóp Dana.
Tveir aðrir leikmenn úr B-lands-
liðinu í Baltic Cup voru valdir í
HM-hópinn, Steen Mogensen, HIK,
og Jens Chr. Kristensen, markvörður
hjá Skovbakken. Einn A-landsliðs-
maður á Baltic Gup var settur úr
HM-hópnum, Otto Mertz, Virum.
Leif Mikkelsen, landsliðsþjálfari
• John Mark Jensen.
Dana, tilkynnti HM-hóp sinn fyrr í
þessari viku, 16 leikmenn. Þessir
leikmenn Dana leika í Sviss.
Markverðir: Paul Sörensen, HIK,
Jens Chr. Kristensen, Skovbakken,
og Karsten Holm, Kolding.
Útileikmenn: Michael Fenger,
Lars Gjöls, Klaus Sletting og Steen
Mogensen, allir HIK, Jens Erik
Roepstorff, Helsingör, Erik Veje
Rasmussen, Gummersbach, Keld
Nielsen, Saga, Morten Stig Christ-
ensen, HG, Claus MunkedaL, Holte,
Hans Henrik Hattesen, Winterthur,
Jörgen Gluver, Alecante, Kom
Jacobsen, Veminge, og John Mark
Jensen, Brönderslev.
Danir leika landsleiki við Norð-
menn 1. og 2. febrúar í Stafangri og
Haugasundi. Fara aðeins með 14
leikmenn í þá leiki. Steen Mogensen
og Carsten Holm voru ekki valdir.
hsím
Framlag ríkisins til íþrótta-
mála í ár það sama og í fyrra
— hækkun milli ára 34,1% - Framlag til ólympíunefndar hækkar
um eina og hálfa milljón frá 1985
Á íjárlögum ríkisins fyrir yfirstand- Ölympiunefnd fær mesta hækkun
einstakra aðila milli fjárlaganna
1985 og 1986 og hækkar framlag
ríkisins til nefhdarinnar úr 540 þús-
undum í 1,5 milljón.
andi ár er heildarframlag til íþrótta-
mála 27 milljónir og 280 þúsund. Þetta
er samsvarandi upphæð og var á fjár-
lögum fyrir árið 1985. Hækkunin á
milli ára nemur í krónum talið 6
milljónum og 935 þúsundum sem
jafngildir 34,1% hækkun milli ára eða
þvi sem næst verðbólguhraða.
I fyrra fékk íþróttasamband íslands
til umráða 17,4 milljónir en fær í ár
22,5 milljónir. Hækkar um 5,1 milljón
milli ára. Þess má geta að í fyrra fór
einn þriðji hluti framlags hins opin-
bera til ÍSÍ til daglegs rekstrar sam-
bandsins, einn þriðji í nýbyggingar-
framkvæmdir við íþróttamiðstöðina
í Laugardal og einn þriðji til sérsam-
banda innan ÍSÍ.
íþróttastarfsemi hér á landi hefur
aldrei verið ofalin af því opinbera
og á því virðist engin breyting sjáan-
leg. íþróttahreyfingin hefur mátt
þola fjársvelti og skilningsleysi yfir-
valda um áraraðir og verður svo
eflaust í náinni framtíð þrátt fyrir
að íþróttamenn okkar hafi á undan-
fömum árum verið í stöðugri sókn,
unnið mörg glæst afrek og hvarvetna
verið landi og þióð til mikils sóma.
STAÐAN
Staðan í úrvalsdeildinni eftir sigur
Hauka á
þannig:
KR.
ÍR..
Njarðvík í gærkvöldi er
.16 13 3 1372-1263 26
.16 12 4 1340-1271 24
.15 7 8 1187-1177 14
.15 7 8 1177-1199 14
.15 5 10 1169-1256 10
.15 2 13 1196-1275 4
• Valur Ingimundarson er enn stiga-
hæstur í úrvalsdeildinni, hefur skor-
að 410 stig. Pálmar Sigurðsson kemur
næstur á eftir með 372 stig.
Næstu leikir í deildinni: Keflavík-ÍR
á laugardag kl. 14.00 og á sunnudag
KR-Valur í Hagaskóla kl. 20.00.
SKÍÐASVÆÐIÐ
SKÁLAFELLí
StCÍCASKÁUKB
^ ÆFINGASVÆOI
FJORAB lyftur
■ : UÖ9WWO; KKIS e
• Áhugi almennings á skíðaferðum hér innanlands hefur farið mjög vaxandi á undanförnum árum. Árlega koma
tugir ef ekki hundruð þúsunda skiðafólks á hin ýmsu skiðasvæði landsins. Til að mynda koma árlega á milli 30 og
40 þúsund manns á skíðasvæði KR í Skálafelli.
I S1
' Skálafelli em alls starfræktar átta skíðalyftur og þar á meðal lengsta og afkastamesta stólalyfta landsins sem
er 1200 metra löng og flytur 1200 manns á klukkustund. Mjög stutt er til Skálafells frá Reykjavík og aðeins þriggja
kílómetra akstur frá Þingvallavegi.
Skólafölk hefúr gert mikið að því að heimsækja Skálafell og er það aðallega á tímanum frá janúar til apríl.
Dvelur skólafólkið tvo og hálfan dag í senn við skíðaæfingar.
Skíðakennsla er flestar helgar í Skálafelli og jafnan em lagðar göngubrautir. Bamalyfta er í gangi allar helgar
endurgjaldslaust. Dagkort í lyftur kosta aðeins 300 krónur á virkum dögum og 350 krónur um helgar. Skíðasvæðið
í Skálafelli er opið alla daga frá klukkan 10-18. Einnig em kvöldferðir fyrir keppendur og æfingahópa þrjá daga
íviku. -SK.
• Þær voru margar körfurnar í 1«
leikmenn við undir körfu Haukann
„Bi
séð
— sagði Einar
„Ég held að við höfum með þessum
leik sýnt hinum liðunum í úrvals-
deildinni að við emm klárir í úrslita-
keppnina. Þetta var frábær leikur og
liklega sá besti sem ég hef séð hér á
landi frá upphafi. Við náðum toppleik
og ég held að eitt atriðið sem ráðið
hafi úrslitum hér í kvöld hafi verið
að það var meiri breidd hjá okkur en
Njarðvíkingum," sagði Einar Bolla-
son, þjálfari Hauka, i gærkvöldi eftir
að Haukar höfðu sigrað Njarðvíkinga
í úrvalsdeildiunni í körfuknattleik
með 112 stigum gegn 105 eftir að
staðan í leikhléi hafði verið 57-57.
Sigur Haukanna var ekki síst merki-
legur fyrir þær sakir að þetta var
fyrsti sigur Hauka gegn UMFN á
eigin heimavelli.
Það er alveg óhætt að taka hressi-
lega undir það með Einari að betri
leikur hefur ekki sést hér í langan
tíma og eflaust er þetta besti leikur
sem hér hefur verið leikinn frá upp-
hafi. Þetta em auðvitað stór orð en
sönn. Bæði lið léku sinn besta leik í
langan tíma og úr varð þessi stór-
skemmtilega viðureign tveggja bestu
liðanna í úrvalsdeildinni. Maður
hafði það oft á tilfinningunni að
maður sæti og fylgdist með leik í
NBA-deildinni bandarísku, svo mik-
íl og góð voru tilþrif leikmanna
Nokkrir vellir lausii