Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 1
w Flak flugvélarinnar í hlíöum Bláfjalla í gærkvöldi. DV-mynd GVA. ! Heyröi vélarhljóöiö hætta og skruöninga taka v/ð Tveir menn fórust í flugslysi í Biáf jöllum í gær Tveir menn fórust í flugslysi í fólk- vangi Bláfjalla í gœr. Mennimir lét- ust samstundis þegar flugvél þeirra skall í fjallinu einn km sunnan við stólalyftuna í Suðurgili. Þrjú vitni urðu að slysinu, skíðamennimir Matthías Sveinsson og Halldór Matthíasson, sem vom á göngu á skíðagöngubraut á svæðinu, og einn skíðamaður sem var á leið upp í fjall með skíðalyftu í Kóngsgili. Skíðamaðurinn í Kóngsgili til- kynnti lyftuverði efst í fjallinu um slysið. Lyftuvörðurinn hafði strax samband við mann á snjótroðara Bláfjallasvæðisins sem hafði þá einn- ig fengið tilkynningu um slysið frá þeim Matthíasi og Halldóri. Þegar var farið á snjótroðaranum á staðinn þar sem flak flugvélarinnar var. Mennirnir vom þá látnir. Brakið var í u.þ.b. 60 metra hæð yfír jafnsléttu. Það var dreift um svæðið og bendir allt til að flugvélin hafi skollið í fjallið af miklum krafti. Tilkynning um slysið barst fyrst til slökkviliðsins í Reykjavík 10 mín. eftir að flugvélin skall í fjallinu. Sjúkrabíll og lögreglan héldu þegar áleiðis upp í Bláfjöll, einnig menn frá Loftferðaeftirliti Flugmálastjómar og flugslysanefnd sem rannsaka mun slysið. Þá fóru einnig menn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins á svæð- ið. Það var fyrsta verk lögreglunnar, er hún kom að afleggjurum til Blá- fjalla, að loka svæðinu fyrir utanað- komandi aðilum. - KMU/SOS „Þetta gerðist leiftursnöggt” — sagði Matthías Sveinsson sem kom strax á slysstað „Flugvélin gat ekki lent á verri stað. Hún skall á klöpp í fjallinu og hefur eflaust mölbrotnað lun leið,“ sagði Matthías Sveinsson sem kom strax á slysstað í Bláfjöll- um ásamt félaga sínum, Halldóri Matthfassyni. „Brakið þeyttist út um allt og stórir hlutar úr vélinni runnu niður fjallið. Mennimir hafa látist sam- stundis,“ sagði Matthías. Matthías sagði að þetta hefði skeð leifturs- nöggt. „Ég var fyrir aftan Halldór en fyrir framan okkur var snjótroð- arinn að troða gönguslóð fyrir okkur. Ég sá Halldór þar sem hann stökk skyndilega upp úr slóðinni og hljóp að troðaranum. Troðarinn og Halldór tóku þá aðra stefiiu og fóm upp í fjall. Ég elti og þegar við komum upp á hæðina blasti flakið af flugvélinni við,“ sagði Matthías. -sos „Mér virtist hún fljúga heldur lágt” — sagði Halldór Matthíasson sem var á vettvangi þegar slysið varð Halldór Matthfasson skiðamaður. „Vélarhljóðið hætti skyndilega og ég heyrði skmðninga í kjölfar- ið,“ sagði Halldór Matthíasson skíðamaður sem var á skíðagöngu í Bláfjöllunum þegar flugslysið varð. „Ég var að skíða rétt á eftir troð- aranum þegar ég varð var við flug- vélina. Mér virtist hún fljúga held- ur lágt en að öðm leyti eðlilega. Ég varð ekki var við neitt hikst eða hökt. Ég gekk áfram um það bil hundrað metra og þá var það sem vélarhljóðið hætti,“ sagði Halldór Matthíasson. „Ég áttaði mig strax á því að eitthvað óeðlilegt hafði gerst. Ég dró uppi troðarann. Við tókum síðan plóginn aftan úr troð- aranum og keyrðum í óttina að vélinni. Hún hefur varla verið í meira en 500 metra fjarlægð. Við sáum hana ekki á þessu augna- bliki því hún var aðeins ó bak við hól en ég sá skoppandi brak og vissi einhvem veginn af vélinni út undan mér. Það hafa varla liðið meira en tíu mínútur frá því að •slysið varð og þar til við komum á slysstað. Annar maðurinn var þá fastur í sætisbeltum vélarinnar en hinn hafði kastast út. Hvomgur var með lífsmarki." _óm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.