Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 2
2 DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. Fréttir Fréttir Fréttir TF-SIF með sína hitamyndavél getur greint mann í sjó úr 500 feta hæð. Samt var hún ekki kölluð til fyrr en um seinan. Flugslysið útiafReykjanesi: Var brugbist of seint við tilkynn- ingu flugmannsins? Rúm ein og hálf klukkustund leið frá því að flugmaður litlu Cessna-- vélarinnar, sem fórst út af Reykja- nesi á miðvikudagskvöld, tilkynnti að hann væri tæpur með eldsneyti þangað til björgunarþyrla Land- helgisgæslunnar var kölluð út. Tuttugu mínútur liðu frá því flugvélin nauðlenti á sjónum þang- að til Gæsluþyrlan var kölluð út. „Hneyksli" var það orð sem flug- stjóri Gæsluþyrlunnar, Páll Halld- órsson, notaði. „Hneykslið við þetta útkall er að við, sem erum með bestu tækin, erum samt látnir vita síðastir," sagði flugstjórinn. í kynningarávarpi um Gæslu- þyrluna í desember sagði Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelg- isgæslunnar, að innrauð myndavél þyrlunnar skynjaði af mikilli ná- kvæmni mismunandi hitaútgeislun hluta og gerði þar með áhöfn þyrl- unnar mögulegt að greina ýmsa hluti þótt í myrkri eða slæmu skyggni væri. Nefndi Gunnar sem dæmi að í 500 feta hæð ætti að vera hægt að sjá mann í sjónum hálfa sjómílu á hvert borð og þrjá fjórðu úr sjómílu framundan hvort sem væri að nóttu eða degi. Þyrlur Vamarliðsins á Keflavík- urflugvelli hafa ekki slíka hita- myndavél. Það var klukkan 17.07 sem flug- stjóm í Reykjavík barst tilkynning frá flugmanni Cessna 210-vélarinn- ar um að hann væri tæpur með eldsneyti. 16 mínútur liðu þangað til Flug- málastjóm bað Vamarliðið um þyrlu, klukkan 17.23. 28 mínútur liðu þangað til Flug- málastjóm gerði Slysavamafélagi íslands viðvart, klukkan 17.35. 38 mínútur liðu þangað til Flug- málastjóm lét Landhelgisgæsluna vita, klukkan 17.45. Herkúles-eldsneytisvél, sem fór frá Keflavíkurflugvelli klukkan 18.07, sá til litlu vélarinnar 13 mínútum síðar, klukkan 18.20, og fylgdi henni eftir það. Vamarliðsþyrlan fór á loft klukkan 18.11,48 mínútum eftir að Flugmálastjóm bað um hana. Á sömu mínútu þraut eldsneyti Cessnunnar. Það tók hana 15 mínútur að svífa úr 13.500 feta hæð niður að sjávar- máli. Klukkan 18.26 nauðlenti hún á sjónum. Herkúles-vélin hnitaði hringi yfir og kastaði út ljósblysi en þyrlan átti enn þriggja mínútna flug eftir að slysstað. Klukkan 18.29 kom þyrlan yfir. Flugmenn hennar sáu ekki Cessn- una þótt flugmenn Herkúles-vél- arinnar sæju bæði þyrluna og litlu vélina mara í sjónum góða stund. Það var fyrst klukkan 18.45, þegar allt var komið í óefni, sem Gæsluþyrlan með sína hitamynda- vél var kölluð til. Þyrlan var komin á loft um þremur stundarfj órðung- um síðar og átti um 20 mínútna flug að slysstað. Flugþol Gæsluþyrlunnar á hag- kvæmasta hraða, sem er 250 kíló- metrar á klukkustund, er 4 klukku- stundir og 15 mínútur. Hún getur því flogið 400 kílómetra á haf út og til baka og samt átt eftir til vara eldsneyti til meira en klukku- stundarflugs. Slysstaðurinn var í 67 kílómetra fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. -KMU I t Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) heldur nú námskeið fyrir verkstjóra í saltfiskverkun. Eru þar fyrir- lestrar um fiskverkun, tæknibreytingar og gæðaþróun. Einnig er fjallað um hinn mikla skaðvald, hringorminn. Þarna hafa mætt verkstjórar alls staðar af landinu og er talið að um 150 manns hafi sótt námskeiðið. Hafa menn mikinn áhuga á þvi að gera átak i vöruvöndun á þessu sviði fiskframleiðslu. Er þetta i þriðja skiptið sem námskeið sem þetta erhaldið. ÞUSUND SÍMANÚMER BREYTAST í ársbyrjun 1984 var tekin í notkun ný stafræn rafeindastöð, AXE, að Múla við Suðurlandsbraut. Símanú- mer stöðvarinnar eru sex stafa og byija á tölunni 6 en henni var ætlað að mæta þörfum fyrir nýja síma og leysa eldri gerðir símstöðva af hólmi. Nú hafa um 3500 númer verið flutt úr eldri stöðvum yfir í AXE-stöðina og útstöðvar hennar á Seltjarnamesi og í Árbæjarhverfi og nýlega var lokið við enn frekari stækkun um 1000 númer sem ætluð eru til útskipt- inga á eldri númerum. Vegna þessa verður öllum núm- erum á bilinu 81000-81999 breytt snemma að morgni laugardagsins 1. febrúar og verður breytingin með þeirn hætti að talan 6 bætist við fyrir framan gamla númerið. Þessi nýju símanúmer verða skráð í símaskrá 1986. -S.Konn. Alþýðuflokkur: PRÓFKJÖR í HAFNARFIRÐI Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði hefur ókveðið að hafa prófkjör um skipan 5 efstu sæta á framboðslista flokksins við bæjarstjómarkosning- amar í vor. Kosið verður í Alþýðu- húsinu í Hafnarfirði í dag, laugar- daginn 1. febr., kl. 14.00 - 19.00 og á morgun, sunnudag, kl. 10.00 - 20.00. í framboði í prófkjörinu em: Erl- ingur Kristensson skrifetofumaður, Guðmundur Ámi Stefánsson bæjar- fúlltrúi, Ingvar Viktorsson kennari, Jóna Ösk Guðjónsdóttir fulltrúi, María Ásgeirsdóttir húsmóðir, Sigr- ún Jonný Sigurðardóttir húsmóðir, Tryggvi Harðarson jómabindinga- maður, Valgerður Guðmundsdóttir snyrtifræðingur og Þómnn Jóhanns- dóttir ritari. Rétt til þótttöku hafa allir flokks- bundnir alþýðuflokksmenn og aðrir stuðningsme.m, sem lögheimili eiga í Hafharfirði og orðnir verða 18 ára 31. maí í ár. Safnað fyrir geislatæki „Öllum ætti að vera það kappsmól að stuðla að því að sem fullkomnust tæki séu til notkunar við lækningar á þessum válega sjúkdómi og því munu landsmenn áreiðanlega ekki liggja á liði sínu þar til nægilegt fjármagn er fengið til þessara kaupa.“ Fró stjóm Kvenfélagasam- bands íslands em þessi orð komin en félagið hefur undanfamar vikur gengist fyrir söfnun til kaupa á lækningatæki fyrir krabbameins- deild Kvennadeildar Landspítalans. Nú þegar hafa safhast tvær millj- ónir króna hjá félagskonum en tækið kostar þrjár og hálfa milljón. Tækið, sem safnað er fyrir, er eftirhleðslu- tæki fyrir innrigeislun leghál- skrabbameins. Flest kvenfélög ó landinu hafa lagt þessu máli lið en betur má ef duga skal. Nú er leitað til allra sem vilja leggja sitt af mörkum. Framlög em vel þegin og óskast send á gíróreikn- ing nr. 528005. -ÞG ATHUGASEMD FRÁ FLUGMÁLASTJÓRA Vegna frétta á baksíðu DV í gær 30. janúar um það slys er lítil einka- flugvél fórst suðvestur af landinu viljum við undirritaðir, forstjóri Landhelgisgæslunnar og flugmála- stjóri, taka fram að mikil og góð samvinna er milli Landhelgisgæsl- unnar og Flugmálastjómar um öll sameiginleg mól og á það einnig við leit og björgun. Að lokinni hverri leit fer fram gagnrýnin umræða um atburðarás og í framhaldi af henni reynt að lagfæra það sem betur mó fara. ógætileg og ónákvæm umfjöllun blaðamannsins Kristjáns Más Unn- arssonar er engum til góðs og getur beinlínis skaðað það mikla og óeigin- gjama starf sem íslenskir björgunar- menn vinna. Þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti, sem við sjáum tilefni til þess að gera athugasemdir við vinnubrögð fréttamanns yðar, K.M.U., viljum við skora á yður að sjá til þess að vandaðri frágangur verði á fréttameðferð hans fram- vegis. Við óskum eftir birtingu og yfirlýs- ingu þessari í blað yðar. Gunnar Bergsteinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar PéturEinarsson flugmálastjóri DV stendur við frétt sína. Ritstj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.