Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Side 5
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
5
Stjórnmál Stjórnmál
lega ó óvart að gamla „maskínan",
sem á tímum Hannibalista var gjam-
an nefnd „símabandalagið", skyldi
fara í gang með „jafnofboðslegum
hætti“ og raun varð á - ekki síst nú
síðustu dagana. Fjöldinn allur af
fólki úr þeim röðum væri í hringing-
um, þar á meðal fjölmargir forystu-
menn, enda auðfundið að þyngra
væri fyrir með áróður fyrir Kirstínu
og Össuri en óður var meðal gömlu
flokksfélaganna. Aðalglæpurinn
væri að leyfa sér þá ósvinnu að ætla
sér að fella gamla forystumenn
flokksins í prófkjöri. Slíkt gerðu
menn barasta ekki.
Einn nothæfur mælikvarði ó hit-
ann í slagnum er hversu sumir þeir,
sem ákafastir eru, hika lítt við að
ófrægja keppinautana.
Þannig tala sumir, sem telja fram-
boð Kristínar og Össurar atlögu að
forystu og grundvallarvinnubrögð-
um í flokknum, um lýðræðiskynslóð-
ina sem framsóknarmenn og krata
og jafnvel „frjálshyggjupakk“.
Sömuleiðis að það þurfi „að hreinsa
þetta dót í burtu“ og „losa sig við
meinið“.
Á hinum vængnum gætir fyrirlitn-
ingar á gamla valdakjamanum. Tal-
að er um að fyrir forystuna sé megin-
atriðið orðið varsla hagsmuna, ekki
síst peningalegra. Setan í borgar-
stjómarkerfinu sé sumum „gull-
nóma“, eða hreinlega spurning um
vel launaða atvinnu. Peningamenn
séu orðnir sterkir í kringiun flokks-
forystuna. Ummælum um Sigurjón
sem „messagutta" eða „málaliða"
hjá Davíð Oddssyni er óspart hamp-
að og hann sagður dvergur eða peð
við hlið borgarstjórans.
Þá er sú gagnrýni á Sigurjón og
aðra borgarfulltrúa flokksins áber-
andi að þeir hafi engan veginn staðið
sig í andstöðunni við Davíð Oddsson:
séu litlausir og veikburða og það
þurfi því nýtt og frískt fólk til þess
að nó einhverjum árangri í kosning-
unum í eumar.
Hvernig fer?
Mikil óvissa ríkir um úrslitin.
Stuðningsmenn gömlu borgarfull-
trúanna em yfirleitt mjög bjartsýnir:
segja Sigurjón á grænni grein og
Guðrúnu líklega til að fá „góða
kosningu". Meiri vafi er um þriðja
sætið að þeirra áliti.
Hjá lýðræðiskynslóðinni er hins
vegar ríkjandi það sjónarmið að það
standi jám í járn og geti farið á
hvom veginn sem er. Ef takist að fá'
nógu marga nýja félága til að taka
þátt í forvalinu þá geti Kristín og
hennar stuðningsfólk enn unnið
slaginn.
En það er alls ekki víst að hreinar
línur komi út úr forvalinu. Það em
ýmsir sem hafa verulegar áhyggjur
af slíkri útkomu og vilja því blandað-
an lista. Sumir giska á að slíkir
kjósendur kunni að vera 1-2 hundr-
uð talsins. Þeir gætu ruglað röðinni
vemlega. Forvalið gæti farið þannig,
sagði einn viðmælenda, að niður-
staðan yrði eins konar tilviljun sem
stórir hópar yrðu mjög ósáttir við.
Annar sagði: þetta gæti orðið mjög
óvæntur, jafnvel snarbrjálaður, listi
þar sem allir væm fangar.
Fleira skondið getur gerst í próf-
kjörinu. Kristín gæti þannig, ef hún
nær ekki fyrsta sætinu, hrapað langt
niður eftir listanum þar sem hún mun
fyrst og fremst fá atkvæði í fyrsta
sætið en lítið í önnur.
Hér er ekki rúm til að rekja nánar
forsögu þessara átaka eða tengsl
þeirra við þau átök sem verið hafa í
flokknum undanfarin misseri. En
hitt er rétt að vekja athygli á að
niðurstaðan hlýtur að hafa vemleg
áhrif ó hvom veginn sem kosningin
fer. Það er auðvitað meiriháttar
pólitískur atburður ef Sigurjón tapar
fyrir Kristínu. Það er ekki síður
mikilvæg tilkynning til alþýðu-
bandalagsmanna, í framhaldi af nið-
urstöðu síðasta landsfundar, ef vara-
formanni flokksins verður hafnað
með afgerandi hætti. -ESJ.
AFRAM
Á þessu kjörtímabili hefur Siguröur E. Guömundsson, borgar-
íulltrúi, haldið fram stefnu Alþýðuflokksins í borgarstjórn af
reisn og festu.
Hann hefur flutt þar mörggóð og athyglisverð mál, sem fengið
hafa hljómgrunn. Allir sanngjarnir menn viðurkenna, að þrátt
fyrir mjög þrönga og erfiða stöðu heíur honum tekist að halda
vel á málum flokksins. í próíkjöri Alþýðuílokksins um næstu
helgi er hann, að hinum ólöstuðum, sá frambjóðandi, sem
býr yfir langmestri reynslu og þekkingu á borgarmálum. Án
hennar má flokkurinn ekki vera.
Sigurður er óhræddur við að hafa sjálfstæðar skoðanir og fylg-
ja þeim eftir. Á slíkum manni þurfum við að halda. Vísum því
flokksræðinu á bug.
Munum að fólkið velur
frambjóðandann.
Prófkjörið fer íram laugardaginn 1. febrúar og sunnudaginn 2.
febrúar kl. 13—19.
KJOSUM
REYNSLU
OG
ÞEKKÍNGU
Kjörstaðir verða í lðnó uppi, fyrir þá sem búa vestan Snorra-
brautar, Sigtún við Suðurlandsbraut fyrir þá sem búa austan
Snorrabrautar en vestan Árbæjarhverfis og Breiðholts.
Gerðuberg í Breiðholti fyrir íbúa í Breiðholti og Árbæjarhverfi.
Kosningaskriístofa stuðningsmanna Sigurðar E. Guðmunds-
sonar verður í veitingasalnum í Glæsibæ (uppi). Hún verður
opin báða dagana kl. 10-19. Símar 68-88-70, 71,72, 73 og 74.
☆
Vinsamlegast kjósið snemma og látið kosningaskrifstofuna
vita aí því sem fyrst.
Hafið einnig samband ef einhverra upplýsinga eða aðstoðar
er þörf.
Hvert atkvæði vegur þungt í þessu prófkjöri
Stuðningsmenn.
25. janúar — 2, febrúar
Þú getur gert hörkugóð kaup á Álafoss-útsölunni.
Þar færðu fallegar vörur á einstöku verði:
Fatnað, band, værðarvoðir, gólfteppi, dúka, mottur,
áklæði og gardínur.
Opið alla virka daga frá kl. 13.00 til 18.00,
á laugardögum og sunnudögum frá kl. 10.00 til 18.00.
ÓSA/SÍA