Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Side 13
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
13
Sjóðið
ekki graut
íálpotti!
Sænskir vísindamenn vara
við álmengun likamans
Verið getur að ál hafi þannig áhrif
á mannslíkamann að frekari rann-
sóknir á þeim áhrifum svari spum-
ingum okkar varðandi orsakir elli-
hrömunar.
Og einnig er hugsanlegt að nýhafn-
ar rannsóknir vísindamanna á áli í
mannslíkamanum veiti upplýsingar
um orsakir sjúkdóma sem hingað til
hefur lítið verið vitað um. Þá hafa
menn til dæmis í huga svonefndan
Alzheimers-sjúkdóm, sem einnig
nefnist „senilitet".
Áleitrun
P.O. Ganrot, yfirlæknir við héraðs-
sjúkrahúsið í Örebro í Svíþjóð, en
hann er forstöðumaður sérstakrar
tilraunastofu í efnafræði þar, hefur
nú varið 10 árum í að kanna allt sem
skrifað hefur verið um ál og mun
bráðlega birta grein í því virta,
bandaríska tímariti „Environmental
Health Perspectives“.
Upphaf þessara álrannsókna Gan-
rots var að um miðjan síðasta áratug
urðu nokkur dularfull dauðsföll
meðal nýrnaveikra manna í Svíþjóð.
í ljós kom að blóð þessa fólks hafði
verið hreinsað með „dialysu" og að
það innihélt mikið af áli sem hafði
einnig safnast í heilann.
Eitrunin og áhrif hennar minntu
mjög á það sem venjulega er kallað
„senilitet".
Á þessum árum var vitað um ein
35 þannig „dialys“ tilfelli í Svíþjóð.
Nú hefur þessi blóðhreinsunaraðferð
verið bætt þannig að enginn á að fá
ál í blóðið þótt hann fari í blóð-
hreinsun.
Ál finnst ekki í lifandi vefjum
„Ég undraðist það einnig," sagði
Ganrot í viðtali- „hvers vegna ekk-
ert ál er í lifandi vefjum af neinu
tagi. Það er nóg af áli í umhverfinu
en mjög lítið i vefjum. Þá fór mig að
gruna að efnið samræmdist ekki líf-
rænni þróun.
Jarðskorpan inniheldur um það bil
8%.af áli. Manneskjan hefur alla tíð
lifað í sambýli við ál. Og það er eðli-
legt að örlítið magn af áli sé í líka-
manum. Við fáum frá einu og upp í
tuttugu millígrömm af áli í líkamann
á hverjum sólarhring með matnum'.
En til þess að banvæn eitrun eigi
sér stað þurfa að safnast ein tvö til
sjö millígrömm í heilann. Að öllu
eðlilegu á að vera þar um hálft
millígramm. Það magn eykst sjálf-
sagt eitthvað með aldrinum."
Ekki mikið um rannsóknir
Ganrot kvaðst reikna með því að
fólk safnaði í sig misjafnlega miklu
af áli um ævina. 90% af því áli, sem
berst með einhverju móti í líkamann,
hverfur þaðan aftur. Og þótt eitthvað
safnist fyrir, svo sem í heilanum, þá
þarf miklu lengri tíma en meðalævi
venjulegs manns til að fyrir safnist
banvænn skammtur. „Og trúlega er
það einnig þannig,“ segir Ganrot -
„að aðeins þær frumur sem ekki
endurnýjast, svo sem ýmsar heila-
frumur, skaðast af álinu.“
Rannsóknir, sem gerðar hafa verið
í Kanada, benda til mikillar aukn-
ingar á áli í líkama þeirra sem þjást
af „Altzheimerveiki“ eða „senildem-
ens“. Sá sjúkdómur er reyndar ein-
hver sá venjulegasti því um 5% fólks
deyrúrhonum.
Skortir rannsóknir
Ganrot segir að enn skorti frekari
rannsóknir varðandi áhrif álsins á
líkamann. Hann telur að líffræðing-
ar verði að fara að sinna þessu máli.
Hingað til hafa það helst verið lækn-
Manni stafar víst ekki stórhætta af nútima pottum, pönnum og kastarolum, sem margar eru úr áli - en fólki er þó
ráðlagt að nota ekki ál-áhöld við að sjóða sultu.
Engin hætta mun samfara því að sjóða til dæmis hrísgrjón, „uppstúf ‘ eða sósu i ál-pottum - en ávextir, ber eða
epli geyma ýmsar sýrur sem „draga út“ álið í pottinum.
Hættan af notkun áláhalda í eldhúsi hefur verið könnuð í Svíþjóð - og þaðan koma þessi tilmæli með þessari mynd
sem PKtók.
ar, sálfræðingar eða aðrir sem hafa
kannað ýmsa öldrunarsjúkdóma og
hegðan þeirra sem sinnt hafi málinu.
„Það er erfitt að kanna þetta mál,“
segir Ganrot - „meðal annars vegna
þess að ekki er til neitt geislavirkt
efni sem hentar til að „fylgja" álinu
á leið þess um líkamann og svara
um leið spumingum varðandi sam-
setningu efnisins og efnasambönd
sem verða.
Ganrot segir að hingað til hafi
athuganir hans vakið fleiri spurn-
ingar en svör. Hann spyr meðal
annars hvort ál í umhverfinu valdi
mongólisma og Parkinsonsveiki. Og
hann hefur áhyggjur af því hvaða
áhrif miklar inntökur af lyfjum sem
innihalda ál hafi í för með sér. Þá á
hann við lyf sambærileg við „nov-
alucol" sem gefið er við súrum maga.
„Og,“ spyr Ganrot - „getur ál í pott-
um og pönnum eða í rjómadufti verið
hættulegt? Og hvað gerist þegar
sýrumagn eykst í gróðri jarðar (sök-
um iðnaðarmengunar) og jurtirnar
fá þar með í sig aukið ál?“ -GG
Áður 690. NÚ39Q.
PÓSTSENDUM.
Áður 890. Nú 490.
Áður 690. Nú 390. Ótal-
margt fleira á góðu verði.
HATTABÚÐIN
FRAKKASTÍG13
sími 29560.
OPIÐ TIL KL. 41 DAG
,r
1 J
Enginn
korta-
kostnaður
VfSA
JIS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600