Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 13
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. 13 Sjóðið ekki graut íálpotti! Sænskir vísindamenn vara við álmengun likamans Verið getur að ál hafi þannig áhrif á mannslíkamann að frekari rann- sóknir á þeim áhrifum svari spum- ingum okkar varðandi orsakir elli- hrömunar. Og einnig er hugsanlegt að nýhafn- ar rannsóknir vísindamanna á áli í mannslíkamanum veiti upplýsingar um orsakir sjúkdóma sem hingað til hefur lítið verið vitað um. Þá hafa menn til dæmis í huga svonefndan Alzheimers-sjúkdóm, sem einnig nefnist „senilitet". Áleitrun P.O. Ganrot, yfirlæknir við héraðs- sjúkrahúsið í Örebro í Svíþjóð, en hann er forstöðumaður sérstakrar tilraunastofu í efnafræði þar, hefur nú varið 10 árum í að kanna allt sem skrifað hefur verið um ál og mun bráðlega birta grein í því virta, bandaríska tímariti „Environmental Health Perspectives“. Upphaf þessara álrannsókna Gan- rots var að um miðjan síðasta áratug urðu nokkur dularfull dauðsföll meðal nýrnaveikra manna í Svíþjóð. í ljós kom að blóð þessa fólks hafði verið hreinsað með „dialysu" og að það innihélt mikið af áli sem hafði einnig safnast í heilann. Eitrunin og áhrif hennar minntu mjög á það sem venjulega er kallað „senilitet". Á þessum árum var vitað um ein 35 þannig „dialys“ tilfelli í Svíþjóð. Nú hefur þessi blóðhreinsunaraðferð verið bætt þannig að enginn á að fá ál í blóðið þótt hann fari í blóð- hreinsun. Ál finnst ekki í lifandi vefjum „Ég undraðist það einnig," sagði Ganrot í viðtali- „hvers vegna ekk- ert ál er í lifandi vefjum af neinu tagi. Það er nóg af áli í umhverfinu en mjög lítið i vefjum. Þá fór mig að gruna að efnið samræmdist ekki líf- rænni þróun. Jarðskorpan inniheldur um það bil 8%.af áli. Manneskjan hefur alla tíð lifað í sambýli við ál. Og það er eðli- legt að örlítið magn af áli sé í líka- manum. Við fáum frá einu og upp í tuttugu millígrömm af áli í líkamann á hverjum sólarhring með matnum'. En til þess að banvæn eitrun eigi sér stað þurfa að safnast ein tvö til sjö millígrömm í heilann. Að öllu eðlilegu á að vera þar um hálft millígramm. Það magn eykst sjálf- sagt eitthvað með aldrinum." Ekki mikið um rannsóknir Ganrot kvaðst reikna með því að fólk safnaði í sig misjafnlega miklu af áli um ævina. 90% af því áli, sem berst með einhverju móti í líkamann, hverfur þaðan aftur. Og þótt eitthvað safnist fyrir, svo sem í heilanum, þá þarf miklu lengri tíma en meðalævi venjulegs manns til að fyrir safnist banvænn skammtur. „Og trúlega er það einnig þannig,“ segir Ganrot - „að aðeins þær frumur sem ekki endurnýjast, svo sem ýmsar heila- frumur, skaðast af álinu.“ Rannsóknir, sem gerðar hafa verið í Kanada, benda til mikillar aukn- ingar á áli í líkama þeirra sem þjást af „Altzheimerveiki“ eða „senildem- ens“. Sá sjúkdómur er reyndar ein- hver sá venjulegasti því um 5% fólks deyrúrhonum. Skortir rannsóknir Ganrot segir að enn skorti frekari rannsóknir varðandi áhrif álsins á líkamann. Hann telur að líffræðing- ar verði að fara að sinna þessu máli. Hingað til hafa það helst verið lækn- Manni stafar víst ekki stórhætta af nútima pottum, pönnum og kastarolum, sem margar eru úr áli - en fólki er þó ráðlagt að nota ekki ál-áhöld við að sjóða sultu. Engin hætta mun samfara því að sjóða til dæmis hrísgrjón, „uppstúf ‘ eða sósu i ál-pottum - en ávextir, ber eða epli geyma ýmsar sýrur sem „draga út“ álið í pottinum. Hættan af notkun áláhalda í eldhúsi hefur verið könnuð í Svíþjóð - og þaðan koma þessi tilmæli með þessari mynd sem PKtók. ar, sálfræðingar eða aðrir sem hafa kannað ýmsa öldrunarsjúkdóma og hegðan þeirra sem sinnt hafi málinu. „Það er erfitt að kanna þetta mál,“ segir Ganrot - „meðal annars vegna þess að ekki er til neitt geislavirkt efni sem hentar til að „fylgja" álinu á leið þess um líkamann og svara um leið spumingum varðandi sam- setningu efnisins og efnasambönd sem verða. Ganrot segir að hingað til hafi athuganir hans vakið fleiri spurn- ingar en svör. Hann spyr meðal annars hvort ál í umhverfinu valdi mongólisma og Parkinsonsveiki. Og hann hefur áhyggjur af því hvaða áhrif miklar inntökur af lyfjum sem innihalda ál hafi í för með sér. Þá á hann við lyf sambærileg við „nov- alucol" sem gefið er við súrum maga. „Og,“ spyr Ganrot - „getur ál í pott- um og pönnum eða í rjómadufti verið hættulegt? Og hvað gerist þegar sýrumagn eykst í gróðri jarðar (sök- um iðnaðarmengunar) og jurtirnar fá þar með í sig aukið ál?“ -GG Áður 690. NÚ39Q. PÓSTSENDUM. Áður 890. Nú 490. Áður 690. Nú 390. Ótal- margt fleira á góðu verði. HATTABÚÐIN FRAKKASTÍG13 sími 29560. OPIÐ TIL KL. 41 DAG ,r 1 J Enginn korta- kostnaður VfSA JIS Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.