Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Side 15
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. 15 OFFITA ERFIST Feitir foreldrar eignast feit böm. Hvort einstaklingar verða grann- vaxnir eða sverir á þverveginn ákvarðast í ríkum mæli af erfðaeig- inleikum. Þetta eru í stórum dráttum niður- stöður rannsókna dr. T.I.A. Sörens- en, yfirlæknis við Hvidovre-sjúkra- húsið í Danmörku. Hafa þær nýverið birst í The New England Journal of Medecine og vakið heimsathygli innan læknastéttarinnar. í samvinnu við bandaríska lækna rannsakaði Sörensen 540 einstakl- inga sem höfðu verið ættleiddir og bar vigt þeirra og þróun þyngdar saman við þyngd bæði fóstur- og raunverulegra foreldra. Niðurstöð- urnar urðu svo gott sem á einn veg mörgum til undrunar: Skýr samsvörun var á milli þyngd- ar afkvæmanna og raunvemlegra foreldra en engin tengsl var að finna við fósturforeldrana í þessu sam- bandi. Sörensen komst að því að ef hjón, sem bæði eiga við offituvanda- mál að stríða, eignast fimm börn þá verða fjögur þeirra feit. Hins vegar verða aðeins 14 prósent afkvæma foreldra, sem ekki eiga við offitu- vandamál að stríða, of feit. Þá komst Sörensen einnig að því að offita hefur slæm áhrif á heilsuna. -EIR Þeim franska Pierre Cardin leist sérdeilis vel á sovésku frúna Raisu Gorbatsjov. jpSIklæðnaö? Tvöhundruð ogáttatíu milljón stykki, takk!“ I helgarblaði DV birtist á dögun- um frásögn af heimsókn Sovét- mannsins Gorbatsjovs til Frakk- lands og uppnáminu sem fylgdi í lqölfarið varðandi eiginkonuna Raisu. Hún reyndist ólík öllum öðrum fyrrverandi eiginkonum sovéskra ráðamanna og heimsótti meðal annars helstu tískukónga Parísarborgar. Yves Saint Laurent og Pierre Cardin vöktu mikla hrifo- ingu hjá frúnni og hún bauð þeim samstundis í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna á þessu árl Báðir þökkuðu fyrir sig með virktum og í greininni spáði DV því að þeim hagsýna Cardin myndi án efa takast að selja Rússum allt mögulegt' merkt Pieire Cardin - og það áður en þeir næðu að snúa sér við eða depla auga. Enda maðurinn upp- haflega endurskoðandi sem síðar lagði fyrir sig hönnun af öllu mögu- legu tagi - frá saumnálum og fatn- aði upp í þotur og tölvutækni. Svertan var varla þurr á DV-ein- takinu þegar nýjasta hefti News- week barst hér inn á borð. Þar segir frá því að Pierre Cardin hafi nú þegar - áður en honum gafet tími til heimsóknarinnar - selt til Sovétr ríkjanna tuttugu og eina fiitalmu sem framleidd verður í þrjátíu og tveimur sovéskum verksmiðjum. „Draumurinn er að klæða alla í Sovét, þessar tvö hundruð og áttatíu milljónir, og mér telst svo til að okkur muni auðveldlega takast að klæða fimm milljónir á næstu tveimur árum“ Ekki er nokkur vafi á að Pierre Cardin telst rétt til og tekst ætlunarverkið eins og allt annað sem hann hefur áður tekið sér fyrir hendur. Hann bætir við að sér hafi eklti til hugar komið að hræða landsmenn með hreinrækt- uðum Parísarstíl í fatnaðinum, þama verður það klassíkin sem gildir. Og þá höfom við það, félagar! -baj. Aftur skihim við góðum árangri beint til faiþeganna Samvinnuferðir-Landsýn braut blað í íslenskri viðskiptasögu fyrir ári síðan og endurgreiddi farþegum sínum á árinu 1984 hluta af ferðakostnaði þeirra. Ástæðan var einföld; mun betri þátttaka í hópferðum sumarsins, og um leið betri afkoma en bjartsýnustu menn gerðu ráð fyrir. Þeir sem mynduðu umframtekjumar, farþegamir sjálfir, vom látnir njóta góðs af. Yrnsir létu hvarfla að sér að þama væri um að ræða einnota auglýsingabrellu en aðrir veltu því fyrir sér hvort vænta mætti framhalds á endurgreiðslum og þær yrðu jafnvel árviss viðburður hjá Samvinnuferðum-Landsýn. Við getum strax fuliyrt að svona leiðréttingar á verðlagningu verði aldrei fastur liður í rekstrinum, en spumingunni um það hvort endurgreiðsla væri hugsanlega á dagskránni í ár, svömm við játandi. Okkur er það sönn ánægja að geta jjakkað frábært samstarf við íslenska ferðalanga á síðasta ári með því að endurgreiða annað árið í röð! Rekstrarhagnaður Samvinnuferða-Landsýnar af árinu 1985 er umtalsverður, eins og á árinu þar á undan. Stjóm fyrirtækisins, sem skipuð er fulltrúum allra stærstu launþegasamtaka landsins, tók því þá ákvörðun að endurgreiða hópferðafarþegum síðasta árs samtals um 6 milljónir króna, eða 1.200 kr. fyrir hvem fullorðinn farþega og kr. 600 fyrir böm. Þessi ákvörðun er í fullu samræmi við hinar félagslegu forsendur ferðaskrifstofunnar og það grundvallarmarkmið okkar að tryggja landsmönnum öllum sem ódýrastar orlofsferðir til útlanda. nýtum þessa fjármuni hinsvegar ekki aðeins til endurgreiðslu. Þeir sem taka þátt í hópferðum okkar á þessu ári munu einnig njóta góðs af hagstæðri afkomu, vegna þess að hún hefur gert okkur kleift að staðgreiða fyrir gistirými á áfangastöðum okkar, og þannig ná fram verulegri verðlækkun umfram það sem annars hefði orðið. Við nýtum því þetta fé á tvöfaldan hátt í þágu viðskiptavina okkar- með lægra verði 1986 og með endurgreiðslu til farþega 1985. Form endurgreiðslunnar er með þeim hætti að allir þátttakendur í hópferðum til Rimini, Grikklands, Rhodos, sumarhúsa í Danmörku, sæluhúsa í Hollandi og Dubrovnik í Júgóslavíu frá aukaafslátt á ferðum sínum í ár sem nemur endurgreiðsluupphæðinni. Ef farjjegum síðasta árs gefst ekki tækifæri til utanlandsferða í ár fá þeir sömu upphæð greidda í reiðufé á tímabilinu frá 1. september til 31. desember 1986. Við munum senda öllum þátttakendum í ofangreindum hópferðum bréf með nánari upplýsingum um endurgreiðsluna. Það er okkur hjá Samvinnuferðum-Landsýn sérstök ánægja að undirstrika á þennan hátt að hagsmunir okkar og viðskiptavina okkar, sem flestir eru reyndar eigendur fyrirtækisins, fara saman. Við vonumst til að viðleitnin mælistvelfyrir. framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýnar Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 & 23727 ORLOFSHÚS Á SPÁNI FYRIRTÆKI-STARFSMANNAFÉLÖG Frekari upplýsingar á skrifstofunni Við komum til ykkar og kynnum þennan nýja að Laugavegi 28,2. hæð. mttgnlelka. UMBOÐSSKRIFSTOFAN - Suomi Sun Spain - s. 622675. JINGAÞJÓNUSTAN / SlA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.