Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Page 19
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. 19 Alfheiður Steinþórsdóttir. ágætlega þótt honum séu ekki gefhar neinar fyrirskipanir eða línur að fara eftir.“ I prófinu er víða komið við. DV-maðurinn er sagður þola gagn- rýni sæmilega, enda hafi hann trú á sjálfum sér og beri enga virðingu fyrir valdsmönnum eða þeim sem teljist hærra settir en hann. „Ykkar maður hefur gaman af hörðum umræðum," segir prófdóm- arinn. „Kannski er hann stjóm- málamaður - ef ekki í raun, þá í hjarta sínu,“ segir dómarinn og spyr síðan utan dagskrár: („Er tilrauna- dýr DV kannski stjómmálamaður í vemnni? Sé svo þá hefur hann góða hæfileika sem slíkur - en jafhframt slæman galla: hann hefur takmark- aðan áhuga á öðm fólki!“). Samstarfshæfileiki Tilraunadýr DV komst eiginlega í hann krappan þegar kom að þeim hluta prófsins sem fjallaði um sam- starfshæfileika. Prófdómarinn hafði fundið það út að DV-maðurinn væri sérlega sjálfstæður persónuleiki og gengi best að starfa einn og án af- skipta yfirboðara eða samstarfs- manna. En þegar samstarfshæfileik- inn var prófaður sérstaklega kom í ljós, að hann var umtalsverður. „Maðurinn er tilfinninganæmur, þráir nánd við annað fólk, þótt hann vilji fyrst og fremst vera „hann sjálf- ur“. Trúlegast er að honum láti vel að leika ýms hlutverk," sagði dómar- inn. „Hann hefur næma kímnigáfu. Og sú gáfa er afl í sjálfu sér. Maður ykkar nær athygli þegar hann vill það við hafa, en er oftast ánægður einn og „með sjálfum sér“. Hann vill helst þekkja aðra vel áður en hann opnar sig fyrir þeim. DV-maðurinn þolir vel ósætti og tekst á við streitu hvers dags án óþæginda. Og hann þolir vel að hafa mikið að gera, enda er heilsan góð.“ - Þetta síðasta varðandi heilsuna fannst DV-manninum merkileg at- hugasemd, því engin læknisskoðun átti sér stað. „Maðurinn heldur lengst af ró sinni. Hann gleymir ekki auðveld- lega sé gert á hluta hans. Og skaps- munimir eru stundum sveiflukennd- Niðurstaða Prófdómarinn dregur síðan álykt- anir af frammistöðu þess sem prófið tekur - og setur þær þannig fram að vinnuveitandi eða sá sem ætlar að ráða viðkomandi til þýðingarmikilla starfa á að geta myndað sér skoðun á manninum eða gert sér mynd af þeim persónuleika sem hann ætlar að trúa fyrir mikilsverðu starfi. Við bárum hugmyndina um per- sónuleikapróf undir ýmsa sálfræð- inga, ráðningarstjóra og aðra sem skipta sér af mannaráðningum. Sumir ráðningarstjóranna vildu ekkert af slíkum prófum vita, sögðu þau aðeins „söluvaming sálfræð- inga“, en aðrir héldu þvi fram að svona próf væru bara af hinu góða. - Við setjum ekki okkar umsækj- endur í persónuleikapróf, sagði sál- fræðingur einn sem starfar fyrir þekkta ráðningarþjónustu í Reykja- vík. - En við hæfnisprófum fólkið, teljum það árangursríkara. En raunar telst persónuleikaprófið jafnframt hæfnispróf. Ráðningar- stjóri einhvers stærsta fyrirtækisins á íslandi (auk hins opinbera) sagði að persónuleikaprófin væru það sem koma skyldi. Og trúlega er eitthvað til í því - ríkisstofiianir em að minnsta kosti famar að nýta sér þjónustu sálfræðinga og setja um- sækjendur í persónuleikapróf. -GG ilýtt númer Frúogmeð l.febrúar höfum víð nýtt símanúmer, 6 er bætt framan við gamla númerið. Dreifingarmiðstöö matjurta Síðumúla34 Sími 681600 Þarftu að se/ja bfí? Bílar óskast SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN. SMÁAUGLÝSINGADEILD - ÞVERHOLT111 - SÍMI27022. Bílar til sölu I NÝTT I umboð á íslandi, Skeifunni 8 Sími 68-88-50 í ★ ★ ★ i I Dráttarbeisli VARAHLUTAVERSLUNIN á Volvo 240/740, Mazda, Daihatsu og 40 aðrar gerðir. Original festingar með bolturn og öllu. Auðveld og fljótieg ásetn- ing fyrir ieikmann. SIÐUMULA 3 BMll ^2^37273 Sendum um altt land. ★★-K-H-H-K-k-it-ic-Wr-lt-K-k-fc-K-tc-Mc-fc-lc.* 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.