Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Qupperneq 35
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. 35 Þetta eru öndvegis súlur Það gladdi hjarta mitt þegar ég frétti að fyrir dyrum stæði að reisa öndvegissúlur við borgarmörk Reykjavíkur. Mér datt strax í hug að nú væru þjóðlega þenkjandi menn sestir að á vísum stað. Eg sá fyrir mér þá tíð að þjóðrækni og góðir siðir yrðu hafðir í fyrirrúmi í borginni okkar, íhaldsmeirihlut- inn félli eins og skotinn fugl og Davíð færi að selja blöð niðri á Torgi, sér til lífsframfæris, því að í þessu nýja þjóðfélagi yrði réttlæt- inu fullnægt. En allir draumar og öll gleði var á burt þegar ég ók fram hjá „önd- vegissúlunum". Plastdrasl! Þrí- hyrnd neonljósaauglýsing! Öndvegi Orðið öndvegi (öndugi kemur einnig fyrir í fornu máli) þýðir hásæti. Um uppruna orðsins er margt á huldu og deildar meining- ar. Heyrt hef ég þá skýringu að orðið hafi upphaflega verið notað yfir þann stað sem var öndverður við hinn æðsta, merkt hinn óæðri stað í húsi, en hafi síðan fengið andstæða merkingu og farið að merkja sjálft hásætið. Þá var einn- ig farið að tala um óæðra öndvegi. Öndvegissúlur hafa menn haft í öndvegi sínu, ef til vill beggja vegna hásætisins. Sá var siður fornmanna að kasta súlum í sjó og láta vísa sér til lands. Þannig segir í Landnámu um hingaðkomu Ingólfs: „Þá er Ingólfr sá ísland, skaut hann fyrir borð öndvegissúlum sínum til heilla. Hann mælti svó fyrir, at hann skyldi þar byggja, er súlurnar kæmi á land.“ Ekki nennti Ingólfur að leita spýtna sinna sjálfur en sendi þræl- ana, Vífil og Karla. Þeir fundu trén rekin „við Arnarhvál fyrir neðan Heiði.“ . Þar byggði Ingólfur bæ sinn og í Landnámu segir: „Hann bjó í Reykjavík. Þar eru enn öndvegiss- úlur þær í eldhúsi." Nú er fyrir löngu búið að farga súlunum góðu og mætti það vera áminning þeim sem aldrei geta séð gömul hús í friði. Hugsið ykkur ef súlurnar væru enn til og við þyrft- um ekki að berja augum plast- draslið við borgarmörkin. Af þrælunum Vífii og Karla er það að segja að Vífill byggði bæ að Vífilstóttum en Karla leist illa á Reykjavík. Varð að orði: „Til ills fórum vér um góð héruð, er vér skulum byggja útnes þetta.“ Að svo mæltu varð hann fyrstur manna til að flýja Reykjavík, sem reyndar er stundum kölluð Reykjarvík. Öndvegi sem forskeyti Orðið öndvegi hefur einnig eins og öllum er kunnugt fengið merk- inguna ágætis- og er þá notað sem forliður og haft í eignarfalli. Dæmi um þetta eru orðin öndvegistíð, öndvegisbók, öndvegisverk o.s.frv. Og nú nýlega hefur nýtt skotið upp kollinum þegar Útvegsbank- inn auglýsir innlánsreikning sinn undir nafninu öndvegisreikningur. Og í framhaldi af því... En hverfum frá öndvegi og Út- vegsbanka og látum frjáls hug- renningatengsl færa okkur ný viðfangsefni upp í hendurnar. Og þá verða fyrir okkur orðin rán, að ræna, þjófur og að stela. Rán og ræna eru skyld orð. Sögn- in hefur myndast af nafnorðinu með i-hljóðvarpi, (á) (æ). Bæði þessi orð koma fyrir i öðrum Norður- landamálum, til dæmis i dönsku, ran og rane. Af því að þessir orð- stofnar koma ekki fyrir í öðrum málum kallast þau samnorræn. Öðru máli gegnir um stela og þjófur. Sömu stofnar koma fyrir í dönsku (stjæle, tyv), ensku (steal, thief) og þýsku (stehlen, dieb). Bæði orðin rekja rætur sínar til gotnesku. Þar eð þau koma fyrir í öllum germönskum málum kallast þau samgermönsk. En ekki eru öll kurl komin til grafar. Samkvæmt upprunaskýr- ingu í ensk-enskri orðabók gæti stela verið komið af gríska orðinu sterein(= svipta, stela). En um það ætla ég ekki að hafa nein orð. Sagnirnar að stela og ræna eru samheiti þótt þær þýði ekki ná- kvæmlega það sama. Til að mynda stelur enginn banka þótt sumir víli ekki fyrir sér að ræna þá. í Orðabók Menningarsjóðs er munurinn skýrður á þann veg að stel'a merki leynilegan verknað en þegar rænt er þá fylgi ofbeldi. Frá því segir i Egilssögu að Egill r Islensk tunga Eiríkur Brynjólfsson sigldi hafskipi um strendur Noregs og gerði strandhögg. Þeir heim- sóttu meðal annars Kúrland og áttu viðskipti við Kúri sem voru tiltölulega heiðarlegir útvegs- bændur þar um slóðir. Þeir ætluðu að því loknu að ræna Kúri en voru teknir fastir og hafðir í haldi yfir nótt því Kúrir vildu frekar drepa þá í björtu og sjá þá þjást. En Agli héldu engin bönd, hann nagaði þau sundur,. frelsaði aðra menn úr prí- sund og fór á brott eftir að hafa látið greipar sópa. Á leið til skips fékk hann sam- viskubit og sagði: „Þessi ferð er allill og eigi hermannleg. Vér höf- um stolið fé bónda, svo að hann veit eigi til. Skal oss aldregi þá. skömm henda. Förum nú aftur til bæjarins og látum þá vita, hvað titter." Hetjan snýst síðan á hæli, hleyp- ur til bæjarins, kveikir í húsinu, heggur þá sem reyna að flýja og brennir alla inni. Hverfur siðan til skips með hreina samvisku, hann hafði hreinsað sig af skömminni, hann hafði rænt en ekki stolið. Ég læt síðan lesendum eftir að dæma hvaða aðferð þeir menn nota nú á dögum sem mestu stela. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Félagsmálastofnun Reykjavíkur óskar eftir að taka húsnæði á ieigu fyrir unglingastarfsemi. Umerað ræða: 1. Skrifstofuhúsnæði þar sem koma mætti fyrir 3 skrifstofuherbergjum, aðstöðu fyrir ritara og bið- stofu, auk kaffistofu, salernis og sameiginlegs rýmis. 2. Ibúðir eða skrifstofuhúsnæði, ca 100m2, með einu stóru herbergi og tveim minni auk eldhúss og salernis. Hvort tveggja þarf að vera staðsett í mið- eða vestur- bæ Reykjavíkur. Upplýsingar í síma 621611 frá kl. 13.00-15.00. Kerfisfræðingur Óskum að ráða kerfisfræðing til starfa í Skýrsluvéla- deild. Starfið felst í vinnu við nýja IBM 4361 tölvusam- stæðu, notkun VM stýrikerfis, CICS sívinnslukerfi, VSAM skráavinnslu og forritunarmálin COBOL, CPG og RPG II. Auk þess erum við með nokkrar PC-tölvur. Jafnframt tökum við í notkun á næstunni SOL/DS gagnagrunn og fjórðukynslóðarmálið CSP. Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá Starfs- mannahaldi, Ármúla 3, sími 681 411. SAMVINNU TRYGGINGAR ARMÚLA3 SÍMI81411 Seljum I dag Saab 99 GL árg. 1980, 4ra dyra, rauður, beinskiptur, 4ra gíra, ek- inn 90 þús. km, mjög góður og fallegur bill, skipti á ódýrari mögu- leg. Verð kr. 285.000,- Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra, dökkblár, sjálfskiptur, ekinn 61 þús. km. Góðurbill. Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra, Ijósblár, sjálfskiptur, ekinn 61 þús. km, mjög góður bill, skipti á ódýr- ari möguleg. Verð 430.000,- Saab 900 GL árg. 1983, 4ra dyra, Ijósdrapp, beinskiptur, 4ra gíra, ekinn 56 þús. km. Góður bill. Verð kr. 485.000,- Saab 900 GLE árg. 1982, 4ra dyra, blágrár, sjálfsk. + vökvastýri, topplúga, litað gler, rafmagnslæs- ing o.fl. Verð kr. 490.000,- Saab 99 GL árg. 1983, 4ra dyra, Ijósdrapp, beinskiptur, 5 gira, ekinn SOþús. km. Góðurbill. Opið laugardag kJ_ 13—17. TÖGGURHF. UMBOÐ FYRIR SAAB OC SEAT BÍLDSHÖFÐA16, SlMAR 81530-83104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.