Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Side 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 Stjórnmál Stjórnmál „Guðmundur varð út- undan í skotbardaganum” —segir Ásmundur Stefánsson um afhroð Guðmundar Þ Jónssonar íforvali Alþýðubandalagsins „Það er vissulega ósigur að falla þetta langt niður eins og Guð- mundur Þ. Jónssson gerði í for- valinu.,“ sagði Ásmundur Stefáns- som, forseti ASÍ, í viðtali við DV. Hann studdi ásamt öðrum forystu- mönnum innan verkalýðshreyfing- arinnar Guðmund Þ. Jónsson borg- arfulltrúa í þriðja sæti í forvali Alþýðubandalagsins. Guðmundur féll hins vegar niður í 12. sæti. „í þessu forvali var slegist hart í djúpum skotgröfum. Ég held að Guðmundur hafi orðið út undan í þessum skotbardaga. Þá voru margir sem stefndu í þriðja sætiö þannig að sóknin í það sæti var mjög hörð. Það er einnig rétt að benda á að einn úr verkalýðshreyfingunni, Tryggvi Þór Aðalsteinsson, komst í fimmta sætið í forvalinu. Svo er Sigurjón Pétursson ekki með öllu ókunnur verkalýsðmálum,“ - Var verkalýðsforystan ekki mótfallin framboði Tryggva? „Nei, alls ekki. Við mæltum reyndar með Guðmundi í þriðja sætið. Og ég tel að flestir, sem kusu Guðmund, hafi kosið Tryggva í íjórða eða fimmta. Ég hefði kosið að þessi listi hefði litið öðruvísi út. Þetta er samt niðurstaðan og ég óska honum framgangs í baráttunni við meiri- hlutann í borgarstjóm," sagði Ásmundur. APH Ásmundur Stefánsson, forseti Al- þýðusambands íslands. „Reglurnar um forvalið hæpnar” — segirGuðmundurÞ Jónsson „Ég hef engar ákveðnar skýring- ar á þessu. Mér finnst samt regl- urnar um forvalið vera nokkuð hæpnar. Það fór greinilega fram smölun fyrir forvalið. Á nokkrum dögum gengu um 450 manns í flokkinn, að megin hluta skóla- krakkar. Það er engin trygging fyrir því að þetta fólk eigi eftir að starfa eða styðja flokkinn," sagði Guðmundur Þ. Jónsson, núverandi borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins, sem fór heldur illa út úr forval- inu. Hann féll úr íjórða sæti niður í 12. sæti. Setu hans í borgarstjórn er því greinilega lokið að sinni. Hann hefur setið þar í ein 8 ár. „ Þetta voru reglur sem voru samþykktar fyrir forvalið og lítið við því að segja núna. En niður- stöðurnar eru greinilega afleiðing af þeím. Eldri félagar taka ekki mjög virkan þátt í kosningunni og úrslitin ráðast því af þessu fólki sem smalað var í flokkinn á síðustu stundu. Og það þykir mér nokkuð valtfylgi.“ - Er þetta ekki ósigur fyrir verka- lýðsforystuna sem studdi þig? „Ég sé ekki ástæðu til að túlka niðurstöðumar á þann veg. í þess- um málum skiptast alltaf á skin og skúrir,“ sagði Guðmundur. APH Guðmundur Þ. Jónsson, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins, sem féll niður í 12 sæti í forvali í Reykja- vík. Stjórnmál Sigurður E. Guðmundsson, borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins, sem nú féll íprófkjöri. Ég neita því ekki að ég var svolítið skotinn i Bryndísi í öðru sætinu, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins. „Heff haft annað við tímann að gera” —segir Jon Baldvin um ummæli Sigurðar L Guðmundssonar Sigurður E. Guðmundsson, borgar- fulltrúi sem féll í prófkjöri Alþýðu- flokksins, er gramur út í flokksfor- ystuna í Alþýðuflokknum og segir að hún hafi unnið gegn sér leynt og ljóst allt síðasta ár. „Ef hann á við mig með orðinu flokksforysta þá hef ég haft annað við tímann að gera,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður flokks- ins, er þessi ummæli voru borin undir hann. „Afskipti mín af prófkjörinu voru þau eina að hvetja menn til þátttöku og gefa kost á sér til þess að kjósend- ur hefðu eitthvert val. Ég neita því hins vegar ekki að ég var svolítið skotinn í Bryndísi í öðru sætinu. Hennar framboð var, eins og Sigurð- ur veit, ekki stefnt gegn honum,“ sagði Jón Baldvin. - APH I dag mælir Dagfari___I dag mælir Dagfari___Idagmælir Dagfari Eftir því sem fleiri skoðanakannan- ir eru gerðar um úrslit borgar- stjórnarkosninganna í vor fjölgar borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks- ins. Nú sýna síðustu kannanir að Sjálfstæðisflokkurinn fengi þrettán fulltrúa af þeim fimmtán sem skipa borgarstjórnina. Sennilega fer íhaldið að sjá eftir því að hafa lagt til að borgarfulltrúum verði fækk- að eftir næstu kosningar. Annars hefði allur listinn komist að! Þetta sívaxandi fylgi er auðvitað Davíð borgarstjóra að þakka. Sjálf- ur getur Davíð þakkað söngrödd sinni og sviðsframkomu, enda er talið að hann hafl bætt við sig nokkur þúsund atkvæðum eftir sjónvarpsþáttinn Á líðandi stundu. Það er nefnilega áhrifameira í pól- itíkinni að syngja sig inn í hjörtu kjósenda heldur en að segja eitt- hvað af viti. Það tekur enginn eftir því hvort sem er. Ekki er þar með sagt að Davíð segi aldrei neitt af viti. Það kemur áreiðanlega fyrir og sögur herma að hann hafi að minnsta kosti allt vit fyrir öðrum borgarfulltrúum. Er nú svo komið að Reykvíkingar hafa litla sem enga hugmynd um aðra frambjóðendur eða borgar- Menntað einveldi fulltrúa og hirða ekki um að leggja nöfn þeirra á minnið. Davíð ræður. Ef lagður er hornsteinn í nýja byggingu mætir Davíð. Ef bridge- hátíð er opnuð spilar Davið fyrsta spilinu. Ef nýjum útvarpsþætti er hleypt af stokkunum segir Davíð fyrsta brandarann. Ef nýtt almenn- ingssalerni er vígt, kastar Davíð. í siðustu viku var haldinn aðal- fundur i fulltrúaráði sjálfstæðis- félaganna. Þar flutti Davíð að sjálf- sögðu aðalræðuna. Er það ekki í frásögur færandi, heldur hitt hvað hann sagði í ræðunni. Borgarstjór- inn fór nokkrum orðum um vænt- anlegar kosningar og stjórnmála- ástandið yfirleitt pg komst að lok- um að þeirri niðurstöðu að próf- kosningar væru til óþurftar. Lagði hann beinlínis til að Sjálfstæðis- flokkurinn legði þennan óvana niður og raðaði á framboðslistann eins og hentaði. Það er að segja eins og Davíð hentaði. Almennt hafa flokkarnir talið sér til tekna að efna til prófkosninga. Þannig hafa þeir höfðað til almenn- rar þátttöku og leyft fylgismönnum sinum að halda að þeir ráði ein- hveiju í flokknum. Prófkosningar hafa sem sé verið vottur af lýðræði sem að öðru jöfnu hefur átt i vök að veijast. Ef miðað er við borgar- stjórnarmeirihlutann hefur lýð- ræðið verið takmarkað við þaó að borgarfúlltrúar ihaldsins hafa feng- ið að rétta upp höndina þegar Davíð hefur gefið merki. Þetta virðist hafa gefist vel. Að minnsta kosti hefur Sjálfstæðisflokkurinn aldrei notið slíks kjörfylgis sém nú, sam- anber síðustu skoðanakönnun. Einu leifarnar af lýðræðinu, sem snúa að hinum almenna flokks- manni, eru málamyndaprófkosn- ingar þar sem Davíð borgarstjóri fær rússneska kosningu hvort sem er. Til hvers ættu menn að vera að púkka upp á svona húmbúgg, sem skiptir þar að auki engu máli eftir að listinn nær allur kosningu og vel það? Það er auðvitað alveg rétt hjá Davíð að nú er kominn tími til að leggja niður prófkosningarnar. Þar með þurfa menn ekki lengur að vera að þvælast með eitthvert lýð- ræði sem breytir engu til eða frá í borg Davíðs. Spurningin er jafnvel sú hvort borgarstjórnarkosning- arnar eru ekki sjálfar óþarfar þegar í ljós kemur að reykvískir kjósend- ur hafa ekki áhuga á neinum lista nema þeim sem Davið skipar. Borgarbúar munu þá búa við nokkurs konar menntað einveldi sem hentar vel í samfélagi þar sem aðeins einn maður er frambærileg- ur og er sjálfúr á móti kosningum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.