Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 5
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Skólakrökkum smalað Bæði Sigurjón og Guðmundur Þ. hafa bent á það að reglur forvalsins séu hæpnar. Það sem þeir eiga við í þessu sambandi er sú staðreynd að hlaupið var um allar jarðir og fólki smalað í flokkinn á siðustu stundu. „ Það var yfirgengileg smölun. Aðal- lega var smalað saman skólakrökk- um og þeim rétt blað í hendur sem sagði þeim hvernig og hverja ætti að kjósa," segir einn sem ekki er sáttur við reglur forvalsins. Sagt er að allt að 450 nýir félagar hafi látið skrá sig í flokkinn síðustu daga fyrir forvalið. 1 þessu sambandi er Hamra- hlíðarskólinn nefndur. Þar gekk lýðræðiskynslóðin rösklega til verks. Það hefur einnig vakið athygli að Skúli komst í sjötta sætið. Hugsanleg skýring á því er að hann er kennari í Hamrahlíð og sagður vinsæll. Þó að sumir segi að þessir nýju félagar séu aðallega úr hópi skóla- krakka benda aðrir á að þeir hafi komið úr öllum áttum. Gagnrýnis- raddir benda einnig á að þetta nýja fólk hafi aðeins látið skrá sig til að kjósa í forvalinu og eigi ekki eftir að styðja flokkinn í nánustu framtíð. Ágætis blanda Flestir viðmælendur DV er á því að væntanlegur listi sé ágætis blanda þeirra rótgrónu og þeirra sem vilja róttækar breytingar. Síðan er bara að sjá hvemig til tekst í baráttunni við hinn illskeytta meirihluta sem nú ræður ríkjum í borgarstjóm. - APH kemur í ljós þegar niðurstöður for- valsins em kannaðar. Það fyrsta sem vekur athygli er sú staðreynd að Sigurjón Pétursson, sem verið hefur oddviti Alþýðubandalagsins í borg- arstjóm, rétt mer það að komast í fyrsta sætið. Hann hefur aðeins 43 Skarphéðinsson og Skúli Thorodd- sen. Þá er Tryggvi Þór Aðalsteinsson einnig hallur undir þessa kynslóð þrátt fyrir stuðning hans við Sigur- jón í fyrsta sætið. Staða Sigurjóns er því ekki mjög sterk eftir þetta forval og ekki úr eiginkona Gísla B. Björnssonar sem var aðalsmali Siguijóns. Þáttur össurar Það vekur einnig athygli að það munar aðeins 16 atkvæðum á Krist- ínu og Sigurjóni 1 fyrsta sætinu. En hver sem skýringin kann að vera er ljóst að þarna hefur lýðræðiskyn- slóðinni orðið á mistök. Verkalýðshreyfingin hlýddi ekki kalli Þá þykir mörgum hlutur verka- Er Siguijón fangi lýðræðiskynslóðarinnar í Alþýðubandalaginu? Hér dansar hann með stæl á þorrablóti félagsmanna í Reykjavík. Bak við hann má greina helsta keppinaut hans, Kristinu Á. Ólafsdóttur. Össur Skarphéðinsson, rit- stjóri Þjóðviljans er til hægri, en á milli þeirra er Guðrún Ágústsdóttir, ekki siður í sveiflu en Siguijón. DV-myndGVA Sigurjon fangi lýðræðiskynslóðarinnar? Það hefur aldrei verið barist eins hart og gert var fyrir forval Al- þýðubandalagsins sem fram fór nú um helgina. Þar áttust við tvær fylk- ingar innan flokksins. Annars vegar hinir gömlu og rótgrónu félagar sem oftast ganga undir nafninu flokks- eigendur. Hins vegar barðist svoköll- uð lýðræðiskynslóð. Hún hefur látið allófriðlega undanfarið og vill að gerðar verði gagngerar breytingar á flokknum og til þess að það takist verði að skipta um forystu í borgar- stjórn. Sigurjón fangi lýðræðiskyn- slóðarinnar Það er ýmislegt athyglisvert sem prósent fylgi á bak við sig í fyrsta sæti. Þetta þykir ekki mikið þegar höfð er í huga fyrrverandi staða hans innan borgarstjómar. „ Siguijón rétt slapp í fyrsta sætið og það glansar ekki mikið af honum þar,“ sagði einn viðmælandi DV. Annar sagði að það væri í raun vafa- samt af Sigurjóni að þyggja fyrsta sætið með svo lítið fylgi á bak við sig. „Sigurjón er eins og fangi lýðræð- iskynslóðarinnar þarna í fyrsta sæt- inu og það er ljóst að það verður ekki hann sem fer með völdin í borg- arstjóm,“ segir einn viðmælandi. í fyrstu 6 sætunum em þrír yfirlýstir lýðræðiskynslóðarfulltrúar. Það eru þau Kristín Á. Ólafsdóttir, Össur vegi að minna á orð hans fyrir for- valið.“ Því aðeins geta frambjóð- endur verið sókndjarfir að þeir viti að þeir hafi verið valdir til verksins með víðtækri þátttöku og þannig öflugum stuðningi." Fréttaljós ARNAR PÁLL HAUKSSON Síðan má ber.da á að Lena Rist komst aðeins í 15. sæti. En hún er Menn eru sammála um að þetta sé góður árangur hjá henni. En hann hefði getað verið betri. Þá líta menn sérstaklega á þá staðreynd að Össur fékk 60 atkvæði í fyrsta sætið. Ef þessi atkvæði hefðu fallið í hlut Kristínar hefði hún lent í fyrsta sæti. Yfir þessu eru margir gramir. Skýr- ingar á þessum atkvæðum Össurar liggja ekki á lausu. Nefnt er að Dagsbrúnarmenn hafi margir kosið Össur. Þeir hafi ekki viljað konu í fyrsta sætið og veðjað fremur á Öss- ur. Önnur skýring er sú að þau Össur og Kristín hafi ekki komið því nægi- lega vel á framfæri að þau væru í bandalagi- að hún stefhdi á fyrsta sætið og Össur á annað til fimmta. lýðshreyfingarinnar vera heldur rýr. Verkalýðsforystan, undir forystu Ásmundar Stefánssonar, óskaði eftir því við meðlimi innan hreyfingarinn- ar að þeir kysu Guðmund Þ. Jónsson. Þessu kalli var greinilega ekki hlýtt. Guðmundur beið mikinn ósigur í forvalinu og hrapaði niður í 12. sæti. Þetta telja margir áfall fyrir verka- lýðsforystuna. Bent er á að Tryggvi Þór Aðalsteinsson hafi hlotið fimmta sætið og þáttur verkalýðshreyfingar- innar sé því nokkur þrátt fyrir allt. Hins vegar er Tryggvi ekki í beinu sambandi við grasrótina innan verkalýðshreyfingarinnar. Annað áfall, en þó minna, er sú staðreynd að Pálmar Halldórsson hafnaði í 16. sæti. Hann er ritari miðstjómar og eins konar tengiliður við verkalýðsforystuna. Viðmælend- ur benda á að þetta komi ekki svo mikið á óvart því hann sé tiltölulega nýr og enn óþekktur. Auk þess er Pálmar bróðursonur Siguijóns Pét- urssonar. „ Það má segja að allir hafi sigrað í þessu forvali og þeir hafi fengið þau atkvæði sem þeir verðskulduðu. Guðmundur fékk atkvæði í samræmi við störf sín í borgarstjórn," sagði einn viðmælandi DV. Guðmundur fékk aðeins 121 atkvæði í þriðja sætið. Honum til vorkunnar er rétt að benda á að það voru margir sem sóttust eftir þriðja sætinu og hart barist um það. i Formennska til Bjöms Þórhallssonar eða Gunnars Ragnars: Nýr aðalfundur verður væntan- lega haldinn í næsta mánuði í hinu nýstofnaða Þróunarfélagi fslands hf. Sá fundur kemur í kjölfar af- sagnar stjómarformanns og annars stjómarmanns vegna afskipta for- sætisráðherra af vali framkvæmda- stjóra fyrir félagið. Þeir Davíð Scheving Thorsteins- son, sem var formaður, og Hörður Sigurgestsson sögðu sig úr stjóm- inni þegar Gunnlaugur Sigmunds- son, fyrrum forstjóri Fram- kvæmdastofnunar, var kosinn framkvæmdastjóri. Báðir vildu fremur Ingjald Hannibalsson, framkvæmdastjóra Iðntæknistofri- unar. Reiknað er með því að haldinn verði stjórnarfundur í Þróunarfé- laginu í þessari viku. Þorsteinn Ólafsson mun stjóma upphafi hans sem varaformaður en síðan er búist við að annaðhvort Bjöm Þórhalls- son eða Gunnar Ragnars verði kosinn formaður. Þeir koma inn í stjómina sem varamenn Davíðs og Harðar. - HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.