Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 12
12 DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 87., 94. og 103. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta I Grundarstíg 11, þingl. eign Þórs Jenssonar, fer fram eftir kröfu Lands- banka islands og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 6. febrúar 1986 kl. 10.45. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta I Suðurhólum 6, þingl. eign Helga Loftssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl. og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtu- dag 6. febrúar 1986 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Suðurhólum 26, þingl. eign Hannesar Guðnasonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Hafsteins Sigurðssonar hrl. og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudag 6. febrúar 1986 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta I Krummahólum 2, þingl. eign Sigrúnar I. M. Þorsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., Björns Ól. Hallgrímssonar hdl„ Atla Gíslasonar hdl„ Þorvaldar Lúðvíkssonar hrl„ Veðdeildar Landsbankans, Skúla Pálssonar hrl., Ólafs Gústafssonar hdl„ Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Ólafs Thoroddsen hdl. og Útvegsbanka ís- lands á eigninni sjálfri fimmtudag 6. febrúar 1986 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984, 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Norðurtúni 6, Bessastaðahreppi, þingl. eign Andreasar Bergmann, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka islands, Veðdeildar Landsbanka islands og Sigurðar G. Guðjónssonar hdl. á eign- inni sjálfri föstudaginn 7. febrúar 1986 kl. 15.00. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984, 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Marargrund 4, Garðakaupstað, þingl. eign Rúnars Daðasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Garðakaupstað, Landsbanka íslands og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 7. febrúar 1986 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984, 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Vélaverkstæði, lóð úr landi Lyngholts, Garðakaupstað, þingl. eign Sigurðar Sveinbjörnssonar, fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs og Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 7. febrúar 1986 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi, þingl. eign Kvikk sf„ fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. febrúar 1986 kl. 17.15. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Flugubakka 6, 1/6 hluta, merkt 6, Mosfells- hreppi, þingl. eign Kristins Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudag- inn 7. febrúar 1986 kl. 17.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Skólabraut 19, n.h„ Seltjarnarnesi, þingl. eign Lúðvíks Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 7. febrúar 1986 kl. 15.45. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 36., 39. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á ms. Guðmundi Kristni SH 404, þingl. eign Pólarsíldar hf„ fer fram skv. kröfu Atla Gíslasonar hdl„ Jóns Ólafssonar hrl. og innheimtumanns ríkis- sjóðs við skipið í Fáskrúðsfjarðarhöfn þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 11.00. Sýslumaðurinn I Suður-Múlasýslu. Matarkostnaðurinn upp úr öllu valdi Það er mun hærri tala heldur en kom út úr okkar reikningum fyrir árið 1985, en það reyndist vera tæp- lega 4 þús. kr. að meðaltali, eða svip- að og bréfritari var með árið áður. En bréfið heldur áfram: „Ég trúi hreinlega ekki þessum lágu tölum í mat og hreinlætisvörum hjá fólki. Ég býst heldur ekki við að neinn trúi mínum háu tölum, en þær eru samt réttar. „Nokkrar línur vegna þess að upphæðin á seðlinum er allhá, segir m.a. í bréfi frá Guðrúnu. Hún er með rúml. 8500 kr. í matar- og hreinlætis- vörukostnað á mann í desembermán- uði. „Það var aukafjölskylda hjá okkur um jólin í tíu daga. Þá keyptum við Qögur nagladekk og bensínkaup fóru í 7 þúsund kr., meira en venjulega. Svo voru greiddir skattar og annað uppgjör sem tilheyrir áramótunum. Sendi ykkur bestu nýársóskir og vona að heimilisbókhaldið haldi velli því okkur finnst það ómissandi."-- A.Bj. F ramleiddar hafa verið yfir 700 þúsund fernur af ávaxtagrautum frá því framleiðsla þeirra hófst á miðju ári 1984. DV-mynd GVA. Sykurskertir grautar Meira og minna tilbúnir réttir eru orðnir daglegt brauð í matvöruversl- unum á íslandi. Nú þurfa matvörurn- ar einnig að uppfylla ýms skilyrði - ekki síst að ekkert má vera fitandi í dag. Eitt af því eru grautarnir frá Aldin sem nú eru framleiddir með gervi- sætuefninu nutrasweete. Þannig innihalda sykurskertu grautarnir ekki nema 24 hitaeiningar í 100 gr. Á markaðinn eru komnir jarðar- berja-, apríkósu-, sveskju-, epla- og rifsberjagrautar. Sykurskertu pakkningarnar eru auðkenndar með bláum toppi, auk merkinganna. Sykurskertu grautarnir eru um 20 kr. dýrari en hinir grautarnir. Sem dæmi má nefna að sætur jarðarberja- grautur kostar 64 kr. en sykurskert- ur jarðarberjagrautur 82,50. Aldin hóf grautarframleiðsluna í júní 1984 og hafa síðan verið fram- leiddar tæplega 700 þúsund fernur. „Þetta er fyrsti grauturinn sem framleiddur er með nutrasweet sætu- efninu. Einn af forstjórum Nutras- weet smakkaði á sveskjugraut á sýningu erlendis. Honum þótti grauturinn svo góður að hann lauk við heila fernu!“ sagði Óskar Þor- móðsson dreifingarstjóri Aldins hf. er DV ræddi við hann um sykur- skertu grautana. Óskar sagði að það væri stefna fyrirtækisins að framleiða sykur- skertar vörur og nutrasweet væri sérlega gott til að sæta með ávexti. Hann sagði einnig að þetta efni væri viðurkennt í Bandaríkjunum. Þegar það var lagt fyrir hæstarétt Banda- ríkjanna í 124. skipti var málinu vísað frá á þeirri forsendu að það væri búið að viðurkenna efnið 123. sinnum í réttinum! Nutrasweet sagði Óskar að væri unnið úr efnum úr ríki náttúrunnar sem líkaminn brýtur niður. -A.Bj. Langt yfir landsmeðaltalinu „Þetta er í fyrsta skipti sem ég sendi ykkur heimilisbókhaldið mitt. Og það munar þá um það,“ segir m.a. í ágætu bréfi frá húsmóður á Austurlandi. Hún sendi okkur greinargott upp- gjör á heimilisbókhaldinu fyrir árin 1984 og 1985. Árið 1984 var hún með tæpar 4 þús. kr. í mat og hreinlætis- vörur að meðaltali á mann yfir allt árið. Samsvarandi tala íyrir sl. ár er 7500 kr. Ég er bara með algengan mat, en ekkert sérstakt. En ég reyki. Keypti að vísu hálft naut í frystikistuna í september. En ég kaupi oft stórt í einu í kjöti en það deilist út á árið svo það ætti ekki að breyta meðaltal- inu yfir árið hjá mér. Ég ætla að halda heimilisbókhald- inu áfram,“ segir að lokum í bréfinu. Við þökkum kærlega þetta grein- argóða bréf. Lágu tölurnar eru ótrúlegar, við viðurkennum það, en við getum ekki rengt þær tölur sem okkur eru sendar. Þær eru of líkar víðs vegar að af landinu til þess að þama geti verið um verulega skekkju að ræða. Hins vegar finnst mér að kostnaður vegna reykinga eigi ekki heima í reikningsskilum fyrir „mat og hrein- lætisvöm", eins og virðist vera hjá bréfritara. -A.Bj. Raddir neytenda Raddir neytenda Neytendur Neytendur Neytendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.