Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 16
16
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Bogdan slökkti Ijósin !
í háifleik
„Það kom vel fram í þessum leik
hversu mikill líkamlegur munur er á
íslenska liðinu og því pólska. Þetta
var fjórði leikur Pólverja á fjórum
dögum og fyrir þá er þetta ekkert
mál. Það er hins vegar vandamál
fyrir okkur,“ sagði Bogdan Kowalc-
zyk landsliðsþjálfari eftir leikinn
gegn Pólverjum í gærkvöldi.
Bogdan var langt frá þvi að vera
ánægður með leik íslenska liðsins í
gærkvöldi og getur það ekki komið
á óvart. í leikhléi tók Bogdan það
33,3%
nýting
Leikuríslandsog
Póliandsítölum
Leikur íslenska liðsins i gær-
kvöldi gegn Pólverjum olli mikl-
um vonbrigðum. Íslenska liðið
fékk 48 sóknir í leiknum og skor-
aði aðeins 16 mörk sem gerir
aðeins33,3% nýtingu.
• Kristján Arason skoraði 5
mörk í 12 skotum, 5 varin og 2
framhjá, ein línusending, eitt
fiskað víti og einum bolta tapað.
• Páll Ólafssonskoraði 3 mörk
úr 5 skotum (2 víti), 2 varin,
tveimur boltum tapað og einn
unninn.
• Sigurður Gunnarssonskoraði
3 mörk úr 9 skotum, 4 varin og
2 framhjá, einum bolta tapað.
• Atli Hihnarsson skoraði 1
mark úr 4 skotum, 2 varin og 1
framhjá, 4 boltum tapað.
• Steinar Birgissonskoraði 1
mark úr 3 skotum, 1 varið og 1
framhjá.
• Guðmundur Guðmundsson-
skoraði ekkert mark úr 1 skoti
sem var varið, tveimur boltum
tapað og eitt fiskað víti.
• Bjarni Guðmundssonskoraði 2
mörk úr 5 skotum, 3 varin og
eitt fiskað víti.
• Þorbjörn Jensson skoraði 1
mark úr einu skoti og fiskaði 1
víti.
• Jakob Jónsson skaut einu
skoti og það var varið.
• Einar Þorvarðarson varði 10
skot í leiknum og Brynjar Kvaran
2.
-JKS/SK
j IR-sigur í
kvennakörfu
Um siðustu helgi léku ÍR og ÍS
í 1. deild kvenna í körfuknattleik
og sigraði ÍR með 42 stigum gegn
38 eftir að staðan í leikhléi hafði
verið 23-21, ÍRívil.
ÍS komst í 2-9 og var það í eína
skiptið í leiknum sem liðið var:
yfir í öllum leiknum. ÍR-stúlk-
urnar tóku síðan leikinn í sinar
hendur og var munurínn 4-8 stig
allan leikinn. ÍR-Iiðið var mjög I
jafnt í þessum leik og liðið barð-
ist vel. Hjá ÍS var Helga Friðriks-
dóttir langbest. Stig ÍR: Guðrún
I 10, Fríða 8, Vala 7, Þóra 6, Daddý
4, Sóley 3, Sigríður 2 og Hildi-
$ gunnur 2. Stig ÍS: Helga 18, f
IRagnhildur 8, Kristín 4, Kolbrún I
2, Anna Björk 2, Hanna 2 og *
IVigdís 2. |
* -hhJ
til bragðs að slökkva Ijósin í bún-
ingsklefa íslenska liðsins og sátu
leikmenn í myrkri allt leikhléið.
„Ég gerði þetta til þess að leikmenn
ættu auðveldara með að ná upp ein-
hverri einbeitingu fyrir síðari hálf-
leikinn," sagði Bogdan og hélt áfram:
„Það vantar mun meiri einbeitingu
í liðið. Við misnotuðum sex dauða-
færi í þessum leik og þrjú víti. Leikur
liðsins er ennþá allt of gloppóttur en
það má ekki gleyma því að Þorgils
Óttar lék ekki með í síðustu leikjum
en hann hefur verið mjög góður í
vetur,“ sagði Bogdan.
-SK.
Islandsmet í USA
hjá Jónu Björkí60 m
Á frjálsiþróttamóti innanhúss í San
Jose í Kaliforníu 12. janúar setti Jóna
Björk Grétarsdóttir, Ármanni, ís-
Iandsmet i 60 m hlaupi, 7,73 sek.
Egill Eiðsson, UIA, hljóp 400 m
innanhúss í Dortmund 19. janúar á
49,4 sek., þriðji besti tími íslendings.
Erlingur Jóhannsson, UBK, hljóp í
Osló á 50,10 sek. Á fijálsiþróttamóti
innanhúss nýlega í Alabama stökk
Bryndís Hólm, ÍR, 5,79 m i langstökki
og 1,62 m í hástökki innanhúss.
Á Danmerkurmeistaramótinu í
frjálsum iþróttum innanhúss 18. jan-
úar kepptu 46 hlauparar í 60 m hlaupi,
þar af 14 Svíar. Stephan Burhart,
Sviss, sigraði á frábærum tima, 6,77
sek. 2. Peter Regli, Danmörku, á 6,79
sek. Jóhann Jóhannsson, IR, komst
i undanúrslit og varð 8, af 46 hlaup-
urum á nýju íslandsmeti (rafmagns-
tímataka) 7,15 sek. Jóhann hljóp
tvisvar á 7,15 sek. Einnig á 7,16 sek.
• Steinar Birgisson skorar eina mark sitt gegn Pólveijum í gærkvöldi.
DV-mynd EJ.
Hroðalegt
áhugaleysi
—er ísland tapaði fyrir Póllandi
• Jóna Björk Grétarsdóttir - nýtt
íslandsmet í 60 metra hlaupi.
Létt hjá
b-liðinu
gegn USA
— Liðið vann sex marka
siguríleik liðanna
ígærkvöldi
íslenska b-landsliðið vann auðveld-
an sigur á Bandaríkjamönnum i
seinni landsleiknum í Laugardalshöll
í gærkvöldi. íslenska liðið var blanda
af leikmönnum úr u-21 árs liðinu og
nokkrum leikmönnum er fengu ekki
að spreyta sig gegn Pólveijunum.
Úrslitin urðu 22-16 eftir að landinn
hafði haft þremur mörkum betur í
fyrri hálfleik, 12-9.
Leikurinn í gærkvöldi var jafh
framan af en í stöðunni 8-8 náði
landinn góðum leikkafla, skoraði sjö
mörk gegn einu marki gestanna og
breytti stöðunni í 14-9. Það sem eftir
lifði leiksins bar ekki mikil merki
þess að nokkur alvara væri á bak
I
I
I
I
I
B
I
I
I
I
I
I
I
K
• nia brotið á Siguijóni Guðmundssyni i leik b-liðsins gegn
Bandarikjamönnum í gærkvöldi. Aðsjálfsögðu vardæmt vítakast.
við hann og leikurinn leystist oft upp
í hreina vitleysu.
Ellert Vigfiisson átti góðan leik í
marki b-liðsins, sérstaklega í síðari
hálfleiknum. Þá áttu þeir Jón Ámi
Rúnarsson, Egill Jóhannesson og
Júlíus Jónasson þokkalegan leik í
annars jöfnu liði íslendinga.
Hjá Bandaríkjunum átti Oshita
ágætan leik í markinu og Prisgers
DV-mynd EJ
var bestur af útileikmönnum þeirra.
Hann varð einnig markahæstur liðs-
ins með fiögur mörk.
Mörk íslands: Júlíus 5/2, Jón Ámi
4, Valdimar Grímsson og Egill 3,
Hermundur 3/1, Gylfi Birgisson 2 og
Sigurjón Guðmundsson 1. Liðinu
stjórnaði Viggó Sigurðsson.
Þeir Bjöm Jónasson og Sigurður
Baldursson dæmdu þokkalega. -fros
ígærkvöldi, 16-24
íslenska landsliðið í handknattleik
lék sinn lélegasta leik í langan tíma
í gærkvöldi og mátti þola átta marka
tap í vináttuleik gegn því pólska í
Laugardalshöll. Lokatölur urðu 16-24
eftir að staðan í leikhléi hafði verið
8-11, Pólveijum í vil.
Það er líklega best að hafa sem
fæst orð um landsleik þennan og
leikmenn vilja ömgglega gleyma
honum sem allra fyrst ef þeir eru
ekki þegar búnir að því. Ekki var
heil brú í leik íslenska liðsins, sér-
staklega í síðari hálfleik. Allir leik-
menn liðsins gerðu sig seka um ljót
mistök og verða að taka sig saman
í andlitinu ef ekki á illa að fara í
Sviss.
Nokkrar tölur úr leiknum: 0-1, 0-2,
2-4, 4-6, 6-8, 8-9 og 8-11 í leikhléi.
10-11, 11-15, 12-17, 13-18, 14-20,
15-20,15-24 og 16-24.
Mörk íslands: Kristján Arason 5,
Páll Ólafsson 3/2, Sigurður Gunnars-
son 3, Bjarni Guðmundsson 2, Atli
Hilmarsson 1, Steinar Birgisson 1 og
Þorbjörn Jensson 1.
Leikinn dæmdu óli Olsen og Gunn-
laugur Hjálmarsson og vom slak-
ir. -SK
— Mark Duffield hættir hjá KS og
leikur með Víði í sumar
„Jú, það er ákveðið að ég leik með
Víði í sumar. Ég flyt suður 15. apríl
og leik minn seinasta leik með KS í
innanhússmótinu,“ sagði Siglfrið-
ingurinn Mark Duffield,“ í samtali
við DV um helgina. „Mér líst mjög
vel á allar aðstæður í Garðinum og
Víðir er baráttulið sem verður að
taka mikið á til að halda sessi í 1.
deildinni. Mér fellur vel slík barátta
og mér er vel ljóst að við megum
ekki slaka á.“
Nafnið Mark Duffield vekur grun
um að hann sé af erlendu bergi brot-
inn. „Ég er það og meira að segja
fæddur erlendis. Fluttist til íslands
þriggja ára að aldri, til Neskaupstað-
ar þar sem ég átti heima og æfð:
knattspymu með Þrótti - og ég ei
gijótharður Þróttari ennþá - uns ég
flutti til Siglufjarðar árið 1981 og fór
að spila með KS í 3. deildinni.“ Af
hverju til Siglufjarðar?? „Kona dró
mig þangað, eins og oft vill verða
með ástiangna menn.“
Mark hefur aðallega leikið mið-
vörð eða tengilið. Samt hefur hann
skorað drjúgum en hvar hann leikur
á vellinum með Víði sker framtíðin
úr um. En hvemig fellur honum að
flytjast úrfjalllendinu á flatneskjuna
á Reykjanesskaganum? „Ég hef átt
gott með að aðlagast umhverfinu og
nýjum félögum svo það ætti ekki að
vetða mikið vandamál fyrir mig, -
en mér er sagt að það sé vindasamt
hjá ykkur.“ Ekki var fallist á það -
heldur sagt við Mark að það væri
mismunandi lognvært.
—„Vildi ná meiri einbeitingu hjá
strákunum/’ sagði Bogdan Kowalczyk
eftir leikinn gegn Pólverjum