Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Síða 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Garðar Cortes söngvari, Kristján Jóhannson, forstjóri Almenna bókafélagsins, og Gylfi Þ. Gíslason. Plata með lögum eftir Gylfa var að koma á markað og það er Garðar sem syngur við undirleik Ólafs Vignis Albertsson- ar. Jón Þórarinsson útsetti lögin en Almenna bókafélagið gefur plötuna út. Eins og sjá má eru þeir þremenningarnir allir hver með sína gostegundina en þrátt fyrir það gekk sam- vinnan að plötunni með ágætum. Faðir Mike’s dó stuttu áður en byrjað var að taka upp Bonanza. Þeir höfðu verið mjög nánir. Green kom i hans stað og ef Mike átti í erfiðleikum þá leitaði hann til hans. Nú er Mike hamingjusamlega giftur og þarf sjálfsagt ekki oft að leita til „pabba“, þvi eftir þvi sem sögur herma á hann góða og skilningsríka eiginkonu. Bonanza feðgram- ir eru. og veröa alltaf feðgar „Ég hugsa enn í dag um Michael eins og son minn. Ég get ekki að því gert,“ segir Lorne Green sem varð náinn vinur Landons þegar hann fyrir fjórtán árum lék föður hans í þáttunum Bonanza. Og Mjchael segir á sömu leið: „Ég hef aldrei getað ann- að en fundist Green vera faðir minn. Ég hef þekkt hann meira en hálfa ævi mína og lit ávallt á hann sem pabba.“ Þetta segja þeir félagar í umfangsmiklu viðtali sem tekið var við þá um dag- inn vegna nýs mynda- flokks sem þeir leika báðir í og þar eru þeir feðgar eins og forðum. „Þegar ég sá Mike fyrst þá var hann bara barn og hann var sonur minn í 14 ár. Það er ekkert auðvelt að hætta allt í einu að vera faðirog sonur.“ Pabbinn og strákurinn hans. Aldurinn hefúr sett mark sitt á þá eins og hann gerir við alla, en engu að síður er Landon alltaf strákurinn hans Lome Green. Bonanza feðgamir eins og við þekktum þá úr sjónvarpinu fyrir nokkrum ámm. Simpansinn Chu-Cho veit fyrir víst hvernig best er að byrja daginn: Á góóum morgunverði i rólegheitum með bestu vinkonu sinni, henni Olgu. Ekkert að flýta sér, lesa blöðin vandlega: Það er alltaf eitthvað spennandi að gerast i mannheimum. Það er lika best að nota tækifærið áður en Olga fer i vinnuna þvi sumir stafir eru svo óskaplega flóknir og þaö getur verið erfitt að komast fram úr sumum greinum hjálparlaust. Ristaða brauðið er hreinasta sælgæti og það verður nú að þakka fyrir sneiðina með kossi. Svo þegar maðu..ég meina api er orðinn saddur þá hallar api ser a koddann og lætur fara vel um sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.