Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Blaðsíða 2
2 DV. LAU GARDAGUR15. FEBRÚAR1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir ,Ég hef ekki skarað eld að eigin köku.“ Brunamálastjóri við bifreið sina sem hann keypti á 15 þúsund krónur, hafði ekki efni á dýrari bil. „HVER HJÁLPAR EKKI BÖRNUNUM SÍNUMr brunamálastjórí stígur út úr bninabílnum og gerír hreint fyrír sfnum dyrum „Þetta er búið að vera erfítt fyrir fjölskylduna. Tengdamóðir mín, sem er utan af landi og hefur dvalið hjá okkur að undanfömu, svaf til dæmis ekki neitt eina nóttina út af þessum látum,“ segir Þórir Hilmarsson brunamálastjóri sem mjög hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu. Og það ekki sjálfum sér til ánægju. Blöð hafa ausið hann óhróðri, hljóðvarp og sjónvarp tekið undir og umræða um persónu hans hefur meira að segja borist inn í þingsali. Guðmundur Einarsson, þingmaður Bandalags jafhaðarmanna, krefst þess að brunamálastjóra verði taf- arlaust sagt upp störfum og Helg- arpósturinn auglýsir að Þórir Hilmarsson hafi ákveðið að draga sig í hlé eftir umfjöllun blaðsins um málefni Brunamálastofnunar. 3 lítrar og einn þröskuldur En málin horfa öðruvísi við úr stól brunamálastjóra á skrifstofu hans við Laugaveginn þó óneitan- lega komi það ýmsum spánskt fyrir sjónir að fyrirtækið Skanís hf. sé til húsa á sama stað. Fyrirtæki er böm Þóris eiga og reka og bruna- málastjóri var eitt sinn hluthafi í. Fyrirtæki sem sérhæfir sig í inn- flutningi á brunavamartækjum og ryðvarnarmálningu. „Skanís hefur verið blásið út sem eitthvert stórfyrirtæki en sannleik- urinn er annar. Fyrirtækið var stofnað 1984 af mér og bömum mínum en starfaði ekkert það árið. 1985 tókst fyrirtækinu að flytja til landsins og selja 400 lítra af ryð- vamarmálningu. Ætli við höfum ekki grætt 5000 krónur á þessu þó mér sé nær að halda að tap hafi orðið á viðskiptunum. Sjálfur seldi ég hlut minn í fyrirtækinu þá um 1 haustið. Það sem af er þessu ári hefur Skanís selt 3 lítra af ryðvam- armálningu og einn hurðarþrösk- uld, hvort tveggja nú í febrúar. Ég tilkynnti bæði stjórn Bmnamála- stofnunar og ráðuneyti frá því að ég fengist við innflutning á ryð- varnarmálningu og vom engar athugasemdir við það gerðar, enda alþekkt að opinberir starfsmenn fáist við aukastörf af þessu tagi þó ég ætli hvorki að tíunda það hér né nefna nein nöfn.“ Syninum leiðbeint Þórir Hilmarsson er bersýnilega sár. Honum mislíkar staðhæfing ýmissa blaða og túlkun ríkisfjöl- miðla að hann hafi sagt starfi sínu lausu í kjölfar þeirrar umræðu sem orðið hefur um persónu hans og embætti. Hann var búinn að segja starfi sínu lausu með bréfi til sam- gönguráðherra 14. október á síð- asta ári. í bréfinu segist hann gera þetta með hæfilegum fyrirvara og leggur til að uppsögnin gildi frá 1. janúar þannig að hann hætti 1. apríl. Og það verður úr. „Ég játa það fúslega að ég veitti syni mínum, er rekur Skanís hf„ ýmsa ráðgjöf og leiðbeiningu varð- andi rekstur fyrirtækisins, hann er ungur að árum og er að stíga sín fyrstu spor á þessari braut. Sjálfur hagnaðist ég ekkert á þessu enda stóð það aldrei til. Reyndar skil ég ekki hvað er svona athugavert við að hjálpa bömum sínum. Hver gerir það ekki ef hann getur? Njóta börn embættismanna ekki mann- réttinda á við aðra? Ég bara spyr.“ Undrun og hryggð Þórir Hilmarsson hefur verið sakaður um aðgerðaleysi og van- rækslu í starfi en um það atriði eru ekki allir á eitt sáttir, allavega ekki starfsfólk Brunamálastofnun- ar sem sent hefur Alexander Stef- ánssyni félagsmálaráðherra bréf þar sem það lýsir undmn sinni og hryggð yfir „...þeirri rógsherferð sem hefur verið beitt undanfarið gegn bmnamálstjóra ríkisins...þar sem ómaklega er vegið að bmna- málastjóra og fjölskyldu hans og sem virðist framsett af annarlegum hvötum." Undir þetta rita allir starfsmenn Bmnámálastofnunar- innar, fimm að tölu. „Ég neita því alfarið að hafa sýnt vanrækslu í starfi og ekki staðið mig sem skyldi. Ég hef unnið mikið og óeigingjarnt starf á undanföm- um ámm og lagt mig allan fram. Sem betur fer get ég sýnt fram á að það starf hafi borið árangur. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum em bmnatjón, bæði bein og óbein, hvað minnst hér á landi miðað við þjóðarffamleiðslu. Þetta hefur vakið athygli á alþjóðaþingum og erlendir menn stungið upp á því að nær væri að fara til íslands og skoða hvernig staðið er að málum þar í stað þess að sitja á fundum." Persónulegar deilur Þórir Hilmarsson segir deilurnar um embætti bmnamálastjóra af persónulegum toga spunnar. Allt hafi þetta byrjað er stjórnarskipti urðu í Landssambandi slökkviliðs- manna. Þá kom upp ágreiningur um leiðir að sama marki. En Þórir tekur ekki mikið mark á þessum samtökum slökkviliðsmanna þar sem aðeins 4 af hverjum 10 slökkvi- liðsmönnum em félagar. - En hefur hann notfært sér að- stöðu sína í kerfinu til að skara eld að eigin köku? Veraldleg auðæfi „Ef ég hefði gert það með góðum árangri þá hefði ég líklega ekki sagt upp starfi mínu sem bruna- málastjóri. Ástæða uppsagnar minnar er, eins og komið hefur fram, kjaralegs eðlis. Laun bruna- málastjóra eru einfaldlega allt of lág. Ég hafði ítrekað reynt að fá launin hækkuð og þegar ég sá fram á að það gengi ekki ákvað ég að hætta. Reyndar hefur fjölskyldan lengi hamast í mér að hætta. Ver- aldleg auðæfi mín er öllum heimilt að skoða; 100 fermetra íbúð í fjöl- býlishúsi og Volkswagen bifreið, árgerð 1979. Ég keypti hana á 15 þúsund krónur eftir að hafa selt aðra sem ég átti og kostaði 115 þúsund. Mismuninn þurfti ég að leggja í íbúðina mína. Svo á ég 6 börn og þeim hef ég reynt að hjálpa eftirbestugetu." Byrjaður að reykja aftur Þórir Hilmarsson brunamála- stjóri er farinn að reykja aftur eftir 7 ára hvíld. Aðspurður segist hann ekki vera bugaður maður. Hann sé ekki alls óvanur að standa í þrasi, kynntist þvi vel er hann starfaði sem bæjarstjóri á Sauðárkróki. En hann er feginn að hætta; vill ekki bera ábyrgð nema hann fái sóma- samleg laun. Nú bíða hans verkefni verkfræðilegs eðlis og kennsla í Tækniskólanum. Og hver veit nema hann gerist framkvæmda- stjóri Skanís hf. er fram líða stund- ir því ekkert fyrirtæki lifir á því að selja 3 lítra af ryðvamarmáln- ingu og einn bmnaþröskuld. ' -EIR Þórir Hilmarsson fer líklega ekki oftar upp í brunabíl. Hann er búinn aö fá nóg. DV-myndir PK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.