Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986.
Fréttir Fréttir
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Starfsmenn Mjólkursamsölunnarbeita þrýstingi:
Afgreiða ekki til
gruiiaðra kaupmanna
— fyrr en nöfn þeirra eru birt opinberlega
„Við afgreiðum ekki mjólk til
þeirra kaupmanna sem við grunum
um að hafa tekið á móti stolinni
mjólk hér úr stöðinni," sagði Ásgeir
Starfsmenn Mjólkursamsölunnar
afgreiða mjólk til kaupmanna, ann-
arra en þeirra sem grunaðir eru um
að hafa verið í vitorði með mjólkur-
þjófunum. Ásgeir Ásgeirsson trúnað-
armaður átti von á að nöfn þeirra
yrðu birt iniían skamms.
DV-myndS.
Ásgeirsson, trúnaðarmaður i stöð
hjá Mjólkursamsölunni.
Starfsmenn Mjólkursamsölunnar
hættu í gærmorgun að afgreiða
mjólk úr stöðinni nema gengið væri
að kröfu þeirra um nöfn þeirra versl-
ana sem til skamms tíma tóku við
mjólk sem nokkrir starfsmenn tóku
ófrjálsri hendi. Mjólkina seldu þeir
sem kunnugt er á hálfvirði.
„Yfirvöld hafa ekki orðið við kröf-
um okkar enn,“ sagði Ásgeir. „Því
brugðum við á það ráð að hætta að
afgreiða til verslananna sem við vit-
um að tóku þátt í þessu. Það sést þá
hvaða verslanir hafa ekki mjólk til
sölu,“ sagði Ásgeir.
Ágeir sagði að andrúmsloftið með-
al starfsmanna Samsölunnar hefði
verið mjög þungt síðan þetta mál
kom upp. „Það kemur í Ijós eftir
helgina hverja stefnu málið tekur.
Við birtum ekki listann yfir verslan-
irnar en hverjar þær eru kemur í ljós
fyrr en síðar,“ sagði Ásgeir Ásgeirs-
son. -GK
RolfogJón
hættir við sjónvarpsstöð
„Við ætlum ekki að fara í sjón-
varpið, það er bara of dýrt,“ sagði
Rolf Johansen stórkaupmaður.
Rolf og Jón Ragnarsson höfðu uppi
áform um sjónvarpsstöð sem sendi
út létta skemmti- og afþreyingar-
dagskrá. Stofnuðu þeir til þess fyrir-
tækið ísmann hf.
„Við erum búnir að kanna þetta
mjög ítarlega. Þetta gengur ekki upp
hjá okkur. Það yrði áhættuspil.
Málið er einfalt. Þessi stöð kostar
meira en upphaflega var talið og það
þarf meira starfslið. Við erum hrædd-
ir vm að fá ekki nógu mikið af aug-
lýsingum til að greiða þann kostn-
að,“ sagði Rolf Johansen.
-KMU
Luton—Arsenal
áskjánum
— leik West Ham og Man. Utd. frestað
Leik West Ham og Man. Utd, sem
sjónvarpa átti beint i dag, hefur verið
frestað til mánudagsins 17. febrúar.
Snjór og frost á Englandi. Einnig
hefur leikjum Derby-Sheff. Wed. og
Watford-Bury í 5. umferð bikar-
keppninnar verið frestað, svo og leik
Newcastle og Aston Villa í 1. deild.
Þó leiknum á Upton Park hafi verið
frestað verður sýnt beint frá 5. um-
ferð bikarsins - leikur Luton og
Arsenal á gervigrasinu í Luton. hsím
Dýrtað upplýsa þingmenn um utanferðirnar:
Kostaöi 166 búsund
að gera skýrsluna
Skýrslan um utanlandsferðir ráð-
herra og embættismanna kostaði
ríkissjóð 166 þúsund krónur. Þessi
kostnaður svarar til um 5 mánaðar-
launa ríkisstarfsmanns.
Fjármálaráðherra sá ástæðu til
að láta reikna þetta sérstaklega út.
Hann hefur í bréfi til forseta sam-
einaðs þings bent á þessa stað-
reynd. Skýrslan nær yfir þrjú sl.
ár og er um 46 þéttskrifaðar síður
í þingskjölum.
Það var þingmaðurinn Kristin
S. Kvaran sem óskaði eftir þessari
skýrslu. Samkvæmt upplýsingum
úr fjármálaráðuneytinu liggja fyrir
tvær aðrar fyrirspurnir frá þing-
manninum sem munu að líkindum
ekki kosta ríkissjóð minna en
skýrslan um utanlandsferðirnar.
Þetta er skýrsla um aukastörf
embættismanna og önnur um ráðn-
ingar í lausar stöður embættis-
manna4árafturítímann. -APH
Kosningar Iðju:
BARÁTTAN ER MJÖG TVÍSÝN
Allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör
á nýrri stjórn og trúnaðarmannaráði
verkalýðsfélagsins Iðju lýkur í kvöld
klukkan 20. Atkvæðagreiðslan fer
fram á skifstofu félagsins að Skóla-
vörustíg 16. Tveir listar eru í fram-
boði. Annar með núverandi formann
Iðju, Bjarna Jakobsson, sem for-
mannsefni og hinn með Guðmund
Þ. Jónsson, varaformann Iðju, sem
formann.
„Ég er mjög bjartsýnn og við höfum
haft góðan byr. Þetta er auðvitað
mikli barátta en hún hefur verið
mjög drengileg. Við vorum með fé-
lagsfund í fyrradag og það var mjög
góð stemmning þar í okkar garð,“
sagði Guðmundur Þ. Jónsson í sam-
taliviðDV.
„Það er erfitt að segja til um hvern-
ig úrslitin verða. Á vinnustaðafund-
um undanfarnar vikur hef ég fengið
mjög góðar viðtökur," sagði Bjarni
Jakobsson.
KonuráSelfossi
ætlaíframboð
Kvennalistakonur á Selfossi hafa
ákveðið að bjóða fram til bæjar-
stjómarkosninga í vor.
Nú er aðeins 1 kona í bæjar-
stjórninni á Selfossi af 9 bæjar-
fulltrúum. í öllu Suðurlandskjör-
dæmi eru aðeins 20 konur af 189
kjömum fulltrúum. Þessu vilja
konurbreyta. -APH
„Ég fór út í þetta vegna þess að
það var óskað eftir því við mig.
Uppstillingarnefndin lagði þetta til
og stjórn og túnaðarmannaráð
studdi þetta framboð. Það hefur ríkt
mikil óánægja með störf núverandi
formanns og því eðlilegt að gæða
félagið nýju lífi og þrótti," sagði
Guðmundur.
„Þessi óánægja er fyrst og fremst
til orðin hjá þeim aðilum sem eru í
„Það er neyðarástand í landinu. Fólk
verður gjaldþrota unnvörpum um
þessar mundir," segja forsvarsmenn
Sigtúnshópsins svokallaða sem ba-
rist heíúr í Iangan tíma íyrir úrbótum
í húsnæðismálum.
Hópurinn hefur boðað til fundar í
Háskólabíói á sunnudaginn. Á fund-
inn hafa verið boðaðir alþingismenn,
bankastjórar og aðrir ráðamenn.
Öllum er heimilt að taka til máls og
krefja ráðamennina svara.
Forsvarsmenn hópsins segja að sú
neyðaraðstoð, sem Húsnæðisstofnun
hefur staðið fyrir, sé skammgóð
hjálp. Margir, sem fengu aðstoð í
fyrra, séu nú aftur komnir í sömu
greiðsluþrot. Þeir vilja að vandi
þeirra, sem þegar hafa byggt eða
kringum Guðmund. Ég hef ekki
fundið fyrir henni meðal fólksins í
félögunum. Það hefur að minnsta
kosti ekki örlað fyrir henni á þeim
fundum sem ég hef haldið í félögun-
um,“ sagði Bjarni Jakobsson.
Talning atkvæða hefst strax að
kosningu lokinni. Hún er fljótlega
og ættu úrslit að verða kunn strax á
laugardagskvöld.
-APH
keypt, verði leystur í eitt skipti fyrir
öll. Leiðrétt verði það misgengi sem
myndaðist á milli launa og lánskjara
og kjörin á lánum verði viðráðanleg.
Hópurinn hefur bent á margar leiðir
í þessum eftium eins og t.d. að auka
skattafrádrátt til þeirra sem eiga í
þessum vanda.
„Við erum hlynntir því að gerðar
verði úrbætur á framtíðarskipan
húsnæðismála en við sættum okkur
ekki við það að engar leiðréttingar
verði gerðar fyrir þá sem byggðu á
árunum eftir 1980 og eru nú á barmi
gjaldþrots eða hafa þegar selt ofan
af sér,“ segja forsvarsmenn Sigtúns-
hópsins sem segjast vera orðnir
þreyttir á sviknum loforðum.
-APH
Sigtúnshópurinn boöar tilfundar
í Háskólabíói á sunnudag
„ÞAÐ ER NEYÐAR-
ÁSTAND í LANDINU”
Höfum tekið að
okkur sölu á
hinum þekktu
handridum
og
skilrúmum
^Hönnuðurinn verður
'til viðtals um mál-
töku og samninga
kl. 9-18 daglega,
laugardaga kl. 10-16,
að Armúla 20,
sími 8-46-30.
ÍH BYGGINGAVÖBPB
SELJUM NÝJA
OG NOTAÐA
BÍLA
Tegund Árg.
BMW 520 automatic 1980
BMW 520 1980
BMW 520i 1983
BMW 518 1982
BMW 323i 1980
BMW 323i 1980
BMW 3181 1981
BMW 316 1982
Renault 18 TL station 1980
Renault 18 GLT 1980
Renault 18 st. 1982
Renault 9 TC 1983
Galant 1980
Opið laugardag 1—5.
KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN