Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Blaðsíða 6
6
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986.
Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stfeður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafhvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þijá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og
42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtímin gildir hvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 óra afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%,
4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, og eftir 6
mánuði 37%. Frá 11.02.1986 verða vextir eftir
12 mánuði 38% og eftir 18 mánuði 39%. Sé
ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð-
um reikningum gildir hún um hávaxtareikn-
inginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hsestu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heil:'
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteiní eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfín eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársQórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund.
Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,125%.
Visitölur
Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396
stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699.
stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.021986
innlAnmeð sérkjörum sjAsérusía llll if If II jf ifif jf it
innlAn Overðtryggð SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innst»fta 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22,0
SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsógn 25,0 26.6 25.0 25.0 23.0 23,0 25.0 23.0 25,0 25.0
6 mén. uppsógn 31,0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28,0
12mén. uppsógn 32,0 34.6 32.0 31.0 33.3
SPARNAÐUR- LANSRÉTTUR Sp.«ð 3-5 mén. 25.0 23,0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0
INNLÁNSSKfRTEINI Sp Gmén.ogm. 29,0 26.0 28.0 29.0 28,0
Tif 6 ménaða 28.0 30.0 28.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanartikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Hlauparaikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR Ijamén. upptogn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mén uppsogn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3,0
INNLÁN gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarlkjadoliarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7,5 7.5 8.0
Stariingspund 11.5 11.5 12.0 11.0 11,5 11.0 11.0 11.5 11.5
VasturTrýsfc mórk 5.0 4.5 4.0 4.0 4.5 4,5 4.5 5.0 4.5
Oansfcar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
útlAn úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30,0
VIÐSKIPTAVlXLAR (fonraxtir) 34.02) kg. 34.0 k* 32.5 kg. kga kga 34,0
ALMENN SKULDABRÉF 32,03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kg* 35.0 kga 33,5 kg. ÚP kga 35.0
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5
útlAn verðtryggð SKULDABRÉF A6 21/2 éri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Langri an21/2 ér 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5,0 5.0
ÚTlAN TIL FRAMLEIOSUI SJANEDANMALS1)
l)Lán til innanlands&amleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%,
í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óveiðttyggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Utlönd Utlönd Utlönd
Frakkar sja fram
áátökíChad
Frakkar sjá fram á að dragast á
ný inn í skærur fyrrum Afríkuný-
lendu sinnar í Chad og hermanna
Gaddafi Líbýuleiðtoga.
Hissene Habre, forseti Chad, fór í
gær fram á franska hernaðaraðstoð
vegna harðnandi bardaga stjórnar-
hers Chad við skæruliða á landa-
mærunum við Líbýu er njóta beins
stuðnings Líbýumanna.
Frakkar sendu herafla til norður-
héraða Chad fyrir réttum tveim árum
til stuðnings stjórnar Hissene Habre
en drógu herafla sinn til baka eftir
að samið var um vopnahlé.
Frakkar í viðbragðsstöðu
Frönskum hersveitum í Mið- Afr-
íkulýðveldinu hefur verið skipað í
viðbragðsstöðu og óstaðfestar fregn-
ir herma að sveit franskra jagúar-
orrustuflugvéla hafi verið send til
herflugvallar í Chad.
Frakkar hótuðu því fyrir tveim
árum að senda herafla til Chad ef
Líbýumenn gerðu slíkt hið sama.
Sósíalistaflokkur Mitterands for-
seta sér fram á tvísýnar þingkosning-
ar í næsta mánuði og telja stjórn-
málaskýrendur ólíklegt að forsetinn
hætti á kosningaafhroð með því að
senda inn franskar hersveitir til
langdvalar í Chad rétt fyrir kosning-
ar. Þeir telja líklegra að forsetinn
beiti fyrir sig franska flughernum,
sem auðveldara og fljótara er að
draga til baka ef til aukinna átaka
kemur á landamærum Chad og
Líbýu.
Sveitir úr herafla Frakka í
Mið-Afrikulýðveldinu hafa
verið settar í viðbragðsstöðu
vegna aukinnar spennu á
landamærum Chad og
Líbýu. Forseti Chad hefur
beðið Mitterrand um skjóta
hernaðaraðstoð.
Þúsundir hermanna Atlantshafsbandalagsins taka þátt i heræfingum
bandalagsins i Noregi síðar i þessum mánuði. Nú hafa íbúar norsks
smábæjar krafist þess að bandarískum landgönguliðum verði meinaður
aðgangur að sturtum og salernum í skólaíþróttahúsi staðarins vegna
smithættu af eyðni.
Norskur bær í upp-
námi vegna eyðni
Samtök foreldra í norska bænum
Dyroey vilja banna bandarískum
landgönguliðum, er taka þátt í her-
æfingum Atlantshafsbandalagsins í
nágrenni bæjarins, allan aðgang að
sturtum í skólaíþróttahúsi staðarins
vegna hræðslu við smit af eyðni eða
öðrum smitandi sjúkdómum.
Skólayfirvöld í Dyroey höfðu fyrr
gefið yfir 1400 bandarískum land-
gönguliðum leyfi til að notfæra sér
hreinlætisaðstöðu skólaiþróttahúss-
ins á meðan á þriggja vikna löngum
heræfingunum stendur, Heræfing-
arnar ganga undir nafninu Anchor
Express og hefjast síðar í þessum
mánuði.
Bæjarstjórinn í Dyroey hefur harð-
lega gagnrýnt yfirkennara staðarins
fyrir að hafa hleypt soldátunum í
sturtumar og foreldrar hafa hótað
að halda bömum sínum frá skólanum
ef landgönguliðarnir fá leyfi til að
notfæra sér hreinlætisaðstöðuna þar.
Talsmaður norska hersins sagði að
íbúar Dyroey þyrftu engar áhyggjur
að hafa af eyðni eða öðmm smitsjúk-
dómum, bandarísku hermennirnir
hefðu allir verið rækilega skoðaðir
áður en haldið var að heiman og
gengið úr skugga um að þeir bæru
enga slíka smitsjúkdóma.
Hvað hugsar karl-
maðurinn í ástarleiknum
Frá Gissuri Helgasyni, fréttaritara
DV í Zurich:
Ástríðuþrungin nótt, þú og ást-
mögur þinn elskist.
Margar konur myndu ugglaust
furða sig á hugsunum makans ef þær
vissu hvað hann væri að hugsa um
í hita bardagans.
Bandaríski sálfræðingurinn Mary
Kearnes fékk til liðs við sig stóran
hóp karlmanna til þess að segja sér
frá sínum innstu draumum sem á þá
sóttu á meðan á forspili og sjálfum
ástaleiknum stóð.
Listinn samanstóð af eftirfarandi:
í fyrsta lagi, og það sem algengast
var, ímynduðu menn sér að þeir
gömnuðu sér við margar konur
samtímis.
í öðru lagi hugsuðu menn um
munn-erótík.
í þriðja lagi virtust margir draum-
arnir snúast um líkamshluta annarr-
ar kvenveru, svo sem brjóst, mjaðm-
ir, lendar og fleira.
Margir hugsuðu um bláar kvik-
myndir og enn aðrir ímynduðu sér
tvo kvenmenn í atlotum.
Að lokum voru þeir eigi allfáir er
létu drauma sína snúast um eigin-
konu vinnufélaga síns, nú, eða bestu
vinkonu eiginkonunnar.
Konur, þá vitið þið það.
Nelson Mandela.
Segir Mandela
losnaáárínu
Winnie Mandela segist búast
við því að fá eiginmann sinn
lausan úr fangelsi á næstu mán-
uðum.
„Ég held að það muni taka
nokkra mánuði í viðbót að fá
hann lausan, en ég trúi því að
það verði á árinu,“ sagði Winnie
í borginni Kagiso í Suður-Afríku
í gærkvöldi.
Orðrómur hefur verið á kreiki
síðustu daga um yfirvofandi
frelsi blökkumannaleiðtogans,
en stjórnvöld í Pretóríu hafa
hingað til sagt orðróminn úr
lausu lofti gripinn.
Spæjaraduftið
hættulaust
Bandarískir visindamenn hafa
lýst því yfir að svokallað njósna-
duft, er þarlendir sendiráðstarfs-
menn hafa fundið í húsakynnum
bandaríska sendiráðsins í
Moskvu; sé með öllu hættulaust.
Bandaríkin segja að útsendar-
ar KGB hafi sáldrað því á Banda-
ríkjamennina til að eiga hægara
um vik að fylgjast með ferðum
þeirra í Sovétríkjunum.
Bandaríkjamenn uppgötvuðu
efnið (nitro phenyl pentadiene) í
ágúst síðastliðnum í sendiráðinu
og sendu harðorð mótmæli til
Sovétmanna.
í fyrstu var talið að efnið væri
krabbameinsvaldandi en tilraun-
ir með mýs og hamstra hafa nú
leitt annað í ljós.
Sovétmenn hafa alla tíð neitað
ásökunum Bandaríkjamanna.
Ufgongubann
íNýju Delhí
Mikil átök hafa síðustu
klukkutímana átt sér stað milli
hindúa og múhameðstrúar-
manna í Nýju Delhí.
Að minnsta kosti einn hefur
fallið í átökunum og yfir 50
manns særst.
Að auki hefur lögreglan hand-
tekið á annað hundrað manns.
Yfirvöld fyrirskipuðu funda-
bann fleiri en fimm manns og
útgöngubanni var lýst yfir í viss-
um hluta höfuðborgarinnar í
gær.
ísraelskur
efnahagsbafi
Verðbólga fer stöðugt minnk-
andi í ísrael, samkvæmt nýbirt-
um skýrslum þjóðhagsstofnunar
landsins.
Verðbólga i landinu náði 450
prósentum árið 1984 en á síðasta
ári tókst ríkisstjórn Simonar
Peres að koma verðbólgunni í
rúm 182 prósent.
í síðasta mánuði lækkaði fram-
færslukostnaður í landinu um 1,3
prósent og hefur slíkt ekki gerst
í níu ár.