Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Page 24
24
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Hjaltabakte. 16, þingl. eign Þorbjöms Jónssonar,
fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands o.fl. á eigninni sjálfri miðvikudag
19. febrúar 1986 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Fljótaseli 6, þingl. eign Guðjóns S. Garðarssonar,
fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudag
19. febrúar 1986 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Leirubakka 16, þingl. eign Ágústs Ágústssonar,
fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands, Jóns Oddssonar hrl., Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík, Vilhj. H. Vilhjálmssonar hdl., Guðjóns Á. Jónssonar hdl.,
Sigríðar Thorlacius hdl., Árna Einarssonar hdl. og Skúla J. Pálmasonar hrl.
á eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Norðurgarði 1, þingl. eign ísbjarnarins hf., fer fram eftir
kröfu Sigurðar Sigurjónssonar hdl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Guðjóns
Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 112„ 115. og 118. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Eyjagötu
1, þingl. eign Sjófangs, fer fram eftir kröfu Tómasar Þorvaldssonar hdl„
Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Haraldar Blöndal hdl., Skúla J. Pálmasonar
hrl. og Jóns Finnssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986
kl. 10.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Keilugranda 6, þingl. eign Nikulásar Róbertsson-
ar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudag
19. febrúar 1986 kl. 11.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Torfufelli 21, þingl. eign Rúnars A. Ingvarssonar
og Elísu B. Sigurðardóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl.,
Iðnaðarbanka Isl., Landsbanka íslands, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Þorvaldar
Lúðvíkssonar hrl., Þorfinns Egilssonar hdl. og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á
eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Vesturbergi 43, þingl. eign Rögnvalds Gíslasonar, fer
fram eftir kröfu Útvegsbanka Islands og Iðnaðarbanka íslands á eigninni
sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 14.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Ferjubakka 16, þingl. eign Sigurðar Pálssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar i Reykjavík og Sveins Skúlasonar hdl. á eigninni sjálfri miðviku-
dag 19. febrúar 1986 kl. 15.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 134., 138. og 145. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Engjaseli 29, þingl. eign Guðmundar Jóhannssonar og Áslaugar Gísladóttur,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudag
19. febrúar 1986 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
I
*
I
}
t.
['
v
í
I.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Kóngsbakka 2, þingl. eign Þorsteins Hanssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Seljavegi 33, þingl. eign Guðbergs Þorvaldssonar
og Elísabetar Benediktsdóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans,
Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Landsbanka Islands, Guðjóns Á. Jónssonar
hdl„ Búnaðarbanka íslands og Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri
mi&yikudag 19. febrúar 1986 kl. 11.15.
_______Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á húseign
v/Túngötu, þingl. eign íþróttafél. Reykjavíkur, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Ferju-
bakka 14, tal. eign Halldórs Kristinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar
í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudag 19. febrúar 1986 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
HIN HLIÐIN
Hann byrjaði að leika handknatt-
leik þegar hann var 9 ára gamall.
Undanfarna daga hefur hann verið
mikið í fréttum vegna þess að niður
úr búknum gengur fótur sem þessa
dagana er í spelkum. Gárungar
hafa líkt honum við stóðhestinn
landsfræga Snældu Blesa en hvort
þessi snjalli handknattleiksmaður
okkar á eitthvað sameiginlegt með
hestinum skal ósagt látið hér. Þetta
er auðvitað Þorgils Óttar Mathie-
sen, landsliðsmaður í handknatt-
leik. Hann var nýkominn inn úr
dyrunum af erfiðri æfingu þegar ég
hringdi i hann en engu að síður gaf
þessi eldhressi náungi sér tíma til
að svara spurningunum sem hér
fara a gffír,
FULLT NAFN: Þorgils Óttar Mat-
hiesen.
EIGINKONA: Ógiftur.
STARF: Námsmaður í Háskóla ís-
lands.
HÆÐ OG ÞYNGD: 187,5 cm og 82
kílógrömm.
BÖRN: Engin ennþá.
LAUN: Engin (námslán).
ÁHUGAMAL: Handbolti, söngur og
konur.
BESTI VINUR: Á marga góða sem
ég geri ekki upp á milli.
HELSTI VEIKLEIKI: Þarf að sofa
ofmikið.
HELSTI KOSTUR: Ég hef ódrep-
andi sjálfstraust á köflum.
HVAÐ GERÐIR ÞÚ EF ÞÚ YRDIR
ÓSÝNILEGUR í EINN DAG? Færi
i kvennaklefann í laugunum. Nei,
ég var bara að djóka. Ég myndi
bara vera ósýnilegur.
HVAÐ GERÐIR ÞÚ EF ÞÚ YNNIR
EINA MILLJÓN í HAPPDRÆTTI?
Keypti mér Benz.
HVAÐ FER MEST í TAUGARNAR
Á ÞÉR? Væmni.
UPPÁHALDSMATUR: McDonalds
hamborgarar.
UPPÁHALDSDRYKKUR: Kók.
• Þessi mynd er tekin af Þorgilsi Óttari Mathiesen í leik með FH gegn
KR fyrir nokkrum árum. Þegar Þorgils Óttar sá myndina sagði hann:
„Þessi mynd var tekin þegar ég var ungur og sætur. Nú er ég bara sætur.“
„Mér er stundum
líkt við hann
Snældu-Blesa”
— Landsliðsmaðurinn Þorgils Óttar Mathiesen sýnir
ásér hina hliðina
HVAÐA PERSÓNU LANGAR ÞIG
MEST TIL AÐ HITTA? Ronald
Reagan.
HVAÐA DAGAR ERU LEIÐIN-
LEGASTIR? Mánudagar.
UPPPÁHALDSLEIKARI, ÍS-
LENSKUR: Sigurður Siguijónsson.
UPPÁHALDSLEIKARI, ERLEND-
UR: Jack Nicholson.
UPPÁHALDSHLJÓMSVEIT: Be-
ach Boys.
UPPÁHALDSSTJÓRNMÁLA-
MAÐUR: Davíð Oddsson.
VIÐ HVAÐ ERT ÞÚ MEST
HRÆDDUR? Ég er mjög hræddur
þegar ég er hátt uppi. Ég er loft-
hræddur.
UPPÁHALDSLITUR: Blátt.
HLYNNTUR EÐA ANDVÍGUR
RÍKISSTJÓRNINNI? Hlynntur
henni.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ EIGA
MÖRG BÖRN? Ég ætla að eiga þrjú
börn.
HVAÐA KVENPERSÓNA FINNST
ÞÉR FALLEGUST í DALLAS-
ÞÁTTUNUM? Priscilla Presley.
HVAÐ LANGAR ÞIG MEST TIL
AÐ GERA í ELLINNI? Drekka bjór
og spila billiard.
UPPÁHALDSSJÓNVARPSÞÁTT-
UR: íþróttir.
UPPAHALDSSJÓNVARPSMAÐ-
UR: Bjarni Felixson.
HEFUR ÞÉR EINHVERN TÍMA
VERIÐ LÍKT VIÐ AÐRA PER-
SÓNU? Já, við hann Snældu-Blesa.
UPPÁHALDSFÉLAG í ÍÞRÓTT-
UM: FH.
EF ÞÚ VÆRIR EKKI NEMANDI
HVAÐ MYNDIR ÞÚ ÞÁ HELST
VILJA GERA? Vinna sem við-
skiptafræðingur.
UPPÁHALDSBLAÐ: DV.
UPPÁHALDSTÍMARIT: íþrótta-
blaðið.
EF ÞÚ YRÐIR HELSTI RÁÐA-
MAÐUR ÞJÓÐARINNAR Á
MORGUN HVERT YRÐI ÞITT
FYRSTA VERK? Leyfa bjórinn.
ANNAÐ VERK: Hætta að styrkja
landbúnaðinn.
EF ÞÚ ÆTTIR EKKI HEIMA Á
ÍSLANDI HVAR VILDIR ÞÚ
HELST BÚA? í Kaliforníu.
ÞVÆRÐU UPP FYRIR MÖMMU
ÞÍNA? Já, ég set stundum í vélina.
HELDURÐU AÐ ÞÚ VERÐIR
GÓÐUR EIGINMAÐUR? Ég vona
það.
FALLEGASTI STAÐUR Á ÍS-
LANDI: Hafnaríjörður.
FALLEGASTIKVENMAÐUR SEM
ÞÚ HEFUR SÉÐ: Eigum við ekki
að segja Hólmfríður Karlsdóttir.
Þá fer hún kannski að hringja í mig.
HVAÐ LÍKAR ÞÉR VERST í FARI
KVENFÓLKS? Væmni.
EF ÞÚ YRÐIR RÁÐHERRA Á
MORGUN HVAÐA EMBÆTTI
MYNDIR ÞÚ VEUA ÞÉR? Forsæt-
isráðherrann, auðvitað. Stjórna
þessu dæmi.
HVERNIG ER AÐ VERA í SPELK-
UM EINS OG SNÆLDU-BLESI?
Dálítið þvingandi en ég sætti mig
við þetta.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA Á
MORGUN? Fara á handboltahátíð-
ina á Broadway.
Umsjón:
Stefán
Kristjánsson