Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Síða 26
26
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986.
BLÓÐGJAFAFÉLAG feLANDS
AÐALFUNDUR
- FRÆÐSLUFUNDUR
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 21.
febrúar nk. kl. 21 í kennslusal Rauða kross Islands,
Nóatúni 21, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ástríður Pálsdóttir B.Sc., sérfræðingur Erfða-
rannsóknadeildar Blóðbankans, flytur fræðsluer-
indi er nefnist: Erfðaefnisrannsóknir (DNA) við
sjúkdómsgreiningu.
3. Önnurmál.
4. Kaffiveitingar
Stjórnin
ORKUBÓT
FYRIR KONUR |"
GRENSÁSVEGUR 7*
Sími: 39488
Ný námskeið í aerobic
leikfimi hefjast mánudaginn 17. febrúar.
Upplýsingar og innritun í síma 39488.
>
ÚtboÖ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í NORÐAUST-
URVEG FRÁ RAUFARHÖFN AÐ HÓLSÁ:
Helstu magntölur:
Lengd ............................... 3,5 km
Fyllingar .......................... 25.800 m3
Burðarlag .......................... 10.500 m3
Brú á Deildará ....................... 6,0 m
Öllu verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst
1986.
Byggingu brúar á Deildará skal að fullu lokið eigi síðar
en 20. júní 1986.
Utboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri, og Borgartúni 5, 105
Reykjavík, frá og með 17. febrúar 1986.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 hinn 3. mars 1986.
Vegamálastjóri.
■1
Söluíbúðir fyrir aldraða
félagsmenn
Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, Hvassaleiti 56-58.
Af sérstökum ástæðum eru nú nokkrar íbúðir lausar
til endurúthlutunar. Þeir félagsmenn VR, sem ná 63ja
ára aldri á árinu 1986, eiga rétt á að kaupa íbúð, þó
þannig að félagar 67 ára og eldri eiga forgangsrétt á
íbúðunum. Þeim félagsmönnum VR, sem áhuga hafa
á að kynna sér verð, greiðsluskilmála og teikningar,
er bent á að koma á skrifstofu félagsins á 8. hæð í
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,108 Reykjavík.
Umsóknareyðublöð liggja þarframmi.
Umsóknum þarf að skila til skrifstofunnar fyrir 20.
febrúar nk.
Félagsmenn, sem þegar hafa sótt um íbúðir en ekki
fengið úthlutað, eru beðnirað ítreka umsóknirsínar.
„VIÐ ERUM EKKI
ENGLAR í SUÐUR-
AFRÍKU EN HELDUR
ENGIR DJÖFLAR”
— segir Louis Nel, upplýsingamálaráðherra Suður-Af ríku,
íviðtali við DV
„Það sem skiptir máli, er menn ræða ástand mála
í Suður-Afríku í dag, er að þeir geri sér grein fyrir
því hve misleitur hópur það er sem byggir þetta
land,“ segir Louis Nel, nýskipaður upplýsingamála-
ráðherra Suður-Afríku, í ríkisstjórn P.W. Botha í
viðtali við blaðamann DV.
Áður en Nel tók við ráðherraembætti hafði hann
gegnt starfi aðstoðarutanríkisráðherra um hríð.
Viðtalið átti sér stað á skrifstofu ráðherrans í upplýs-
ingamálaráöuneytinu í Pretóríu.
Og ráðherrann hélt áfram:
„Það eru ekki aðeins kynstofnar
hvítra, kynblendinga og Asíumanna,
er eiga sér margs konar ættir og
uppruna, heldur skiptast blökku-
mennirnir sjálfir í að minnsta kosti
níu ættbálka er hver talar sínar
mismunandi mállýskur, með mis-
munandi menningararfleifð og hafa
hver um sig tileinkað sér mismun-
andi lífsmáta.
Það er langt frá því að einhugur
og samstaða ríki í þeirra röðum,
einfaldlega vegna þess að hörundslit-
ur þeirra er svartur. Auðvitað er
samstaða á meðal þeirra í vissum
málaflokkum en þó eru þeir ósam-
mála í fleiri.
Því miður gera ekki allir sér grein
fyrir þessu.
Svo er það annar þáttur er setur
svip sinn á ástandið hér en það er
skæruliðahreyfing Afríska þjóðar-
ráðsins.
Alræðisstjórn marxista
Starfsemi þeirra fer að mestu fram
erlendis með fpirstuðningi ríkja er
vilja ríkisstjórn vora feiga.
Markmið Afríska þjóðarráðsins er
að steypa af stóli ríkisstjórn Suður-
Afríku í blóðugri byltingu og koma
hér á alræðisstjórn marxista og
kommúnista.
Á því er og verður enginn vafi.
Forysta ANC (Afríska þjóðarráðs-
ins) hefur engan áhuga á nokkurs
konar samningum við stjómvöld,
hvorki um umbætur í málefnum
blökkumanna né nokkuð annað, hún
vill aðeins blóðuga byltingu.
Flestir blökkumenn hér eru and-
stæðir þessari hugmyndafræði ANC
og hafa afneitað byltingaráformum
þess.
Það er óhætt að fullyrða að hryðju-
verkamenn ANC eiga mesta sök á
því ofbeldi er sett hefur svip sinn á
gang mála síðustu mánuði. Þeir
reyna að kynda undir ofbeldisað-
gerðum hvar sem er og hvenær sem
er.
Manneskjur steiktar lifandi
Það em ekki síst blökkumenn sjálf-
ir er hafa orðið fyrir grimmdarverk-
um félaga ANC.
Aftökuaðferðir þeirra eru vel
þekktar og með afbrigðum grimmi-
legar.
Ein þeirra er til dæmis þannig að
ónýtur hjólbarði er settur yfir höfuð-
ið og axlir á bundnu fórnarlambinu,
bensíni hellt í hjólbarðann og síðan
kveiktí.
Manneskjan er bókstaflega steikt
lifandi.
Slík grimmdarverk færast í auk-
ana á meðal útsendara ANC.
Á þennan hátt reynir forysta ANC
Nýskipaöur ráöherra upplýsingamála á tali viö blaðamann DV i Pretóriu.
Verzlunarmannaféiag Reykjavíkur.