Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Side 27
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986.
27
í að hræða blökkumenn til liðs við sig
og frekari þátttöku í ofbeldisaðgerð-
um.
Höfuðstöðvar ANC eru í L.usaka í
Zambíu og í London.
Þessir menn reyna að koma mál-
stað sínum á framfæri hér í Suður-
Afríku með rekstri útvarpsstöðvar
er starfar undir verndarvæng kom-
múnistastjórnarinnar í Eþíópíu og
útvarpa ofbeldisáróðri sínum hingað
daglega.
Refsiaðgerðir auka
ofbeldisverk
í slíkum jarðvegi þrífst ofbeldið
best og því er ljóst að refsiaðgerðir
gera ekkert annað en að auka of-
beldisverk hér í Suður-Afríku.
Þetta er það sem menn eins og
Tutu biskup boða á ferðum sínum
erlendis.
Boðskapur manna eins og Tutus
virðist falla í góðan jarðveg erlendis
vegna þess að fólk virðist almennt
ekki gera sér grein fyrir þeim raun-
veruleika er hér ríkir.
í því efni hafa blaða- og fréttamenn
ekki staðið sig sem skyldi.
Það sem hér hefur gerst er í fyrsta
lagi það að erlendar sjónvarpsstöðv-
ar hafa gleypt við æsifregnum er
sérstaklega hafa verið búnar til með
slíkt í huga.
Undirróðursmenn hafa hreinlega
búið til fréttir, sagt sjónvarpsmönn-
unum að búast mætti við tíðindum á
þessum stað klukkan þetta.
Fjölmiðlamennirnir mæta á stað-
inn og sjá einhverjar fyrirfram undir-
búnar róstur- og ofbeldisaðgerðir
- brjótastút.
Fölsk umfjöllun
fjölmiðla
Sú ímynd hefur verið búin til í
erlendum fjölmiðlum að logar of-
beldis séu bókstaflega að sökkva
landinu.
Auðvitað hefur margs konar of-
beldi átt sér stað, en þetta hefur allt
verið blásið út og alröng mynd verið
gefm af ástandinu.
Fréttir í dagblöðum hafa því miður
ekki heldur gefið rétta mynd af
ástandinu.
Þar virðist aðaláherslan lögð á hið
neikvæða og bókstaflega ekkert
fjallað um jákvæðari hliðar á ástand-
inu í landinu.
Við erum engir englar í Suður-
Afríku, en heldur engir djöflar.
Þrátt fyrir öll okkar mistök og allar
okkar syndir fáum við ennþá ranga
og ósanngjarna umfjöllun í erlendum
fjölmiðlum.
Ef við fengjum sanngjarna umfjöll-
un, með öllum okkar mistökum, er
ég sannfærður um að ímynd okkar
myndi skána til muna.
Mandela fangelsar sjálfan sig
Við erum tilbúnir til að láta Nelson
Mandela lausan án allra skilyrða,
en aðeins ef hann afneitar frekari
ofbeldisaðgerðum.
Það verður að vera ljóst.
Það táknar í rauninni ekkert ann-
að en hann verði að lúta fullkomn-
lega eðlilegri skyldu sérhvers íbúa
hvaða lands sem er, er setið hefur í
fangelsi fyrir ofbeldisaðgerðir.
Það skiptir okkur miklu máli að
hann afneiti frekari ofbeldisverkum
því hann er álitinn vera leiðtogi
ANC, samtaka er nota hvert tæki-
færi til að efna til óeirða og ofbeldis
hér í Suður-Afríku.
Þetta gæti ekki verið skýrara.
Að fara ekki fram á að Mandela
afneiti ofbeldi væri að mörgu leyti
uppgjafartónn gagnvart ANC og
starfsemi þess í landinu og liti út
eins og ofbeldisaðgerðir ANC vaeru
ekki til.
Mandela er einfaldlega að fangelsa
sjálfan sig. Það eina sem við biðjum
um er að hann afneiti frekara ofbeldi.
Hann gæti orðið frjáls á morgun,
efhann vildi."
Myndir
ogtexti:
Hannes
Heimisson
Betri staða blökkumanna
Ríkisstjórn Suður-Afríku er stað-
ráðin í því að koma á frekari umbót-
um.
Ef litið er nokkur ár aftur í tímann
og staða blökkumanna borin saman
við hana eins og hún er í dag sést
að ýmislegt hefur áunnist til hags-
bóta fyrir blökkumenn. Og frekari
umbætur eru á leiðinni.
Þetta sér hver sanngjarn maður er
af hlutleysi ber saman ástandið við
það sem var áður.
Viðræðunefnd, undir forystu P.W.
Botha forsætisráðherra, hefur átt í
viðræðum við leiðtoga blökkumanna
um endurskoðun á stjórnlögum þessa
lands með það meginmarkmið að ná
samningum og samstöðu um nýja
stjórnarskrá þar sem réttindi
blökkumanna verði tryggð.
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla
áherslu á þessar viðræður.
1 hinni nýju stjórnarskrá verður
kveðið á um borgaraleg réttindi allra
íbúa Suður-Afríku, og yfirráðum eins
kynþáttar yfir öðrum á skýran hátt
hafnað.
Valddreifing verður aukin og eng-
inn kynþáttur undanskilinn frá því
að hafa áhrif á ákvarðanatöku í
þjóðfélaginu.
Það er markmið ríkisstjórnarinnar
að i stjórnarskránni felist grundvall-
arréttindi um einn mann, eitt at-
kvæði.
Þá er ekki átt við einn mann, eitt
atkvæði, í þeirri merkingu er við
þekkjum við þingkosningar á Vest-
urlöndum og er ættað frá Englandi.
Slíkt kerfi myndi aldrei ná að festa
rætur hér, enda hefur það brugðist í
hverju einasta ríki á meginlandi
Afríku þar sem það hefur verið reynt,
þar sem fjölmargir kynþættir og
ættbálkar mynda þjóðfélög.
Meginástæða þess að við höfnum
því er sú að slíkt kerfi felur ekki í
sér neina tryggingu á réttindum
minnihlutahópa.
Eins og er hafa engin tímamörk
verið sett fyrir þessa stjórnkerfis-
breytingu, því eins og þú veist er
alltaf erfitt að vera bundinn af tíma-
mörkum á sama tíma og samninga-
viðræður eiga sér stað.
En það er stefna ríkisstjórnarinnar
að þetta verði gert hið fyrsta. Því
fyrr því betra.
Tutu málar ástandið svart
Ýmsir forystumenn blökkumanna,
er telja sig verðuga fulltrúa í hags-
munabaráttu kynbræðra sinna, hafa
mjög svo barist fyrir auknum refsiað-
gerðum gegn stjórn Suður-Afríku á
erlendri grund.
Meðal þessara manna er Desmond
Tutu biskup.
Tutu hefur leyft sér að vera með
fullyrðingar um suður-afrískt borg-
arastríð og annað í þeim dúr sem
alls ekki gefur rétta mynd af ástand-
inu.
Hann er að reyna að mála ástandið
svart hér því hann hefur undanfarna
mánuði barist fyrir refsiaðgerðum
gegn stjórnvöldum hér.
Fyrir mann í hans stöðu er hér um
að ræða mjög svo siðferðilega ranga
baráttu og tengist ekki ímynd þinni
um manneskju er nýlega ávann sér
friðarverðlaun Nóbels.
Refsiaðgerðir leiða ekki til neins
annars en frekara atvinnuleysis í
landinu og atvinnuleysið skapar enn
frekara hörmungarástand með alls-
herjar eymd og volæði þar sem
hungrið sverfur að.
„Það er langt frá þvi að einhugur og samstaða ríki i röðum blökkumanna, einfaldlega vegna þess að hörundslitur
þeirra er svartur. Auðvitað er samstaða á milli þeirra í vissum málaflokkum, en þó eru þeir ósammála í fleiri,“ sagði
Louis Nel.
SAAB SEnT
Seljumídag
Saab 900 GL árg. 1983, 4ra dyra,
drapp, beinskiptur, 5 gira, ekinn
56 þús. km, mjög fallegur bill.
Skipti möguleg á ódýrari. Verð kr.
490.000.
Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra,
Ijósblár, sjálfskiptur, ekinn 61 þús.
km, mjög góður bíll. Skipti á ódýr-
ari möguleg. Verð kr. 430.000.
Saab 99 GL árg. 1983, 4ra dyra,
Ijósdrapp, beinsklptur, 5 gfra, ek-
inn 50 þús. km, góður bill. Verð
kr. 400.000.
Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra,
dökkblár, sjálfskiptur, ekinn 61
þús. km, góður bill. Verð kr.
430.000.
Opið laugardag kl. 13—17.
TÖGCURHR
UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104.
Léttur, Ijúfur og þéttur
Þú eyðir u.þ.b. 1/3 hluta œvi þinnar í svefn og hvíld.
Því skiptir það máli að þú veljir góðan kodda, - kodda
sem veitir höfði og hálsi nákvœmlega réttan stuðning.
Latex koddinn er hannaður til þess að mœta ítrustu
krðfum vandlátra notenda og er prýddur fjölmðrgum
kostum:
• Hann er gerður úr hreinú náttúrugúmmfi, - sérstaklega
hreinlegu efni sem hrindir frá sér ryki og óhreinindum og
þolir þvott. Hann er því einnig mjög heppilegur fyrir þá
sem þjást af ofnœmi, asma og heymœði.
• 3000 rörlaga loftgöt sjá um að loftið leikur um koddann
að innanverðu, - einstakt loftrœstikerfi sem tryggir
jafnframt að koddinn heldur ávallt lögun sinni, er mjúkur
og fjaðurmagnaður.
Haltu þér fast! — Verðið kemur á óvart!
Við erum með tvœr gerðir af Latex koddum: ^fajr— i.1
Mýkri gerð á kr.709.-Stífari gerð á kr.839.- $0,
& Dunlopíllo
Útsölustaðir:
Hagkaupsbúðirnar
Reykjavík, Njarðvík og Akureyri
LY&TADUn
Dugguvogi 8-10
Sími 84655