Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986. 3 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Ríkismat sjávarafurða: Fær 20 nýja bfla í spamaðarskyni Gengið hefur verið frá því að Ríkismat sjávarafurða fái 20 nýja bíla til notk- unar fyrir stofriunina. Nokkrir bílanna eru þegar komnir en hinir verða af- hentir stofhuninni innan skamms. „ Þetta er fyrst og fremst spamaðar- aðgerð. Okkur reiknast svo til að spamaðurinn vegna nýju bílanna verði á 3 milljón á ári. Stofnunin hefur leyst sín bílavandræði með bílaleigu- bílum og aksturssamningum við starfsmenn. Það hefur verið ansi dýr rekstur," sagði Haukur Ingibergsson, rekstrarstjóri Ríkismats sjávarafurða. Bílamir em flestir litlir fólksbílar en 7 þeirra em nokkuð stórir og ætlað- ir til keyrslu á snjóþungum svæðum og þar sem malarvegir em slæmir eins og á Vestíjörðum, Austfjörðum og Norðurlandi. -KB Hart í bak í Borgarfirði: Tekið upp á myndband Frá Snorra Kristleifssyni, fréttarit- ara DV í Borgarfirði: Stefrit er að því að hafa aukasýn- ingu á leikritinu Hart í bak sem Umgmennafélag Reykdæla sýndi í Logalandi fyrir áramót. Verður sýn- ingin á miðvikudagskvöld, ef af verður, og mun hún þá verða tekin upp á myndband. Er hugmyndin að hún verði auglýst og þá tekin upp að áhorfendum viðstöddum. Leikverkið Hart í bak er sem kunnugt er eftir Jökul Jakobsson. Ungmennafélag Reykdæla setti það upp í haust og sýndi við góðar undir- tektir. Leikstjóri er Oddur Bjömsson en leikendur era 12 talsins. Hart í bak var sýnt í Logalandi í Borgarfirði. Myndin er tekin á frumsýn- ingu. DV-mynd Snorri Fremst á myndinni sjást þrír þeirra 20 bíla, sem Ríkismat sjávarafurða á að fá til þess að spara í rekstri fyrirtækis- ins, standa þegar fyrir utan aðalskrifstofumar að Nóatúni 17 í Reykajvík. DV- mynd KAE Sænsk-íslenska skáksveitin komst í úrslit Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Svíþjóð. Malmö SS, skáksveitin sænsk- íslenska, varð í fjórða sæti í úrslitum um sænska meistaratitilinn í sveita- keppni sem lauk nýlega hér í Svíþjóð. Það kom verulega á óvart þegar Malmö SS komst í úrslitakeppni fjög- urra sveita eftir að hafa orðið i öðm Séra Torfi Stefánsson sigraði sæti í suður-riðli keppninnar áður. I ilrslitum sigraði Stokkhólmssveitin, FK Rockatin, sem skipuð var nokkr- um alþjóðlegum meisturum. Hlaut 17 vinninga. Malmö SS hlaut 8 vinninga. í hverri sveit tefla átta menn og fjór- ir íslendingar tefldu í sveit Malmö SS, þeir Júlíus Friðjónsson, Amór Einars- son, sem lengi hefur verið búsettur í Malmö Malmö, Gunnar Finnlaugsson og séra Torfi Stefánsson. Hann er í framhalds- námi í Lundi. Séra Torfí sigraði með miklum yfir- burðum í meistaraflokki á Malmö- meistaramótinu í skák. Hlaut 8,5 vinn- inga af níu mögulegum. Það var í næstbesta flokknum á mótinu, einnig teflt í landsliðsflokki. hsím L i IX l\ n B Q IR i fflw^flug Landamæri Luxemborgar liggja að Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu. Vegakerfi þessara landa skila þér auðveldlega á áfangastað. Dyr að töfrum Evrópu Flug til Luxemborgar fram og til baka kostar frá kr. 13.350. * Þar bjóð- ast einnig bestu bílaleiguverð í Evrópu: Bíll í viku á aðeins kr. 61001* Evrópustrætó Flugleiða - flugleiðin Keflavík/Luxemborg - hefur ferjað þúsundir (slendinga til Findel flugvallar. Sumir halda strax áfram ferðinni, aðrir dvelja lengur í Luxemborg. Þeir bera margt úr býtum. Hvort sem þú unnirfögrum listum, eða hefur lyst á góðum mat getur Luxemborg satt big. Hér er gaman að njóta útivistar í skógivöxnu fjalllendi, skoða markverða staði og lifa Ijúfu lífi á hótelum og gistihúsum. Hertogadæmið Luxemborg heilsar gestum sínum með hógværð og yndisþokka: Fagurgrænir akrar, þróttmikill trjágróður, vínviðurinn í hæðunum meðfram Mósel, lítið sveitaþorp í þröngu gljúfri, kyrrlátt mannlíf í skjóli kastala og kirkju. í Luxemborg kristallast menning tveggja þjóða. Landið hefur sérstööu sem þú getur fært þér í nyt. Við bjóðum þér bestu bílaleiguverð í Evrópu i ' Verö miðað við PEX fargjald eftir 1. aprll 1986, og bflaleigubil I B flokki. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, umboösmenn og feröaskrifstofur. Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500. Upplýsingasími: 25100 FLUGLEIÐIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.