Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Síða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986. Fréttir Fréttir Björk Bjarkadóttir sést hér í fangageymslu Lögreglustöðvarinnar við Hverf- isgötu. Mikið hefur verið að gera í fangageymslum lögreglunnar að undanförnu. 46 menn gistu t.d. þar í 25 klefum aðfaranótt mánudagsins. DV-mynd: KAE Ófremdarástand í fangelsismálum: „Mikið um fíkni- efhi á Litla- Hrauni“ - segir Björk Bjarkadóttir, formaður Fangavarðafélagsins - Dómsmólaráðuneytið opnaði leið fyrir fíkniefni inn á Litla- Hraun 1980 í kjölfarið á því að tveir fangar struku út af Litla-Hrauni á dögun- um vöknuðu upp þær spumingar hvort fangelsismál hér á landi væru nægilega traust. Einnig hefur verið rætt um fíkniefnamól í fangelsum, en flestir fangar, sem eru bak við lás og slá, eru þar vegna fíkniefna- ókæru. Fangamir tveir, sem stmku á dögunum, sögðu að á Litla- Hrauni væri allt fullt af fíkniefnum og að fangaverðir lokuðu augunum fyrir fíkniefhaneyslu þar. „Það er rétt að mikið er um fíkni- efni á Litla-Hrauni. Það er aftur á móti rangt að fangaverðir séu fegn- ir þvi að fangar séu í vímu þar. Það er nógu erfitt að eiga við þá alls- gáða svo öðm sé ekki bætt þar ofan á,“ sagði Björk Bjarkadóttir, for- maður Fangavarðafélagsins. „Við erum orðnir langþreyttir á því að skuldinni sé skellt á okkur vegna óstandsins á Litla-Hrauni. Það er leitað reglulega í klefum fanganna, en það er ekki nóg. Dómsmálaráðuneytið setti þær reglur 1980 að hætta ætti að leita á fólki sem kæmi í heimsókn til fang- anna. Þetta var gert til að spara. Það gefur því augaleið að opin leið er fyrir gesti fanganna að koma með fíkniefni og jafnvel brennivín inn fyrir veggi fangelsins. Þessi regla var sett á þrátt fyrir mótmæli okk- ar. Gestir fanganna hafa leyfi til að dveljast inni í klefum þeirra frá kl. 11 til 18 á sunnudögum, þannig að þá er oft veisla," sagði Björk. Björk sagði að það væri ekki nóg að opin leið væri inn í fangelsið, heldur væri aðstaðan þar fyrir neð- an allar hellur. „Ástandið er vægast sagt uggvænlegt þar og í öllum fangelsismálum þjóðarinnar. Nú eru 56 fangar á Litla-Hrauni sem tekur aðeins 46 fanga með góðu móti. Þetta þýðir að einangmnarde- ild er ekki lengur til þar. Þeir fangar, sem brjóta af sér, með því t.d. að strjúka eða vera uþpvísir að því að nota fíkniefni, em ekki settir á einangmnardeild, heldur beint inn í þann klefa sem þeir dvöldust í. í þeim klefa geta þeir haldið áfram að vera í vímu fíkniefna ef þeir em með góðan felustað," sagði Björk. „Aðstæður á Litla-Hrauni eru mjög slæmar. Herbergin em lítil, eða svokallaðir „skápar", og þá er aðeins einn sturtuklefi fyrir alla fangana. Við þessar aðstæður er vinnuaðstaða fangavarða ekki nægilega góð. Það er óþolandi að gestir fanga geti gengið inn í fangel- sið með alla þó hluti sem þeim sýnist. Það verður að gera róttækar breytingar á fangelsismálum hér ó landi. Litla-Hraun leysir engan vanda. Það er staður sem ekki er mönnum bjóðandi," sagði Björk Bjarkadóttir, formaður Fanga- varðafélagsins. -SOS Stjórnmál Stjórnmál Litla-Hraun. Þar er hægt að fá nóg af fíkniefnum til neyslu. Selurinn sendur upp í efri deild Frumvarp um selveiðar verður að líkindum afgreitt úr neðri deild Al- þingis í dag og sent á vit örlaga sinna til þeirrar efri. Þetta er í þriðja sinn sem frumvarp um selveiðar er lagt fram á Alþingi. Mjög skiptar skoðan- ir em um frumvarpið. Á síðasta þingi blossaði upp mikill ágreiningur i efri deild sem lauk með því að afgreiðslu var frestað. í atkvæðagreiðslu í gær samþykktu 22 þingmenn fmmvarpið, 9 voru á móti og 9 fjarverandi. Þrír stjómar- þingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Það voru stjálfstæðis- mennirnir Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson og framsóknarmaður- inn Ólafur Þ. Þórðarson. Alþýðu- bandalagið klofnaði í afstöðu sinni til fmmvarpsins. Guðrún Helgadóttir, Guðmundur J. Guðmundsson og Garðar Sigurðsson greiddu atkvæði með frumvarpinu. Aðrir alþýðu- bandalagsþingmenn voru á móti. Bandalag jafhaðarmanna, Kristín Syndaselurinn fær sinn tíma á Alþingi. Kvaran og Kvennalisti greiddu at- kvæði gegn fmmvarpinu. Allir þingmenn Alþýðuflokks voru fjarver- andi atkvæðagreiðsluna. Frumvarpið fer nú til umfjöllunar í efri deild. Þar eru mjög skiptar skoð- anir um það og óvíst hvort tekst að afgreiða það á þeim 6 þingfundardög- um sem eftir eru af þessu þingi. -APH Alþýðuflokkurinn kominn á myndband Sögu Alþýðuflokksins hefur nú ve- rið komið fyrir á myndbandi. Bryndís Schram er stjórnandi og Helgi Skúli Kjartansson spyrill og þulur. Fram- leidd hafa verið 100 eintök og i ráði er að sýna myndbandið i félögum flokksins víða um landið. Þá er ráð- gert að frumsýna myndina kvöldið fyrir 1. maí. Tilefnið að gerð myndarinnar er að nýlega varð Alþýðuflokkurinn 70 ára. Myndin byggist upp á því að rætt er við ýmsa aðila sem lótið hafa að sér kveða í starfi flokksins frá upphafi. Fyrirtækið Myndvarp sá um gerð myndbandsins og Karl Sigtryggsson sá um klippinguna. -APH Bessastaðahreppur: I Oháðir bjóða fram Ný hagsmunasamtök hafa ákveðið að bjóða fram til sveitarstjómarkosn- inganna i Bessastaðahreppi. Samtök- in eru óháð pólitískum flokkum. Stefna þeirra byggist á innansveitar- málum og áhersla er lögð á umhverf- ismál. Anna Ólafsdóttir Björnsson sagn- fræðingur skipar efsta sæti listans. í öðru sæti er Ásgeir Sigurgestsson framkvæmdastjóri, í þriðja Þorkell Helgason prófessor, í fjórða Svein- björg Vilhjálmsdóttir tónlistarkenn- ari, i fimmta sæti Auðunn Svein- björnsson læknir, i sjötta sæti Erla Guðjónsdóttir kennari, í sjöunda Auður Óskarsdóttir starfsstúlka, í áttunda Eggert Á. Sverrisson við- skiptafræðingur, í níunda ólafur Stefánsson ráðunautur og i því tíunda Hannes Pétursson skáld. -APH I Bílasalan Lvngás hf. Lyngási 8 • Garðabæ Símar: 651005 - 651006 - 651669 Jeppar tii sölu, ýmis skipti möguieg 140 Range Rover '82 kr. 960 þús. 516 Pajero '85 kr. 660 þús. 178 Range Rover '81 kr. 760 þús. 422 Toyota Hi-Lux D '82 kr. 600 þús. 349 Range Rover '78 kr. 580 þús. 501 Bronco Custom '79 kr. 590 þús. 17 Volvo Lappl. '81 kr. 520 þús. 68 Blazer disil '77 520 þús. 279 Willys Golden Eagle '81 kr. 475 þús. 510 Willys Cherokee '77 kr. 400 þús. Opið virka daga kl. 9-19. Opið laugardaga kl. 10-17. 489 Blazer '74 kr. 360 þús. 470 Bronco Rancher '77 kr. 300 þús. 125 Range Rover '75 kr. 335 þús. 331 Range Rover '75 kr. 360 þús. 295 Scout II '78 kr. 320 þús. 232 Volvo Lappl. '82 kr. 385 þús. 187 Range Rover '73 kr. 280 þús. 203 Bronco '75 kr. 225 þús. 233 Bronco '73 kr. 255 þús. 241 Bronco '74 kr. 240 þús. Látið skrá bílinn strax. Mikil eftirspurn eftir nýleg- um bílum. 379 Willys '65 kr. 250 þús. 34 Range Rover '73 kr. 265 þús. 13 Willys Wagoneer ‘76 kr. 225 þús. 402 Bronco '73 kr. 220 þús. 451 Bronco '74 kr. 210 þús. 471 W. Wagoneer 12 kr. 230 þús. 466 Toyota Landcruiser '66 kr. 250 þús. 396 W. Wagoneer '72 kr. 230 þús. 305 Suzuki Fox 4x4 ‘82 kr. 210 þús. 426 Willys '66 kr. 220 þús. 428 Bronco '74 kr. 240 þús. 216 Bronco Ranch. 074 kr. 250 þús. 583 Bronco '74 kr. 230 þús. 530 Willys 5 J. '67 kr. 280 þús. og fl„ og II. Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202 Cherokee riAMCIJeep Wagoneer EGILL VILHJÁLMSSON Cherokee 2ja dyra frá kr. 950 þús. Cherokee 4ra dyra frá kr. 1.050 þús Wagoneer frá kr. 1.200 þús. Getum útvegað nokkra bíla með stuttum fyrirvara. AMC brautryðjandi í 4x4.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.