Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Side 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Nýjar lánareglur um ein- ingahús: „GJörbreynr stöðu iðngreinarinnar1 ‘ - segir formaður Sambands einingahúsaframleiðenda Nýjar reglur um lánafyrirkomulag fyrir einingahúsabyggjendur eru nú til umfjöllunarhjá félagsmálaráðherra og stjóm Húsnæðisstofnunar. Regl- umar vom samdar af neíhd sem skipuð var fulltrúum Húsnæðisstofn- unar og fulltrúum byggingaraðila. „Við getum vel sætt okkur við þess- ar reglur. Þær myndu gjörbreyta stöðu þessarar iðngreinar,“ sagði Guðmund- Verðlaunin em stytta úr bronsi og marmara gerð af spánska mynd- höggvaranum Martin Perrilán. Verð- launahafar mega nota mynd af styttunni í auglýsingar og á umbúðir framleiðslu sinnar. Sólhf. hlýtur verðlaun Sól hf. hefur hlotið hin kunnu al- þjóðlegu verðlaun „Internationle Food Award 1986“ fyrir frammistöðu í íslenskum matvælaiðnaði. Iðnfyrirtæki sem hljóta verðlaunin em valin af alþjóðlegri dómnefnd sem fær ábendingar, m.a. frá verslunarráð- um, samtökum iðnaðarins, alþjóðleg- um samtökum og fjölmiðlum. Auk þess gera veitendur sjálfstæða úttekt á matvælafyrirtækjum sem þykja standa sig vel á alþjólegan mæli- kvarða. Farrýmis- skipting í Ameríkuflugi Flugleiðir hafa tekið upp farrýmis- skiptingu á öllum flugleiðum félagsins milli landa. Tvö ár em síðan fétagið hóf að bjóða upp á „Saga Class" í áætlunarflugi til Norðurlanda og Bretlands. Síðan hafa aðrar leiðir bæst við og nú í vor leiðin milli Lúx- emborgar og Bandaríkjanna. Á „Saga Class" sitja þeir farþegar sem greiða svokallað normalfargjald eða Saga Class-fargjald. Rýmra er um þessa farþega í vélinni. Ennfremur fá þeir betri þjónustu og fría drykki. -KMU ur Sigurðsson, formaður Sambands einingahúsaframleiðenda. Einingahúsafyrirtækin hafa átt mjög erfitt uppdráttar m.a. vegna þess að reglum um lán var breytt snemma á þessu ári. Áður giltu þær reglur að fyrsti hluti lánsins var greiddur út hálfum mánuði eftir fokheldi eininga- húsa. Vegna fjárhagsörðugleika hjá Húsnæðisstofriun var þessum reglum breytt á þann veg að sömu reglur hafa gilt um einingahúsabyggjendur og þá sem em að byggja á hefðbundinn hátt. Þetta hefur þýtt að lán hafa verið greidd út á mun lengri tíma. Félagsmálaráðherra skýrði frá því á Alþingi í vetur að þessar breytingar hefðu verið gerðar gegn hans vilja. Hann skipaði nefnd til að semja nýjar reglur. Þessar reglur em nú tilbúnar frá nefndinni. Reglumar gilda reyndar fyrir alla þá aðila sem standa í byggingarfram- kvæmdum, þ.e. bæði einingahúsa- framleiðendur og þá sem byggja og selja hús byggð á hefðbundinn hátt. Gert er ráð fyrir að fyrri hluti lánsins verði greiddur út hálfum mánuði eftir fokheldi. Ef húsinu er þá skilað fullfrá- gengnu að utan greiðist 55% út af láninu en annars 50%. Seinni hlutinn er síðan greiddur að fullu út, ef lokið hefur verið við frágang hita-, vatns- og raflagna, 6 mánuðum eftir fyrra lánið. Annars gilda núverandi reglur um nýbyggingarlán og þau greidd út í þremur áföngum. -APH Skipaiðnaðurinn Hvert stórverkefríið á fætur öðiu tapast úr landi Innan Landssambands iðnaðar- manna - samtaka atvinnurekenda í löggiltum iðngreinum - hafa menn nú þungar áhyggjur af stöðu skipaiðnaðar á íslandi. Á fundi, sem sambandsstjórn fé- lagsins hélt fyrir skömmu, kom fram að á undanförnum árum hafa íslensk fiskiskip iðulega verið send utan til viðhalds og viðgerða sem Stór verk hafa tapast úr landi að undanförnu Á undanförnum vikum hafi tap- ast úr landi mjög stór verk og ffamundan sé eitt stærsta verkefni í skipaviðgerðum sem nokkru sinni hefur verið í sjónmáli en það sé endurnýjun á Japanstogurunum. Til þess að þau verkefni lendi ekki einnig á lista hinna glötuðu tæki- færa telur sambandsstjórnin að ráðamenn þurfi að taka höndum saman um aðgerðir. Lengi hefur verið hugað að ráð- um til að bregðast við þessum vanda en sambandsstjórnin telur að tvær meginleiðir komi einkum til greina. Annars vegar sé að koma í veg fyrir að undirboðum frá erlendum aðilum, sem njóta stórfelldra ríkis- styrkja í heimalöndum sínum, sé tekið og hins vegar að gera ráðstaf- anir til jöfnunar á aðstöðu innlends skipasmíðaiðnaðar. Fyrir skipaiðnaðinn skipti ekki meginmáli hvor leiðin yrði valin heldur hitt að sem fyrst verði brugðist þannig við að þau verk- efni, sem íslenskum skipasmíðaiðn- aði er mestur akkur í, hverfi ekki úr landinu vegna aðstöðumunar milli skipaiðnaðar hér og í sam- keppnislöndunum. Á fundinum var samþykkt eftir- farandi ályktun: Landssamband iðnaðarmanna leggur til að ekki verði veitt lán úr opinberum sjóð- um til endurbóta eða viðgerða á fiskiskipum án þess að verkið hafi verið boðið út og viðurkenndar útboðsreglur hafðar í heiðri. Ef sannanlegt er að erlent tilboð sé niðurgreitt og ætla megi að niður- greiðslan ráði úrslitum um sam- keppnishæfni tilboðsins verði ekki veitt opinber fyrirgreiðsla vegna þess, nema að undangengnu mati ríkisstjórnarinnar á því hvort hún vilji jafna samkeppnisstöðu hins innlenda fyrirtækis, t.d. með niður- fellingu opinberra gjalda eða öðrum ráðstöfunum. -KB hæglega hefði mátt framkvæma á hagkvæman hátt innanlands. Þar með hafi horfið úr landi stór verk- efni sem hefðu getað veitt fjölda manns atvinnu. Það kom einnig fram að meginá- stæðan fyrir þessu eru niður- greiðslurnar sem notaðar eru í samkeppnislöndunum til að ná í erlend verkefni og íslensk stjórn- völd hafa ekki fram að þessu séð sér fært að bregðast við. Skipaiðnaðurinn nýtur stórfelldra ríkisstyrkja í samkeppnislöndum okkar sem gerir það að verkum að horfið hafa úr landinu stór verkefni sem veitt hefðu getað fjölda manns atvinnu. Nú óttast forráðamenn innan Lands- sambands iðnaðarmanna að eitt stærsta verkefni í skipaiðnaði, sem nokkru sinni hefur verið í sjónmáli hérlendis, eða endurnýjun á Japanstogurunum, lendi á lista hinna glötuðu tækifæra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.