Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986.
17,
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Fyrsti leikur íslands gegn
írlandi í Höllinni í kvöld
- Evrópukeppnin í körfii hefst í kvöld. Kemst ísland í b-keppnina í næsta mánuði?
í kvöld hefst í Laugardalshöll Evr-
ópukeppni karla í körfuknattleik.
Leikið verður á hverju kvöldi út
þessa viku en keppninni lýkur á laug-
ardag. Þessi Evrópukeppni er sú
fyrsta sem haldin er hér á landi í
karlaflokki.
Hingað eru komin til leiks fjögur
lið og fyrstu leikirnir fara fram í
kvöld. Setningarathöfnin hefst
klukkan sjö en að henni lokinni hefst
fyrsti leikurinn og eigast þar við
landslið Skota og Portúgala. Klukk-
an níu hefst síðan leikur íslands og
Irlands. Ef ekkert óvænt kemur upp
á ætti íslenska liðið að sigra írana í
kvöld en góður stuðningur áhorf-
enda er nauðsynlegur eins og svo oft
hefur komið í ljós í Höllinni. Fimmta
liðið sem hér leikur er lið Noregs en
Norðmennirnir hvíla í kvöld. Þeir
hafa á að skipa snjöllu landsliði sem
hefur verið í ótrúlegri framför á síð-
ustu mánuðum. Flestir spá því að
Norðmenn leiki til úrslita í þessum
riðli við íslendinga en sigurvegarinn
í riðlinum tekur þátt í b-keppninni
sem fram fer í næsta mánuði.
Frábær undirbúningur
Svo virðist sem allur undirbúning-
ur að þessari keppni hérlendis sé
mjög viðamikill og vandaður. Og nú
verður í fyrsta skipti hér á landi
notuð sérstök tölva við alla úr-
vinnslu varðandi leikina. KKÍ virð-
ist hafa lagt mikla vinnu í
undirbúning fyrir þessa keppni og
líklegt er talið að ekki verði um fjár-
hagslegan halla að ræða og er það
vissulega afrek út af fyrir sig þegar
um svo mikið mót er að ræða.
• Norðmenn mæta til leiks með
stærsta leikmanninn og stærsta liðið
í heild. Stærsti leikmaðurinn heitir
Georg Posti og er hann 2,10 metrar
á hæð. Tveir aðrir leikmenn norska.
liðsins eru yfir tvo metra á hæð.
Hvað gerir íslenska liðið?
Það er vissulega nokkurt spurn-
ingarmerki því ekki er mikið vitað
um andstæðingana að þessu sinni þó
líklegt sé að leikir íslenska liðsins
verði jafnir og spennandi. Allir bestu
leikmennirnir sem gjaldgengir eru í
íslenska landsliðið verða með og vel
hefur verið vandað til undirbúnings
íslenska liðsins. Frá því að undir-
búningurinn hófst fyrir þessa
Evrópukeppni hefur íslenska lands-
liðið leikið 35 landsleiki og sigrað í
19 þeirra en tapað 16. En fyrsti leik-
urinn sem máli skiptir er í kvöld
gegn írum og íslenska landsliðið
verður þannig skipað:
Pálmar Sigurðsson
Páll Kolbeinsson
Jón Kr. Gíslason
Torfi Magnússon
Þorvaldur Geirsson
Símon Ólafsson
Matthías Matthíasson
Guðni Guðnason
Valur Ingimundarson
Birgir Mikaelsson
Varamenn eru Tómas Holton,
Hreinn Þorkelsson og Ragnar Torfa-
son. Sigurður Valur Halldórsson
dæmir fyrir íslands hönd á mótinu.
A morgun leika svo Noregur og ír-
land klukkan 19.30 og klukkan 21.00
ísland og Skotland. _SR
Dani til Fram
- Per Skárup, sem leikið hefur 105 landsleiki fyrir Dani í handknattlelk, mun
að öllum líkindum þjálfa og leika með Fram á næsta keppnistímabiii
• Torfi Magnússon, fyrirliði íslenska
landsliðsins í körfuknattleik.
i
L
Allt bendir nú til þess að Per
Skárup, sem leikið hefur 105 lands-
leiki fyrir Dani i handknattleik,
muni gerast þjálfari Fram og leika
með liðinu á næsta keppnistímabili.
Eftir því sem DV hefur hlerað hefur
Skái-up nú um nokkurt skeið staðið
í samningaviðrœðum við hand-
knattleiksdeild Fram um þjálfara-
stöðu félagsins ásamt öðrum Dana,
Morten Stig Christiansen, en Mort-
en Stig datt síðan út úr myndinni
um helgina er hann samdi við lið
Stavanger í norsku 1. deildinni.
Skárup var einn besti leikmaður
danska landsliðsins fyrir tveimur
áram. þá lenti honum illilega sam-
an við Leif Mikkelsen, þjálfara
liðsins, ásamt tveimur öðrum
landsliðsmönnum. Hann hefurekki
leikið með landsliðinu eftir það en
Mikkelsen var hins vegar harðlega
fordæmdur fvrir að nota ekki Skár-
up á HM fyrr á árinu.
Leiki Skárup með Fram á næsta
vetri eins og flest bendir til þá kem-
ur hann óneitanlega til með að
setja mikinn svip ú handknattleik-
inn. þó ekki væri vegna annars en
stærðar hans en hann er yfir tveir
metrar á hæð.
Skárup er 29 ára að aldri og hef-
ur leikið með Gladsaxe allan sinn
feril. Hann hefur ekki þjálfað lið
fyrr í meistaraflokki en meðmæli
meðal annars frá Anders Dahl Ni-
elsen eiga drjúgan þátt í því að
Fram hyggst nvta sér krafta hans.
-fros
• Gary Lineker
Lineker
sábesti
Gary Lineker, miðheiji Everton og
enska landsliðsins, var í gær kjörinn
knattspyrnumaður ársins á Englandi
af samtökum íþróttafréttamanna
þar í landi. Lineker, sem hefur skorað
33 mörk á þessu leiktímabili, hlaut
nær 80% atkvæða. í öðru sæti var
landsliðsfélagi hans hjá Southamp-
ton, Peter Shilton. í fyrra var Neville
Southall, markvörður Everton og
Wales, kjörinn knattspyrnumaður
ársins. hsím
KRfékkaukastig
KR fékk aukastig á Reykjavíkur-
mótinu i knattspyrnu þegar liðið
sigraði Þrótt, 4-0, á Hallarflötinni á
sunnudagskvöld. Willum Þórsson
skoraði tvö af mörkum KR, Július
Þorfinnsson eitt og Gunnar Gíslason
eitt mark - úr vítaspyrnu. KR lék
undan snörpum vindi í fyrri hálfleik
og skoraði þá eitt mark. Komst siðan
í 2-0 og tvö siðustu mörkin voru skor-
uð skömmu fyrir leikslok. f kvöld kl.
20.30 leika Ármann og Vikingur á
mótinu á Hallarflötinni.
• Magnús Teitsson skorar eitt marka sinna gegn Ármanni í gærkvöldi. Hermundur Sigmundsson sem skoraði 5
mörk fyrir Stjörnuna er lengst til hægri en við hlið hans stendur Ármenningurinn Einar Eiríksson.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Þrjú mörkÁrmanns
ífyrri hálfleiknum
- og Stjaman vann stóran sigur, 11-22, og leikur til
úrslita í bikamum gegn Víkingi
Stjörnumenn tryggöu sér réttinn
til að leika til úrslita í bikarkeppni
HSI í gærkvöldi er þeir gersigruðu
afspyrnuslaka Ármenninga með
helmingsmun, 11-22, í undanúrslitum
keppninnar í Laugardalshöll. Staðan
í leikhléi var 3-9 Stjörnunni í vil.
Ármenningar geta þakkað markverði
sínum, Guðmundi Friðrikssyni, að
Stjarnan hafi ekki skorað helmingi fleiri
mörk í leiknum. Hann varði 21 skot í
leiknum og var langbesti leikmaður vall-
arins. Það er greinilegt að Ármenningar
sakna Egils Steinþórssonar sem nú leik-
ur knattspyrnu í Færeyjum. Leikur
liðsins var stjórnlaus og sumir leikmenn
liðsins hugsa mun meira um að rífast og
nöldra í félaganum en leika handknatt-
leik og má þar nefna Einar Eiríksson en
hann var sígargandi á félaga sína og
hnýtandi í þá skömmum og ónotum og
einnig stundaði hann að rífast í þjálfara
sínum. Ármenningar þurfa að laga margt
fyrir 1. deildar keppnina næsta vetur og
þar með talinn liðsandann.
Eftir markalausar tíu mínútur í upphafí leiks-
ins fóru leikmenn Stjörnunnar í gang og staðan
í leikhléi 3 9 og,segir það allt sem segja þarf
um sóknarleik Armenninga. í síðari hálfleik^
dofnaði verulega yfir leiknum en minnstur varð
munurinn þegar staðan var 8 12 og 20 mínútur
eftir.
Mörk Stjömunnar: Sigurjón Guðmundsson 4,
Magnús Teitsson 4, Hermundur Sigmundsson '
5/2, Hannes Leifsson 3/1, Einar Einarsson 3,
Hafsteinn Bragason 2 og Stefán Þorsteinsson 1.
Mörk Ármanns: Haukur Haraldsson 4, Einar
Eiríksson 4/2, Bragi Sigurðsson 2, Friðrik Jósa-
fatsson 1 og Einar Nábye 1.
lieikinn dæmdu þeir Ólafur Haraldsson og
Stefán Amaldsson. _SK
ÍBR ___________________ KRR
REYKJAVIKURMÓT
M EISTARAFLO KKU R
í kvöld kl. 20.30
ÁRMANN - VÍKINGUR
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL