Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Qupperneq 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986. 2fy Sandkorn Sandkorn Kristinn Finnbogason. Þolprófuð vatnsrenni- braut Nú stendur til að byggja mikla útisundlaug i Kópa- vogi, nánar tiltekið á Rútstúni. Mikið verður vandað til þessa mannvirk- is ef að likum Iætur. Til dæmis má reikna með að þar verði komið fyrir marg- víslegum vatnsleiktækjum til að Kópavogsbúar geti leikið listir sínar að vild. Á fund, sem starfshópur um sundlaugarbygginguna hélt ekki alls fyrir löngu, komu tveir norskir söluað- ilar með Kristin Finnboga- son i broddi fylkingar. Kynntu þeir vatnsrenni- brautir og fleiri sundlauga- leiktæki fyrir fundarmönn- um. Má heita öruggt að tækin þau arna standi fyrir sínu hafi þau verið þolpróf- uð af Kristni og Co. Kópavogsbúar ættu þvi ekki að vera smeykir við að prófa vatnsrennibraut- ina verði hún sett upp á annað borð. Messuvínið ágætt F ermingafaraldurinn stendur sem hæst um þess- ar mundir. Segir sagan að ónefnt fermingarbarn hafi verið spurt hvernig því hefði likað athöfnin í kirkj- unni: „ Þetta var allt í lagi,“ svaraði barnið. „Messuvín- ið var ágætt, en hún var ekki eins góð, altaristafl- Elskhugamir renna út Það hljóp heiftarlega á snærið hjá JC-mönnum á Suðurnesjum í síðastliðn- um mánuði. Þá fengu þeir á fund til sín Jóhönnu Sveinsdóttur blaðamann og rithöfund með meiru, þá hina sömu og skrifaði bók- ina „íslenskir elskhugar.“ Vitaskuld rigndi spurning- unum yfir Jóhönnu á fundinum; hvers vegna hún hefði skrifað bókina, hvort íslenskir karlmenn væru lausari við kynlífs-og til- finningavandamál en karlmenn annarra þjóða o.s.frv. Þegar þeim þætti fundar- ins var lokið tók höfundur- inn sig til og las nokkra valda kafla úr „Islenskum elskhugum." Enn höfðu einhveijir fundarmanna ekki fengið nóg. Þeir stukku þá í höf- undinn, spurðu þess sem þá fýsti að vita, keyptu svo bókina, áritaða að sjálf- sögðu. Sandpokar á ferð og flugi Það er engu oflogið um vitleysisganginn sem getur gripið um sig í útlöndum. Þessu fengu skákmennirn- Helgi Ólafsson. Jón L. Árnason. ir okkar, þeir Jón L„ Helgi Ólafsson, Margeir og Karl Þorsteins, að kynnast þeg- ar þeir voru á opna skákmótinu í New York á dögunum. Þeir félagar dvöldu i góðu yfirlæti á Penta-hótelinu. Svo var það einn daginn þegar þeir höfðu lokið tafl- mennsku og voru á leið til herbergja sinna að þeir urðu varir við einhver ólæti á hótelinu. Þegar betur var að gáð reyndist einhver ólmur ná- ungi hafa laumast með helling af sandpokum upp á efri hæðir byggingarinnar. Þar hafði hann hreiðrað um sig og stytti sér svo stundirnar við að dúndra pokunum út um glugga. Voru þeir sem áttu leið um gangstéttina við hótelið i bráðri lifshættu. En svo kom löggan, eins og í öllum traustum hasar- þáttum, yfirbugaði vitleys- inginn og hafði hann á brott með sér. En aldrei vitnaðist hvaða ástæður voru fyrir þessum gegndarlausa sand- austri úr glugga Penta- hótelsins i New York. Yfirvinna skólastjóra I nýjasta félagsblaði Bandalags kennarafélaga er að finna eftirfarandi fróðleiksmola: „Það hefur flogið fyrir að þeir skólastjórar sem taki störf sín alvarlega, séu al- mennt að sligast undan vinnuálagi þessa dagana. Hafi þeir sést á harðahlaup- um á siðkvöldum i humátt á eftir skólariturum til að gæta þess að ritararnir uppfylli þær velsæmiskröf- ur sem sumir telja að gera þurfi til fólks í slíkum á- byrgðarstöðum. Enn er ósamið um hvern- ig launadeildin mun greiða þessa yfirvinnu skólastjór- anna en liklega verður annaðhvort um fasta yfir- vinnu að ræða eða greiðslu samkvæmt reikningi." Já, það er hægt að gera ýmislegt til að auka tekj- urnar. Umsjón: Jón G. Hauksson Menning Menning STABAT MATER Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands og Söngsveitarinnr Fílharmóniu í Háskólabiói 10. apríl. Stjórnandi: Guðmundur Emilsson. Einsöngvarar: Katrin Sigurðardóttir, Sig- riður Ella Magnusdóttir, Guðbjöm Guð- bjömsson, William Sharp. Verkefni: Stabat Mater eftir Antonin Dvor- ák. Antonin Dvorák var enn ungur maður og alls ófirægur þegar hann samdi Stabat Mater. Ári áður samdi hann fimmtu sinfóníu sína, sem lengi vel var skráð sem hans fyrsta. Sta- bat Mater er samin, eins og flest önnur samnefhd verk, við sálm Jacopone da Todi frá þrettándu öld. í það þynnsta Kórinn kom vel undirbúinn til tón- leikanna. Hann virtist allavega kunna sitt vel og hefði þess vegna mátt syngja betur út því hér verkaði hann í minnsta lagi. Það kom sér út af fyrir sig vel fyrir karlaraddim- ar sem höfðu í fullu tré við kven- raddimar. En í sönginn vantaði hins vegar glans og háraddimar virtust einatt í það þynnsta skipaðar, eink- um í síðari hlutanum þegar stígand- in óx. Mjög ungt lið Einsöngvaraliðið var mjög ungt og næsta undarleg tilfinning að sjá Sigríði Ellu sem Nestor í hópnum. Reynsla hennar og óbrigðult söng- öryggi kom sannarlega til góða í samsöngnum. Svo loks þegar að hennar stóm sóló kom, „Inflammat- us et eccensus", brilleraði hún líka. Katrín Sigurðardóttir vex með hveiju verkefni. Hæð hennar er af- bragð og röddin vex óðum í dýptinni líka, en þar er hennar helsti veik- leiki. Guðbjöm Guðbjörnsson býr yfir miklum hæfileikum og virðist Antonin Dvorák. stefna rétta leið í rækt þeirra. Radd- týpan og karakterinn vísa beina leið til óperunnar, þótt rangt væri að ætla að framtíð hans takmarkaðist við óperusviðið eitt. Hann er eitt af Tónlist EYJOLFUR MELSTED þessum efnum sem koma mönnum til að fúllyrða að framtíð sönglistar- innar sé ámóta björt á íslandi og framtíð skáklistarinnar. William Sharp fengum við að kynnast þegar hann söng Davíðs- sálm Mistar Þorkelsdóttur með Islensku hljómsveitinni. Síðan hafa menn haft á honum hið besta álit hér norður frá. Hann brást heldur ekki vonum manna. „Fac ut arde- am“ söng hann prýðisvel, af stillingu og með lotningu. Hann er góður gestur sem gjaman mætti heyrast oftar í hjá okkur. Maður hljómsveitarinnar Einn var sá þáttur sem heldur varð afskiptur í flutningi þessum - þáttur hljómsveitarinnar. Dvorák var eitt örfárra stórra tónskálda nítjándu aldarinnar sem kom úr hljómsveit. Hann var lágfiðluleikari. 1 öllum hans verkum skín hljómsveitar- hugsun í gegn, jafhvel í „Slovanské tance“ og „Legendy", sem samin voru fyrir tvö píanó, þótt vart komi það fram f sönglögunum. Það á sér svo aftur sína sögu. Þau voru jafnan sveigð (sumir segja svínbeygð) að þýskum texta, meira að segja „Biblícke Písne“, sem samin voru við texta úr „Kralice Biblíunni". Þar voru raddimar miskunnarlaust um- skrifaðar og eyðilagðar til að falla að þýskum biblíuþýðingum. Fagmannlegt áhugaleysi Það þarf engan sérfræðing til að sjá og heyra hversu óskaplega mikil- vægur hljómsveitarþátturinn er hjá Dvorák. En hér lenti hann hálf- partinn utangarðs. Guðmundur virtist einbeita sér að því að leiða og stýra söngliðinu. Hljómsveitin fékk lágmarkssinningu og því var eins og hún gengi af sjálfu sér, rétt eins og vinnuvél sem sett væri í ákveðinn gír og fasta olíugjöf. Hljómurinn lýsti því sem ég vildi kalla fagmannlegt áhugaleysi. Hljómsveitin okkar skilaði nótunum nokkum veginn kórrétt en spilið var hreint út sagt steingelt. Hveiju sem um var að kenna þá vantaði vegna þessa sálina i flutninginn og það þótti mér afar miður þar sem um svo undurfallega músík var að ræða. EM. MYNDIR Kristínar Jónsdóttur listmálara Eigendur að þeim myndum eftir Kristínu Jónsdóttur, sem ekki hafa enn verið skrásettar, eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til Aðalsteins Ingólfssonar list- fræðings, sími 672087. SOKNARFELAGAR Starfsmannafélagið Sókn auglýsir orlofshús í Ölfus- borgum, Húsafelli og Svignaskarði. Umsóknarfrestur er til 25. apríl. Þeir sem hafa áhuga á skiptiferðum til Danmerkur hafi samband við skrifstofuna sem fyrst. Starfsmannafélagiö Sókn KAFFIBOÐ! fyrir Iðjufélaga, 65 ára og eldri, verður á Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 20. apríl 1986 kl. 3 síðdegis. Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu félagsins frá þriðjudeginum 15. apríl nk. og við innganginn. Þeir sem óska eftir að taka miða við innganginn eru beðnir um að hringja á skrifstofu Iðju (s. 12537/ 13082) og láta taka frá fyrir sig miða. Fréttaskot D V Síminn sem aldrei seÍTlí Síminn er 68-28-58. Hafir þu abendirigu eda vitneskju um frétt hrmgdu’pa í sima 68—78—58. Fyrir hvert fréttaskot. sem birtist iDV, gieiðast 1.000 kr og 3.000 krónur fyr.ir besta frettaskotið í hvern viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Vió tokum við fréttaskotum allan solarhrmginn. Fréttaskot DV SímiM'semaldrelS®^ir Síminn er 68-78-58, Nauðungaruppboð sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Bergstaða- stræti 9 A, þingl. eign Estherar H. Guðmundsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudag 17. april 1986 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Freyju- götu 10 A, þingl. eign Siguriinu Davíðsdóttur o. fi., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudag 17. april 1986 kl. 15.45. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Bergþórugötu 27, þingl. eign Helgu Ág. Vigfúsdóttur, fer fram eftir kröfu Landsbanka islands á eigninni sjátfri fimmtudag 17. april 1986 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Grettis- götu 16, þingl. eign Áma Einarssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 17. april 1986 kl. 16.15. ___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.