Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Qupperneq 18
18
DV. LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1986.
Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan
„Anægjan
númer eitt“
- stórsveit PK stofnuð
Pétur Kristjánsson - upptekinn við upptökur á nýrri plötu.
„Það má segja að hugmyndin að
þessu hafi kviknað í vetur þegar við
Bjartmar fórum að syngja saman.
Fólk fór að koma til mín og kvarta
undan þvi að það vantaði gott rokk-
band í þennan bransa. Ég er sammála
því. Það er ástæðan fyrir því að þessi
sveit er stofnuð.“
Eftir sautján ára starf í sveitum á
borð við Pops, Svanfríði, Pelican,
Paradís, Póker og Start sagði Pétur
Kristjánsson skilið við poppbrans-
ann. Nú er týndi sonurinn snúinn
aftur heim. Pétur byrjaði í vetur að
syngja með Bjartmar Guðlaugssyni.
Nú hyggjast þeir tveir ásamt fleiri
góðum mönnum stofna rokkband
sem fer um landið seinni part sum-
ars! Forsmekkurinn af því sem koma
skal verður hljómplata sem unnið er
að þessa dagana.
„Þetta er fjögurra laga hljómplata
sem við erum að taka upp í Hljóð-
rita,“ segir Pétur. „Rokkið er eins
og rauður þráður í gegnum plötuna
en með ýmsum undantekningum þó.
Við tökum upp ýmsar tónlitarstefn-
ur. Ætli orðið fjölbreytt lýsi þessu
ekki best.“
Lola langlíf
Liðsskipan þessarar nýju nafn-
lausu sveitar er ekki af lakara
taginu. Söngvaranna Péturs og
Bjartmars hefur þegar verið getið.
Þriðji söngvari sveitarinnar verður
Eiríkur Hauksson sem einmitt starf-
aði með Pétri í Start. Trommur og
bassa slá ekki ófrægari menn en
Gunnlaugur Briem og Jóhann Ás-
mundsson og Kristján Edelstein, sem
var í Chaplin og Start, leikur á gít-
ar. Þriðji Mezzoforte-liðsmaðurinn,
Eyþór Gunnarsson, hefur jafnframt
aðstoðað við upptökurnar að undan-
förnu.
„Við ætlum að leggja upp seinni
part sumars og vera á ferðinni fram
á haust,“ heldur Pétur áfram. „Plat-
an sjálf kemur líklega út um miðjan
júlí þannig að hún undirbýr jarðveg-
inn.“
- Hvemig viðtökur gerið þið ykkur
vonir um að fá? Er fólk ennþá reiðu-
búið að fara á rokkdansleiki?
„Já, það er ég viss um. Við fundum
það vel þegar Start var starfandi og
ég tel að í raun hafi smekkur fólks
lítið breyst frá þeim tíma. Þegar fólk
fer á ball þá vill það heyra tónlist
sem það þekkir. Það kom fyrir að
eftir böll hjá Start var fólk kannski
ennþá að biðja okkur um að taka
Lolu, tveimur tímum eftir að dans-
leiknum lauk og við á leið út úr
plássinu.“
Aftur að ári?
Rokkið er sem sagt það sem blívur
í þessu bandi. Þessir reyndu leik-
rnenn eru ekki í minnsta vafa um
hlutverk sitt.
„Ánægjan verður númer eitt. Við
ætlum okkur að skemmta fólki og
við erum bjartsýnir á að það takist.
Ef vel gengur í sumar gæti alveg eins
verið að við færum aftur á stað að
ári. Eitt er allavega víst. Við erum
staðráðnir í að skemmta okkur.“
-ÞJV
Ljóstrað
upp
leyndarmálum
Það er kannski að bera í bakka-
fullan lækinn að minnast á popp-
tónleikana í höllinni á mánudag-
inn og þriðjudaginn. Og þó. Sjaldan
er góð vísa of oft kveðin, að
minnsta kosti þegar margir snjallir
tónlistarmenn úr röðum landans
eiga hlut að máli.
A þjóðhátíðardaginn ber líklega
frægasta að telja Rikshaw sem hef-
ur æft af miklum krafti að undan-
förnu. Heyrst hefur að von sé á
nýju efni úr þeirri átt á plasti og
forsmekk þess koma menn líklega
til með að heyra í höllinni.
Sigurvegarar Músíktilrauna,
Greifamir, eru einnig í plötuhug-
leiðingum. Þeir eiga inni sigurlaun
sín í stúdíóMjötog hyggjastnot-
færa sér þá tíma á næstunni.
Tónlist Greifanna hefur heyrst
bæði í útvarpi og sjónvarpi og ættu
því hallargestir að kannast við
mörg laganna. Ég efa allavega ekki
að lög eins og Ég vil fá hana strax
og Sólskinssöngurinn eigi eftir að
hita menn vel upp fyrir mannætu-
og Madness-söngva.
Grafík yljar
Ballið byrjar reyndar daginn fyr-
ir þjóðhátíð. Grafik kémur þá
saman eftir vetrarfrí. Efnisskrá
þeirra byggist líklega upp á lögum
af plötum sveitarinnar enda af
nógu að taka. Það verður örugg-
lega mikið dansað og öskrað undir
þeirri spilamennsku.
Og Grafík kemur meira við sögu
áður en LLoyd Cole og Simply Red
taka við. Fyrir stuttu var kynntur
hér á Rokkspildunni Bjarni nokkur
Tryggvason. Grafík, að Helga
Bjömss. undanskildum, mun leika
undir hjá Bjama. Þetta eru stærstu
tónleikar pilts til þessa. Það verður
spennandi að sjá hvernig til tekst.
Eins og málin standa í dag er
Bjami best geymda leyndarmálið í
íslensku tónlistarlífi. Væntanleg
plata hans og tónleikamir eiga eft-
ir að ljóstra því upp. Sjáiði bara til.
-ÞJV
Bjarni Tryggvason. - Uppl|ostrun a næsta leiti.