Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Qupperneq 21
DV. LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1986. 21 Fótsporin af- hjúpuðu falsarann Snjall listaverkafalsari í Stokk- hólmi hefur haft þekkta listfræðinga að spotti um mörg undanfarin ár. Falsarinn, sem er 49 ára gamall, hef- ur falsað mörg verk eftir Miró og Tapies og selt. Samtals munu þetta vera 40 verk. Sum Míró-málverk- anna eftir hann voru seld hjá því þekkta uppboðsfyrirtæki Christies í New York. En þar kom að lögreglan hafði hendur í hári hans - því eins og flestir aðrir skúrkar gerði hann alvarleg mistök sem urðu honum að falli. Falsarinn hefur fengist við list- fölsun síðan 1978. Hann býr í blokkaríbúð í gömlu hverfí í Stokk- hólmi og málaði þar svo nákvæmar eftirlíkingar af verkum Mírós og Tapies að sérfræðingar, menn sem oft eru kallaðir til ráðuneytis heims- horna á milli, sáu ekki við honum. Fjögur gallerí og einn virtur lista- verkasali í Stokkhólmi hafa keypt verk af falsaranum og selt aftur með dágóðum hagnaði. Einn listfræðinganna hefur meira að segja gefið út sérstakt vottorð um að verk hans séu ekta og upprunaleg. Falsarinn náði hátindi ferils síns í fyrrahaust þegar Christies seldi „Míró-málverk“ fyrir 12 000 dollara. í kjölfar þeirrar sölu seldi sama upp- boðsfyrirtæki fleiri af fölsunum Svíans. Erfitt að sanna Málið kom til kasta lögreglunnar í Svíþjóð haustið 1983. Þá keypti gallerí eitt í Stokkhólmi „Míró- málverk" fyrir 60 000 krónur (ísl). En sérfræðingur, sem síðan rannsak- aði myndina, fylltist grunsemdum og hélt því fram að Tiún væri fölsuð. Galleríið afhenti lögreglunni mynd- ina og gaf upp nafn seljandans. - Ég keypti þessa mynd af góðum vini listamannsins sjálfs á Spáni, sagði falsarinn þegar lögreglan tók hann í yfirheyrslu. Það er erfitt að færa sönnur á að listaverk sé falsað. Og lögreglan komst ekki lengra í málinu. Falsarinn hélt iðju sinni áfram. í apríl í ár auglýsti hann Míró-verk til sölu fyrir 50 000 kr og átti vottorð um að verkið væri ekta að fylgja. Vottorðið var útgefið af þeim sama listfræðiprófessor sem áður hafði tal- ið annað verk falsað. Lögreglan lagði nú einnig hald á þetta verk. Og eftir að hafa sótt ráð til prófessors við Konsthögskolan í Stokkhólmi þótt- ust menn vissir um að sami maður hefði málað allar myndimar sem lög- reglan hafði lagthald á- og sá maður hét ekki Míró. Til öryggis sendu menn síðustu myndina frá falsaranum til Míró- safnsins í Barcelona og þar voru menn fljótir að komast að því að myndin væri fölsuð. Pappírar fundust Nú fór lögreglan og handtók fals- arann. í íbúð hans fannst sams konar pappír og var í málverkunum föls- uðu. Þar fann lögreglan einnig málningu og pensla og annað sem þarf til að hræra saman litum og mála. Lögreglunni tókst að ná til sín úr galleríum og frá einkaaðilum einum 18 verkum eftir falsarann. Þau verk voru ýmist merkt Míró eða Tapies. En þótt flest benti til að maðurinn væri falsari skorti lögregluna enn fullnaðarsönnun þess að sá hand- tekni hefði i raun málað hin fölsuðu verk. Og þar kom að lögreglan hnaut um hin alvarlegu mistök. Spænski málarinn Antonio Tapies merkir margar mynda sinna með handa- eða fótaförum sínum. Það hafði listfalsarinn einnig gert. Játning - Þar með var falsarinn íjötraður á höndum og fótum við glæpinn, sagði lögregluforinginn sem hefur haft með málið að gera. - Við fórum létt með að komast að því að fótspor- in og fingraförin á verkunum voru hans eigin. Ég held að það sé ekki betra sönnunargagn til. Maðurinn hefur nú viðurkennt að hafa málað 40 til 50 verk á árunum frá 1978 til þess að lögreglan handtók hann 1984. - Hann lagði stund á listnám, fals- arinn, sagði lögregluforinginn, - og mun hafa staðið sig vel í náminu enda flinkur málari og duglegur. En lögreglan i Svíþjóð hefur ekki fundið nema 18 falsana hans. Hin verkin eru einhvers staðar á sveimi á alþjóðlega listmarkaðinum - eða hangandi heima á veggjum safnaranna. Lög- reglan í Svíþjóð vill því endilega hafa samband við þá sem keypt hafa verk eftir Míró eða Tapies á síðustu árum. Þau verk eru nefnilega hugs- anlega fölsk. Lögreglan telur að falsarinn hafi haft um 60 milljónir króna uppúr krafsinu. -GG Listaverkafalsarinn gerði slæm mistök - hann merkti falsanirnar eigin fóta- og handaförum. Betri sönnun fæst trauðla, sagði lögreglan. LEPHONE OGEUROCARD AÐSTOÐAR MEMDf ÞKS ÓHAPP ERUNDtS l/ið starfræhjum neyðarsíma hér heima, einhum fyrir þá sem tala ehhert erlent tungumál. Meginmálið er þó að wið höfum tryggt Eurocard Horthöfum þjónustu hins alþjóðlega aðstoðarfyrirtæhis (ÖE5A, hendi þá alwarlegt óhapp á ferð erlendis. Allir horthafar fá sérstaht spjald með neyðarnúmerum sem gilda hwarwetna í heiminum. Með einu símtali geta þeir beðið um: tlauðsynlegar upplýslngar um vlðbrögð við óvæntum vanda, t.d. tapi ferðaskilríkja. © Ókeypis flutning slasaðs korthafa á sjúkrahús. Fjárhagsaðstoð, t.d. vegna óvæntrar sjúkrahúslegu. Lögfræðlaðstoð, verðl skyndllega þörf á henni. Ókeypis farseðla heim, í stað seðla sem ógildast, t.d. vegna slyss. ©Ókeypis heimsókn að helman, sé korthafl óvænt lagður Inn á spítala erlendls í 10 daga eða lengur. Auh þessa geta Eurocard horthafar notið 5lysaábyrgðar ferða- langa. Bætur geta numið allt að U5D 100.000, samhwæmt shilmálum þar um. Aðgangur að allri þessari þjónustu er ókeypis, sértu Eurocard korthafi. Þú getur fræðst nánar um hana af upplýsinga- bæklingnum: „Hendi þig slys erlendis". Hann fæst hjá okkur, í Útwegsbankanum, Verzlunarbankanum og Sparisjóði wélstjóra. Kreditkort hf. Ármúla 28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.