Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Side 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
AlþýAubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innleg® eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 1370
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5‘X, nafnvöxtum og 10.8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reyníst hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 18*%,. Sé ávöxtun bctri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar cru hundnir
og verðtryggðir og gefa 7.5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtrvggðro reikninga í
bankanum, nú 13%. cða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nalnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga scm innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparitjár-
reikninga í bankanum. Nú er árrá' öxtun
annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mónaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með Innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 48 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs Islands eru seld í.
Seðlabankanum, viðskiptaþönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem,
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Meö
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við inn^ausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vQxtir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfín eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrfctu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Siunir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími ér 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir.
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún,
getur jafnveí orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á.
10*%, nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-.
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á.
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grmninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
mn leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21.-30.06. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA sérlista j! jI HÍÍÍIH !f 11 ll si
INNLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsógn 10.0 10,25 10.0 9.0 8.5 10,0 8.5 9.0 10,0 9.0
ömán.uppsogn 12.5 12,9 12.5 9.5 11.0 10,0 10.0 12.5 10.0
12mán.uppsögn 14.0 14,9 14.0 11.0 12.6 12,0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mén. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avlsanareikningar 6.0 8.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
innlAn verðtryggð SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsógn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlán gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadoilarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.0 10.0 10.0 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3,5 3.5 3.5
Oanskar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 '15.25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAViXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kfle
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20.0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VEROTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21/2 Arí 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Langri en 21/2 ér 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ITTIÁN TIL FRAMLEfflSLU
SJA NEÐANMÁLSI)_______
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,25%, í vestur-
þýskum mörkum 6,0%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum serh þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
íslensk karfaflök
vinsæl í New York
«
Bv. Jón Baldvinsson landaði 19.
júní 136 tonnum, aílinn var aðallega
þorskur, góður afli. Bv. Engey land-
aði 152 tonnum af góðum fiski,
rúmlega helmingur þorskur. Bv.
Ottó N. Þorláksson landaði 23. júní
ca 150 tonnum. Bv. Ásgeir landaði
23. júni 128 tonnum, aflinn var mest
þorskur. Allur þessi afli var 1. flokks,
í mjög góðri meðferð.
New York
Síðustu daga hefur komið meira
af Kyrrahafslaxi á markaðinn hjá
Fulton en nokkru sinni áður. Á vest-
urströndinni hefur hann lagt undir
sig markaðinn. Kemur ýmislegt til
að svo er komið, t.d. er verðið miklu
lægra en á norskum laxi, þar að
auki hefur laxinn frá Noregi ekki
verið nægilega vel frá genginn, t.d.
hefur vantað ís í kassana og hann
verið orðinn þurr og ljótur. Þama
er minnst á atriði sem íslenskir selj-
endur verða að passa að ekki komi
fyrir.
Rækjuverðið hefur verið sæmilegt
eins og reyndar hefur verið á um-
liðnum mánuðum. Rækja frá
Ecuador hefur haldið verði, enda
hefur veiði verið með minna móti.
Rækja frá Mexíkóflóa hefur ekki
borist á markaðinn í jafnmiklum
mæh og oftast áður, þó er veiðin
heldur að glæðast. Eins er með Suð-
ur-Ameríkuveiðamar, þær eru
frekar dræmar og lítið berst á mark-
aðinn hjá Fulton. Allt hjálpar þetta
til að verðið haldist þokkalegt. Frá
Oregon hefur lítið borist af rækju
og það sem komið hefur er smátt,
en stóra rækju vantar sérstaklega.
Sú rækja sem mest hefur verið á
markaðnum er rækja af stærðinni
300/400 stykki í kílói. Mest hefui
borið á smárækju og litlum bitum.
Af þessum sökum hefur stór góð
norsk rækja verið á háu verði.
Kanadamenn hafa aukið innflutn-
ing á hörpuskelfiski og em nú nænri
einráðir á markaðnum, þar sem ís-
lendingar hafa engan hörpuskelfisk
á markaðnum né Perúmenn.
Um viðskipti Norðmanna og Am-
eríkumanna er allt í óvissu og verður
Reagan að taka ákvörðun í málinu
fyrir 8. ágúst.
Nú er veðrið að breytast í New
York, hiti að morgni frá 20 til 25° á
Celcius og mikill raki, allt að 90%.
Þrátt fyrir þessa veðráttu hefur fisk-
salan gengið nokkuð jafnt og er í
Fiskmarkaðurinn
Ingólfur Stefánsson
svipuðum farvegi og var á sama tíma
síðasta ár. íslensk karfaflök hafa
verið á markaðnum hjá Fulton upp
á síðkastið og verðið hefur verið fyr-
ir flök með roði kr. 180 kílóið.
Fiskurinn er allur 1. flokks vara og
vel frá genginn í 10 kílóa öskjum.
Rækjan frá vesturströndinni, svo
sem frá Oregon, hefur verið á kr. 325
krónur kílóið, rækjan frá Kanada,
100/200 stk. í kg, kr. 370 kílóið. Búist
er við hækkandi rækjuverði á næs-
tunni. Þorskur kr. 138 kílóið, ýsa var
á sama verði, lúða kr. 210 kílóið,
karfi kr. 69 kílóið. Hörpuskelfiskur,
40-50 stykki í kílói, kr. 694. Hörpu-
skelfiskur, 40-80 stykki í kílói, kr.
448 .
Hlutur Norðmanna í innflutningi
á laxi til Ameríku árið 1985 var sem
hér segir.
Boston 27%
Los Angeles 11,7%
New York 50,4%
Seattle 1,5%
San Francisco 8,5%
Washington D-C 1,0%
Grimsby
Að undanfömu hefur borist mikið
að á enska markaðinn af fiski úr
Norðursjó, Hvítahafi og frá Islandi.
Frá íslandi var seldur fiskur frá
20 fyrirtækjum 23. júní, meðalverð
var kr. 51,44 kílóið. Þorskur var á
kr. 41,59 að meðaltali, ýsa kr. 62,17,
ufsi kr. 32,15, karfi kr. 49,00 og koli
kr. 49,50, þetta er allt meðalverð.
Auk þess seldi ms. Halkion 87 tonn
fyrir 4,6 millj. kr. Bv. Ásbjöm seldi
einnig 23. júnf 174 tonn fyrir kr. 7,8
millj., meðalverð kr. 44,81 kg.
Hull
23. júní seldu 5 fyrirtæki íslenskan
fisk úr gámum og var meðalverð
talið hér að framan. Alls var 253
tonnum landað í þessum tveim höfh-
um og seldust fyrir kr. 12,4 millj.
París
Upp úr miðjum mánuðinum var
talsvert af innfluttum fiski á mark-
aðnum hjá Rungis, en búist er við
minna af erlendum fiski í næstu
viku. Laxinn var í Jágu verði, eftir
því sem hann hefur verið á Parísar-
markaðnum. Stór lax, 5-6 kg, seldist
á kr. 340 og er það 116 kr. lægra
verð á kílói en á sama tíma í fyrra.
Þorskur frá frönskum skipum var á
kr. 132 kílóið, ufsi kr. 92 kg, karfi
95 kg, skötubörð kr. 162 kílóið og
skötuselur kr. 352 kílóið. Fiskur frá
Holllandi og Danmörku var á aðeins
lægra verði.
Madrid
Vegna mikils framboðs á fisk-
markaðnum Mercantmadrid féll
allur fiskur í verði. Mikið hefur ver-
ið um kaupendur en lítið verið keypt
og eru sumar tegundir langt undir
venjulegu markaðsverði á þessum
tíma árs.
Aukið eftirlit með fískútflutningi:
„Höfúm ákveðnar grun-
semdir um falsanir“
- segir Halldór Ásgnmsson
„Við athugum nú í fullri alvöru að
koma á fót nákvæmu eftirliti með fisk-
mörkuðum okkar erlendis og þá
sérstaklega í Bretlandi þar sem mest
er selt af þorski,“ sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra í
samtali við DV.
Halldór sagði að sendinefnd á vegum
sjávarútvegsráðuneytisins hefði farið
utan til að kynna sér eftirlitsmál á
fiskmörkuðum okkar og ákvörðun um
þetta yrði tekin innan skamms. „Svo
virðist sem sumir séu að senda hálf-
lélegt hráefni á markaði erlendis og
eru með þvi auðvitað að eyðileggja
það góða orð sem fer af okkur. Eftirlit-
ið í Þýskalandi er nægilega gott að
okkar dómi en í Bretlandi geta um-
boðsmenn komist upp með að hagræða
staðreyndum og við höfum ákveðnar
grunsemdir um að það hafi verið gért.“
Eftirlit með útflutningi hér heima
felst í þvi að á miðunum fylgjast varð-
skip með veiðunum og við löndun eru
fiskmatsmenn frá Ríkismatinu sem
gefa vottorð fyrir aflanum sem skipað
er í gáma. Mikið er um að aflinn sé
settur í ker um borð í skipunum og
sjá matsmennimir því lítið annað en
þann fisk sem liggur ofan á. Sam-
kvæmt heimildum DV er talsvert um
að aflanum sé hagrætt í kerunum áður
en komið er að landi og á botninum
leynist því oft lélegur fiskur.
Þórður Eyþórsson, deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, sagði að
þetta vandamál hefði talsvert verið til
umræðu. „Það má segja að mun minna
eftirlit sé með þeim afla sem fluttur
er til útlanda heldur en þeim sem land-
að er hér heima. Nokkur brögð hafa
verið að því að bátar hafi verið að sigla
með netafisk sem veiddur var í maí
og júní en þá er sjórinn orðinn svo
hlýr að fiskurinn hefur ekkert
geymsluþol. Glansinn er því oft farinn
af honum þegar hann kemur á markað
erlendis. Kvótakerfið felur í sér
ákveðna freistingu og við þurfum að
girða fyrir að menn séu að drýgja sinn
hlut með því að fara fram hjá reglum.
Það er alveg öruggt að við munum
koma á einhvers konar eftirliti á er-
lendum mörkuðum okkar, þetta er
bara spuming um aðferðir og tíma.“
-S.Konn.
Útflutningur á gámafiski hefur aukist mikið: Er þar um einhverjar falsanir að
ræða?