Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Blaðsíða 31
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNl 1986.
43
Nýtt veitingahús opnað við Geysi
Kristján Einarsson, DV, Selfossi;
Nú um helgina verður nýtt veitinga-
hús opnað við Geysi í Haukadal. Húsið
stendur á sama stað og gamla húsið
sem þjónað hefur ferðalöngum um
áraraðir.
Nýja húsið er byggt utan um það
gamla og öllu breytt að innan. Það
er aðeins fyrsti áfangi sem nú er tek-
inn í notkun, en áfangamir verða alls
þrír að tölu. Veitingahúsið verður vígt
nú um helgina með því að ferðafólk á
vegum Ferðaskrifstofu ríkisins heim-
sækir staðinn.
Hafist verður handa við þá tvo
áfanga sem eftir eru þegar rekstur
veitingahússins verður kominn á full-
an skrið. í þeim verður gistirými og
annað sem tengist hótel-og veitinga-
rekstri. Eigendur nýja hússins í
Haukadal eru hjónin Sigríður og Már
Sigurðsson. Er það framtak þeirra, að
koma á fót viðunandi aðstöðu fyrir
ferðamenn við þennan heimsfræga
hver, lofsvert.
V-v-'i
' C -s
Hið nýja veitingahús við Geysi.
DV-mynd Kristján
Fáskrúösfjöröur:
Tjaldstæði tekið
í gagnið
Ægir Kristicnssan, DV, Fáskrúösfiröi;
Nýlega var tekið í notkun tjaldstæði
við svokallaðan Bakkalæk en þar hef-
ur verið girt af svæði og ræktað og
er búið að setja niður nokkrar trjáp-
löntur. Gæti tjaldstæðið orðið
skemmtilegt þegar tijáplöhtumar
stækka. Þama hefur einnig verið
komið fyrir húsi með snyrtiaðstöðu
og vatnssalemum. Nú er bara að
merkja tjaldstæðið sem fyrst en að-
( stöðu sem þessa hefur vantað hér
hingað til. Tjaldstæðið er rétt innan
við kauptúnið og stutt í bfla- og bú-
vélaverkstæðið á Ljósalandi ef
sprungið hefur undir bílrnun.
Snyrtiaðstaðan á tjaldstaeðinu er hin
ágætasta.
DV-mynd Ægir Kristinsson
Burt i Löðri í útstillingarglugganum á Sigló. DV-mynd JGH
tú.ií- ■■
..
Burt í Löðri
á Siglufirði
Ján G. Haukssan, DV, Akuieyri;
Við rákumst á hann Burt gamla í
Löðri á Siglufirði. Ekki var kappinn
úti á götu heldur spókaði hann sig á
plakati í útstillingarglugga bíósins á
staðnum. Myndin, sem. verið. var að
sýna, heitir The Heavenly Kid, eða
Hjálp að handan, eins og það var þýtt.
Það var sama glottið á kappanum
og á Löðurárunum. Hann er maður
sem kann að geipa og gaspra og þá
ekki síður að geifla sig. Annars heitir
hann Burt ekki Burt, nafnið er Ric-
hard Mulhgan.
Stærsti glugga-
veggur hériendis
að risa á Selfossi
Kristján Einaissan, DV, Selfossi;
Þessa dagana er verið að reisa
burðarvirki fyrir stærsta gluggavegg
sem reistur hefur verið hér á landi.
Veggurinn sá ama verður í §öl-
brautaskólabyggingu þeirri sem nú
er að rísa af grunni á Selfossi. Glugg-
inn verður rúmlega 1350 fermetrar
að flatarmáli og hallar um 45 gráður
mót suðri.
Lengd hverrar sperrn er um það
bil 14 metrar. Glerið verður þrefalt
öryggisgler og er stærð hverrar skífu
1,20x3,00 metrar. Arkitekt hússins
er Maggi Jónsson. Verkið annast
trésmiðir á staðnum.
Gluggaveggurinn er sá stærsti sem reistur hefur verið hér á iandi.
DV-mynd Kristján
r.
<
DV á Dalvík:
„Þeir eru svo hressir"
Jón G. Hauksson, DV, Akuieyri;
Þær halda bæjarvinnunni uppi á
Dalvík í sumar, hressar stúlkur. „Við
erum í púlinu, tínum grjót, msl og
mokum. Karlamir, blessaðir, sitja uppi
í vélum allan liðlangan daginn eins
og álfar,“ sögðu þær galsafengnar.
- Verðið þið ekki reknar eftir svona
munnsöfnuð um karlpeninginn í bæj-
arvinnunni?
„Nei, nei, það er engin hætta á því.
Þeir em svo hressir.“
Þær stöllur sögðu að það vendist
furðu fljótt að handleika skóflumar
þó það væri kannski ekki skemmtileg-
asta starf í heimi að moka.
„Kosturinn við að vera í bæjarvinri-
unni er útiveran. Það cr fínt að vinna
úti á sumrin."
Þær eru uppistaðan í bæjarvinnunni á Dalvík i sumar. Eldhressar stúlkur. F.v.
Guðrún Björgvinsdóttir, Steinborg Gísladóttir, Ingibjörg Bjömsdóttir, Aðalbjörg
Þórólfsdóttir og Kristrún Þorvarðsdóttir. DV-mynd JGH