Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Page 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
.
í versluninni London fást þessir sundbolir. Hollywood bolurinn fæst í tveimur litasamsetningum og kostar 1.188
kr. Hinn sundbolurinn fæst í svörtu með gulum röndum og í fjólubláu með lilla röndum. Hann kostar 1.020 kr.
Sundföt
með stæl
Hvort sem ætlunin er aA synda í
Svartahafinu í sumar eða bara í
Laugardalslauginni þá er gaman að
eiga fallegan sundfatnað til að
spranga um í í góða veðrinu.
Sundfatnaður hefur breyst frá því
að vera einungis ætlaður sem skjól-
flík, er tvö hundruð metramir em
teknir, í að vera nánast tískufatnað-
ur til brúks við sólarstrendur eða
sundlaugar. Sundbolir em orðnir
mjög vinsælir aftur á kostnað tví-
skipta sundfatnaðarins, bikini, sem
ráðið hefur ríkjum í langan tíma.
Neytendasíðan kannaði að þessu
sinni úrvalið af sundbolum og Iitum
við inn í þrjár verslanir, Olympiu,
Glæsibæ, Útilíf, Glæsibæ, og Lon-
don, Austurstræti.
-RóG.
Fyrst lögðum við leið okkar i Útilíf, þar reyndist vera
mjög mikið úrval af sundfatnaði. Hér gefur að líta fjórar
tegundir af sundbolum í sportlegri kantinum. Sá rósótti
fæst i tveimur litum bláu og grænbláu og kostar 1.380
kr. Þessi í miðið er marglitur og kostar 1.180 kr. Man-
hattan bolurinn fæst í svörtu, gráu og hvitu og kostar
2.560 kr. Sá efsti fæst í gráu, svörtu, gulu og bleiku
með silfruðum röndum. Hann kostar 2.060 kr.
í London fást einnig þessir röndóttu bolir. Sá þverrön-
dóttir er úr bómull og fæsti í bleiku og bláu. Hann
kostar 1.080 kr. Hinn fæst í svörtu með gráum röndum
og gulri þverrönd. Hann fæst lika með gráan sem aðal-
lit og kostar 1.204 kr.
Það væri nú ekki amalegt að spóka sig í sundbolum likum þessum. Þeir fást einnig í Útilífi. Sá sem er lengst til
vinstri fæst í gráu, svörtu og safarígrænu og kostar 1.725 kr. Hlébarðabolurinn er í brúnu og svörtu og kostar 1.995
kr. Næsti bolur fæsti í fagurbláu og svörtu og kostar 1.940 kr. Að lokum er blúndubolur sem fæst í svörtu, hvítu,
neongrænu og bleiku. Hann kostar 2.280 kr.
Kartöflu-
og
eggjabaka
Þetta er einfaldur og ódýr rétt-
ur og inniheldur ekki margar
hitaeiningar. Uppskriftin er æt-
luð fyrir 6 og er hver skammtur
um 230 hitaeiningar.
2 meðalstórar kartöflur, skomar
í þunnar sneiðar
% bolli saxaður laukur
'/« bolli söxuð græn paprika
4 sneiðar beikon, skorið í mjóar
ræmur
8 þeytt egg
Vi bolli undanrenna eða létt-
mjólk
fáeinir dropar af sterkri krydds-
ósu, t.d. tabasco
'A bolli rifinn ostur
2 msk. smátt skorið pikkles
Skerið kartöflumar í þunnar
sneiðar og eldið í potti, sem
sprautaður hefur verið að innan
með feiti, í ca 10 mín. Hrærið
varlega í kartöflusneiðunum af
og til. Takið pottinn af hitanum.
Sjóðið lauk og papriku í 2 msk.
af vatni þangað til það er orðið
meyrt. Sprautið feiti innan í pæ-
fat. Raðið kartöflusneiðimum í
botninn og upp með hliðunum.
Raðið síðan beikonstrimlunum,
lauk og papriku ofan á. Hrærið
eggin og blandið mjólk saman
við ásamt kryddsósunni og
bragðbætið með salti og pipar.
Hrærið helmingnum af ostinum
út í ásamt pikklesinu og hellið
síðan í pædiskinn. Bakið í ca 300
gráðu heitum ofni. Takið þá fatið
út og stráið afganginum af ostin-
um yfir og bregðið sem snöggvast
inn í heitan ofn. Með þessu er
gott að bera fram hrásalat, t.d.
tómat sem fylltur er með mis-
munandi, smátt skomu græn-
meti. Hráefniskostnaður er um
150 kr. -A.BJ.
Holl húsráð
Gúrkur í vatni
Lítið er varið í gúrkur þegar þær fara
að linast en auðvelt er að komast hjá
þvi. Annar endinn er skorinn af gúr-
kunni og henni stungið niður í vatn.
Verður hún þá stinn og ásjáleg áður
en langt um líður.
ís í mjólkurfernum
Ef ís er búinn til í heimahúsum er
tilvalið að nota mjólkurfemur undir
hann. ísblöndunni er hellt í hreina
femu og síðan er henni stungið í djúp-
frystinn. Feman er tekin utan af
ísnum þegar hann er borinn á borð.
Laukur flysjaður
Það er óþarfi að tárast yfir lauk þegar
hann er flysjaður. Láttu skurðarfjöl,
hníf og Iauk ofan í gegnsæjan plast-
poka og hafðu hendurnar. ofan í
honum. Þá skerð þú þann lauk sem
þörfin krefur án þess að fella eitt ein-
asta tár.
Ekki sýður upp úr
Þegar soðið er spaghetti, mjólk o.þ.h.,
sem gjaman sýður upp úr, er smurt
svolitlu smjöri eða matarolíu innan á
barm skaftpottsins, u.þ.b. 1 cm niður.
Þá er engin hætta á að upp úr sjóði.
Tannkremsleifar
nást stundum illa úr túbunni. Láttu
heitt vatn renna á hana sem snöggv-
ast og þá er vandinn leystur.
Gljáandi silfur
Ef þú þarft að fægja silfur í skyndi en
hefur ekki fægiefhi við höndina skaltu
smyrja svolitlu tannkremi á rakan
klút eða bómull. -RóG.