Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Síða 13
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Þessi rabarbari er nú i ailra stærsta lagi, en engu að síður er það rabarbari
eða rabarbarablöð sem málið snýst um.
Notið rabarbara
til að halda blað-
lús í skefjum
Hafsteinn Hafliðason garðyrkju-
íræðingur á sniðuga uppskrift að seyði
sem úðað er á plöntur til að halda
blaðlús í skefjum. Hann var til í að
gefa okkur upp uppskriftina og hér
kemur hún:
Blöð af rabarbara eru brytjuð niður
og lögð í bleyti í ryðfrían stálpott og
suðan látin koma hægt upp. Er suðan
er komin upp er potturinn látinn
standa og seyðið látið kólna af sjálfu
sér. Þegar það hefúr kólnað er vökv-
inn síaður frá. Gott er að leysa upp
matskeið af grænsápu i hvem lítra af
vökvanum sem er síðan settur á glerfl-
öskur og geymdur þannig. Þegar úðað
er á plöntumar skal einum desílítra
af þessum vökva bætt við 1-2 lítra af
vatni sem svo er úðað yfir plöntumar.
-RóG.
Hve mikill
þvottur má
fara í
vélina í einu?
Flestar sjálfvirkar þvottavél-
ar taka 4 eða 5 kg af þurmm
þvotti. Mikilvægt er að þvott-
urinn, sem látinn er í vélina
hverju sinni, sé sem næst þeirri
þyngd sem vélin er gefin upp
fyrir.
En hve mikið af þvotti er í 4
eða 5 kg? Hvað vegur hvert
stykki?
Við rákumst á upplýsingar
þar um í bæklingi frá Kven-
félagasambandi íslands, í
samantekt Sigríðar Haralds-
dóttur.
Lak 5-700 g
sængurver 7-800 g
koddaver 150 g
leirþurrka 100 g
handklæði 150-400 g
dúkur(160xl60 cm) 600 g
skyrta 250 g
baðmullarbolur handa full-
orðnum 100 g
karlmannsnærföt(bolur og -
buxur) 300 g
kvenmannsnærbuxur 50-100 g
gallabuxur handa fullorðnum
6-800 g
sloppur 300 g
Allur þessi þvottur vegur sam-
tals 4,6 kg.
-A.BJ.
Vel tekið eftir
gömlum myndum
Síðastliðinn föstudag birtum við
fyrirspum frá lesanda um hvar hægt
væri að fá tekið eftir gömlum mynd-
um og þá hvar hægt væri að vænta
góðs árangurs því misjafhlega tekst
víst til í þeim efnum. Neytendasíðan
hefur fengið ábendingar frá lesend-
um. Hjá Nón h/f, Hverfisgötu 105,
var okkur tjáð að vel heppnist slíkar
eftirtökur, einnig hjá Hraðmyndum,
Hverfisgötu 59.
-RóG.
MYNDBANDALEIGUR ATHUGIÐ!
NÝJAR ÚRVALSMYNDIR TIL DREIFINGAR í DAG
Flóttinn frá Moretonflóa
Aðalhlutverk: Trevor Howard, Susannah
York, John Waters.
Frábær áströlsk kvikmynd með úrvals-
leikurum. Ástralía 1836. Hingað hafði
siðmenningin ekki enn náð. Hér giltu lög-
mál frumskógarins.
Leitin að hinum týnda Alvin
Aðalhlutverk: Alan Finney, Noel Ferrier,
Graeme Blundell. Bráðskemmtileg ástr-
öisk grinmynd.
Ein vinsælasta grinmynd sem sýnd hefur
veriö i kvikmyndahúsum í Ástraliu.
Hefndin
Aðalhiutverk: Lance Kerwin, Connie Stev-
ens, Red Buttons.
Bandarísk úrvalsmynd um hinn unga og
hæfileikarika Nick Pallas sem vill láta
draum sinn rætast. Hann verður þess
fljátt áskynja að á bak við skrautlega
framhlið lífsins býr afbrýði, ást og þján-
ing.
uaui vmmmv
«<**Roœedlí
ISLCNSKUR l'tXll
Trevor Uomint &
Smannah York
FLÓTTINN FRÁ
MÖRETONFLÓA
Einkaréttur og dreifing:
ARNAR-VIDEO
MYNDBANDAUMBOÐ
SÍMI 82128
Okkar árlega
tj aldasýning
verður um helgina, laugardag og sunnudag.
VIÐ TJÖLDUM ÖLLU SEM VIÐ
HÖFUM,
ÆGISTJÖLDUM, HÚSTJÖLDUM, GÖNGUTJÖLD-
UM, SAMKVÆMISTJÖLDUM.
g i
Eyiaslóð 7, Reykjavík - Pósfhólf 659 Simar 14093-13320 Nalnnr. 9879-1698