Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Side 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986. Utanbæjarmaður hringdi: Ég bý á Austurlandi og Stti um dag- inn leið í bæinn. Það er orðið langt um liðið síðan ég kom síðast til Reykjavíkur og það verð ég að segja að borgin hefur mikið breyst síðan ég kom hér síðast. Umferðin er orðin svo mikil og það er heilmikið mál að rata og komast leiðar sinnar. Ég þurfti að komast í ákveðið opin- bert íyrirtæki í miðborginni. Fyrst fann ég út að það hafði flutt í nýtt húsnæði, síðan tók það mig drjúga stunda að komast að staðnum vegna mikillar umferðar og þegar þangað var komið var ekkert bílastæði að fá. Ég varð því frá að hverfa og leggja óra- langt burtu. Það sem ég vil leggja til er að gerð- ur verði einhver bæklingur fyrir utanbæjarfólk þar sem er að finna upplýsingar um ýmislega þjónustu í borginni. Þetta yrði mjög til bóta og kæmi mörgum vel því þrátt fyrir að við höfum ýmsa þjónustu úti á landi þurfúm við utanbæjarmenn enn að sækja ýmislegt til borgarinnar. Hin hliðin Árni Einarsson verslunarmaður: Nei, ég vissi bara ekki af henni. Ég hefði hvort sem er ekki farið. Didda Þóra skrifar: Ég vil taka fram að þetta er ekki kvörtunarbréf. Ég skil satt best að segja ekki í fólki sem skrifar og skrif- ar til að kvarta yfir einhverjum smáatriðum. Ein kona stakk til dæmis upp á þvi um daginn að gefa Söndru Kim atvinnuleyfi hér og leyfa henni að syngja Vögguvísu fyrir okkur í næstu Júróvísíon. Þetta er það heimskulegasta sem ég hef heyrt. Hún gæti ekki unnið aftur með svona væ- mið lag. En þetta var nú ekki það sem ég ætlaði að tala um. Mig langaði að þakka DV fyrir að hafa viðtalið á laug- ardögum og biðja fólk að sýna á sér „hina hliðina“. Þetta er mjög sniðugt og gaman að lesa þetta. Það mætti til dæmis alveg tala við Eirík Hauksson, Pálma Gunnars eða Jón Gústafsson. Og auðvitað væri langbest að hafa sérviðtal við Eirík. Hann er meirihátt- ar! Sigríður Böðvarsdóttir húsmóðir: Nei, það datt mér ekki í hug. Ég hef aldrei komið inn í áfengisverslunina. Gautur Elvar Gunnarsson lögfræð- ingur: Nei, ég taldi enga ástæðu til þess. Utanbæjarmanni finnst erfitt að rata í Reykjavík. Erfitt að rata í Reykjavík Enga kvöld- stund með Björgvini Þorsteinn Þorsteinsson skrifar: Mér þætti gaman að vita hvort Björgvin Halldórsson sé á einhveijum sérsamningi hjá sjónvarpinu. Hann er búinn að koma fram í sjónvarpinu mörgum sinnum á þessu ári. Það getur ekki verið vegna þess að hann sé svo vinsæll samkvæmt vinsældakönnun- Af hveiju eru ekki frekar gerði þættir í sjónvarpinu um vinsælust' söngvarana og tónlistarmennina? Þa félli í mun betri jarðveg en þættir ein og kannski Kvöldstund með lista manni, þar sem Björgvin væri aðalhlutverki. Ég vil að minnsta kost ekki eiga svoleiðis kvöldstund. Eggert H. Kristjánsson yfirpóstaf- greiðslumaður: Nei, ég hafði engan áhuga á henni. Ég nota áfengi lítið. Ragnar Þorgeirsson, á eftirlaunum: Nei, ég nota ekki áfengi og kaupi það þvi ekki. Stefán Oddson póstafgreiðslumaður: Nei, ég fór ekki á þessa útsölu. Ég er frekar lítið fyrir áfengi. Aðgát skal höfð G. Guðmundsdóttir hringdi: hinir fullorðnu aðhöfumst, hafa bömin Aðgát skal höfð i nærveru sálar, eftir. segir skáldið. Þetta em góð og gild Þetta verðum við að hafa hugfast orð enn í dag. Allt of sjaldan athugum hvort sem um er að ræða umferðar- við að bömin hafa eftir það sem þau eða vimuefhamál. Böm læra best á því sjá og heyra. Allt það slæma, sem við sem þau sjá. Sýnum gott fordæmi. Glöggt er gests augað Sólrún hringdi: Vinur minn danskur varð aldeil- is hlessa þegar hann kom í heim- sókn hingað á dögunum. Hann ætlaði bara ekki að trúa því að hvergi væri hægt að kaupa bjór hér á landi. Hann gleymdi nefhi- lega að taka með sér þessar örfáu dollur sem má kaupa í fríhöfninni. Sökum þessa urðum við okkur úti um bjór hjá einum góðum aðila hér í borg. Það gekk mjög vel fyr- ir sig og okkur vom meira að segja boðnar margar tegundir. Yfir þessu gat vinur minn ekki annað en brosað. Bæði yfir bjóm- um og eins líka yfir þeirri löggjöf sem leyfir ekki sölu bjórs í verslun- um og lítur framhjá smygli og annarri óáran eins og um saklaust bamagaman væri að ræða. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Spurningin Fórst þú á útsöluna í rík inu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.