Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Qupperneq 33
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
45 *■-
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviósljós
Sviðsljós
#
fjarri föðurlandinu
íslendingar erlendis slá ekki
slöku við frekar en íyrri daginn
og þjóðemiskenndin virðist
brjótast fram með auknum þunga
þegar komið er út fyrir landstein-
ana. Um 300 íslendingar dvöldust
í sæluhúsahverfum Samvinnu-
ferða-Landsýnar í Meerdal og
Kempervennen í Hollandi á 17.
júní. Öllum sem vildu var boðið
til þjóðhátíðarfagnaðar í Chatlet
Sonnevanck sem er veitingastað-
ur í bænum Oirschot. Flestir
þáðu boð ferðaskrifstofunnar og
var mikið um dýrðir. Boðið var
upp á m.a. sirkusatriði, barna-
skemmtun og bæði íslenskar og
hollenskar hljómsveitir. Magam-
álum voru einnig gerð góð skil
bæði með inni- og útigrillum.
Veðurguðirnir léku við íslend-
ingana þennan dag sem og aðra
en veðrið hefur verið einstakt það
sem af er sumri og aðsókn svo
mikil í sumarhúsin að ekki er
hægt að anna eftirspum. Allir
skemmtu sér hið besta og voru
einhverjir á því að þjóðhátíðar-
dagurinn vekti enn meiri þjóð-
emiskennd með fólki ef það væri
statt erlendis, fjarri sínu farsælda
Fróni.
Islenskar blómarósir í þjóðhátíðarstemmningu í Hollandi 17. júní.
Tveir fararstjórar, þeir Kjartan Már Kjartansson (t.v.) og Karl Frímanns- Þjóðhátiðargestir munda kjötteina á útigrillinu í Oirschot.
son, taka lagið á þjóðhátíðarknallinu.
Öryggi ofar öllu!
í Sovétríkjunum er aldrei teflt
á tæpasta vað og öryggi gesta,
er sækja þjóðina heim, er sett
ofar öllu - jafnvel eigin óskum.
Til verndar og leiðsagnar er
mikilvægum gestum fenginn
fylginautur sem gætir þeirra í
hvívetna. Gæsla á íþróttaleikj-
um er mjög rómuð og aldrei
hefur komið til óeirða eða óláta
eins og títt er annars staðar. Á
skíðamóti í Syktyvkar fyrir
tæpu hálfu ári fannst mörgum
þó öryggisgæslan vera einum
um of eða eins og myndin sýnir
röðuðu lögreglumenn sér við
brautina upp eftir öllu fjalli.
Fylgir einnig sögunni að
dauðaþögn hafi ríkt meðal
áhorfenda og ekki heyrst önnur
hljóð en brakið undan skíðum
keppenda.
Vigdís Finnbogadóttir
heimsþekkt?
Sjálfsagt þekkja einhverjir norska
tímaritið „Norsk Ukeblad“. í margar
vikur hefur blaðið gengist fyrir
spurningaleik sem er í því fólginn
að teiknimyndafígúran Stomperud
heimsækir frægar persónur og staði.
Þátttakendur eiga síðan að geta sér
til um i hvaða landi eða borg Stom-
perud er staddur hverju sinni. Leikur
þessi er mjög vinsæll og er ávallt
mikil þátttaka í honum. í síðasta
tölublaði var Stomperud á tali við
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta vor-
an, og er ánægjulegt til þess að vita
að Vigdís skuli teljast þekkt persóna
í augum Norðmanna.
Hér sést Vigdis „á tali“ við Stomperud.
Ólyginn
sagði . . .
grímuklæddi popparinn, mun
troða upp á Leninleikvangin-
um í Moskvu 4. júlí næstkom-
andi ef tekið er mark á
rússneskum dagblöðum.
Konsertinn mun Jackson
halda ásamt sovésku popp-
stjörnunni, Alla Pugachova.
Er konsertinn á opnunarhátíð
svokallaðra „Friðarleika".
Spurningin er aðeins sú hvort
Jackson verði ekki klæddur í
líkingu við geimfara af ótta við
geislavirkni!
Reza
Phalavi jr.
krónprins af íran, er nú orðinn
24 ára gamall. Hinn 24. ágúst
ætlar þessi landflótta landerf-
ingi að ganga í það heilaga
en brúðurinn tilvonandi nefn-
ist Yasmane Ettemad Amine.
Reza trúir því að dag nokkurn
muni hann setjast í keisarastól
og taka við páfuglskórónunni.
Hvað sem því líður þá verða
þau álitin keisarahjón af
stuðningsmönnum keisara-
dæmisins.
Brooke
Shields
leikkonan ásjálega, er mikil
áhugakona um líkamsrækt og
ku vera vel frambærileg í svo-
kallaðri þolleikfimi. Hún var
nýlega ráðin sem þjálfari í lík-
amsræktarstöð einni í Prince-
ton í Bandaríkjunum.
Hlakkaði hún mikið til starfs-
ins en gleðin var skammvin
því allir vildu komast í tíma til
Brooke Shields. Kvað svo
rammt að þessu að leikkonan
neyddist til að hætta kennslu
enda lítið gaman að kenna í
troðfullum sal þar sem nem-
endurnir beita hnúum og
hnefum til að hafa örlítið
pláss.
Michael
Jackson