Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Page 36
4»
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
I vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
ÍSS stofnað í gær:
Rás 2 í
sjónvarpi
* íslenska sjónvarpsfélagið,
hyggst hefja útsendingar í september,
hefiir tryggt sér aðgang að flestum
kapalkerfum landsins með stofnun
landssamtaka, Islenskt svæðasjón-
varp, ÍSS. Landssamtökin ætla að
sameinast um tækjakaup, þýðingar-
kostnað og fleira en aðalatriðið er að
dagskrá Islenska sjónvarpsfélagsins
verður send út í kapalkerfum sem þeg-
ar eru til staðar á landsbyggðinni svo
og þeim sem komið verður upp í fram-
tíðinni. Samningur íslenska sjón-
varpsfélagsins nær einnig til þeirra
bæjarfélaga sem ætla að senda út sjón-
varpsefni úr gervitunglum með milli-
göngu lítilla skerma.
Formaður ÍSS var kjörinn Hans K.
» Amason, einn af forsvarsmönnum ís-
lenska sjónvarpsfélagsins, varafor-
maður er Skúli Pálsson, sem rekur
kapalkerfi á Ólafsfirði, ritari er Her-
mann Sveinbjömsson, ritstjóri Dags á
Akureyri, og gjaldkeri Þórarinn
Ágústsson, framkvæmdastjóri Sam-
vers á Akureyri. Meðstjórnandi er Jón
Óttar Ragnarsson. -EIR
Hafskip:
Útvegsbankinn
afhendir skjöl
Útvegsbankanum hefur verið gert
að afhenda Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins ýmis skjöl með upplýsingum um
reikninga viðskiptavina bankans. Ur-
skurður þar að lútandi var kvsðinn
upp í Sakadómi Reykjavíkur síðastlið-
inn þriðjudag eftir að Útvegsbankinn
hafði neitað rannsóknarlögreglunni
um aðgang að skjölunum.
Rannsóknarlögreglan fór fram á
þessar upplýsingar vegna rannsóknar
á gjaldþroti Hafskips hf. Reikningam-
ir sem hér um ræðir munu flestir hafa
verið á nafiii Hafskips en notaðir nær
eingöngu af yfirmönnum fyrirtækis-
«j^. Samkvæmt lögum um viðskipta-
banka eiga skattrannsóknarstjóri og
skiptaráðandi einir rétt á upplýsingum
um bankareikninga án þess að þurfa
fyrst að leita úrskurðar dómara.
Vegna þess að rannsóknarlögreglan
átti hér í hlut varð að vísa kröfunni
til dómsstóla. -EA
ALLAR GERÐIR
SENDIBÍLA
Skemmuvegur 50
LOKI
Alltaf lendi ég í skúrunum!
Fjáriög næsta árs:
Reynt að koma halla
í 1300 milljónir
Ríkisstjómin reynir að koma hall-
anum á fjárlögum næsta árs, 1987,
niður í 1300 milljónir króna. Unnið
er að gerð fjárlagufrumvarpsins fyrir
næsta ár. Hallinn á ríkisrekstrinum
verður greinilega um tveir milljarðar
króna í ár þannig að við mikinn
vanda er að etja.
Þótt hallinn sé mikill í ár yrði
hann enn meiri, eða yfir þrír millj-
arðar, á næsta ári nema til kæmu
ákveðnar aðgerðir til að draga úr
honum. Það er einmitt það sem ríkis-
stjómin vinnur nú að. Vinnuplagg í
þá átt er í umferð í stjórnarher-
búðimum. Forsætisráðherra sagði
nýlega í DV að stefht væri að því
að eyða hallanum í áföngum á næstu
þremur árum. Takist að koma hall-
anum á najsta ári niður í 1300
milljónir mundi eitt skref stigið í þá
átt. Væri þá hugsanlega unnt að
halda áfram þamæstu ár og minnka
hallann skref fyrir skref. -HH
Kóngur í ríki sinu. Hásætin eru að baki og konungssverðið við hliðina. Og hinn ungi „leikari" til i tuskið.
Myndin var tekin á útisviði niðri á Lækjartorgi þar sem leikflokkur frá Danmörku flutti leikþátt.
DV-mynd Óskar
Borgarfjörður:
Þrír bílar
ónýtir eftir
útafkeyrslu
Þrír bílar em taldir ónýtir eftir að
þeim var ekið út af vegi í Borgarfirði.
Allar útafkeyrslumar áttu sér stað á
sömu slóðum og virðast hafa orðið
vegna þess að ökumenn hafa ekki átt-
að sig á að ekki er hægt að hafa sama
akstursmátann á slitlagi og malarvegi.
Fyrsta útafkeyrslan átti sér stað við
Þórisstaði en þar fór bíll út í á. Sú
næsta varð er bíll fór ofan í gil á Geld-
ingadraga og er ekki hægt að ná
honum þaðan upp en ökumaður slapp
með skrekkinn. Þriðja útafkeyrslan
varð svo skammt frá Gufárbrúnni.
Lítil slys urðu á fólki í þessum at-
burðum sem allir urðu í gærdag.
Nú er verið að leggja bundið slitlag
á veginn á H valfj arðarströnd og er
umferðinni því beint um Svinadal og
Geldingadraga. Lögreglan í Mýra- ,og
Borgarfjarðarsýslu vill af gefnu tilefhi
benda ökumönnum á að vara sig á
skiptingunni af bundnu slitlagi yfir á
lélega malarvegi og haga akstri eftir
aðstæðum hverju sinni. -FRI
Veðrið á morgun:
Skin
og
skúrir
Á morgun verður hæð við Færeyj-
ar en lægð á Grænlandshafi. Rigning
verður því suðvestanlands en áfram
sól fyrir austan. Hiti fer þar upp i
tuttugu stig en verður á bilinu 13-16
stig fyrir sunnan og vestan þrátt fyr-
ir rigninguna.
Alþýðubandalagið:
Stjórnin vildi
engan fund
um Guðmund
Stjóm Alþýðubandalagsins í
Reykjavík ákvað á fundi sínum í gær-
kvöldi að efha ekki til sérstaks félags-
fundar um málefni Guðmundar J.
Guðmundssonar alþingismanns.
Guðni Jóhannesson, formaður
: stjómarinnar, lýsti því yfir í siðustu
| viku að hann mundi fara fram á að
slíkur fundur yrði haldinn fljótlega.
I ályktun, sem stjórnin sendi frá sér
í gærkvöldi, segir að ekki verði efnt
til sérstaks félagsfundar um þessi mál
en formanni félagsins, Guðna Jóhann-
essyni, falið að fylgja þeim eftir „innan
æðri stofiiana flokksins".
„Ég er sæmilega sáttur við þessa
niðurstöðu,“ sagði Guðni í samtali við
DV i morgun. „Eftir að hafa ráðfært
mig við stjómina og leitað álits henn-
ar var ákveðið að taka á þessu máli
með öðrum hætti.“ -EA
í
í
4
4
f
0
$
■
í
í
;