Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Page 3
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
3
Fréttir
Byggðasjóður öriátur við félög tengd Svevri Hermannssyni:
útgerð og
Útgerðarfyrirtækið Ögurvík hf., sem
er að hluta til í eigu Sverris Her-
mannssonar menntamálaráðherra,
hlaut um fjórðung alls lánsfjár sem
Byggðastofnun veitti á tímabilinu 31.
október til áramóta í fyrra.
Byggðastofnun veitti alls um 350
milljónir króna í lán á þessu tveggja
mánaða tímabili og þar af hlaut Ögur-
vík 92 milljónir. Lánið var veitt í
tveimur hlutum vegna breytinga og
endurbóta á Frera RE-73.1 reikning-
um Byggðastofriunar segir að lánið
hafi verið veitt til að auka verkefhi
innlendra skipasmiðastöðva en endur-
bætumar á Frera fóru fram á Akur-
eyri.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
félög tengd Sverri Hermannssyni
hljóta fyrirgreiðslu úr Byggðastofnun
eða Byggðasjóði.
Menntamálaráðherra hefur um tutt-
ugu ára skeið verið formaður veiðifé-
lags Hrútafjarðarár og Síkár í
Vestur Húnavatnssýslu. Árið 1984,
stuttu eftir að Sverrir hætti sem for-
stjóri Framkvæmkvæmdastofnunar
ríkisins, hlaut Veiðmálastofnun 80
þúsund króna styrk úr Byggðasjóði til
að rannsaka ár veiðifélags Hrútafrarð-
styrk
arár og Síkár. 1 fylgiskjölum með
ársskýrslu Framkvæmdastofriunar
fyrir árið 1984 kemur fram að rann-
sóknimar fólust í að „sleppa 10 þúsund
sumaröldum laxaseiðum í ófiskgenga
fossa í Hrútafjarðará og Síká“. Sex
þúsund seiði fóm í Hrútafjarðará og
fjögur þúsund í Síká.
Samkvæmt upplýsingum DV hefur
veiði verið góð í þessum ám í sumar
í lax
og um 80 laxar komnir á land úr
Hrútafrarðará einni. Bændur úr ná-
grenninu segja að þar hafi verið að
veiðum að undanfömu, auk Sverris,
þeir Tómas Ámason seðlabankastjóri,
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri,
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráð-
herra, Pétur Sigurðsson alþingismað-
ur, Matthías Johannessen ritstjóri og
fleiri. ' -EA
il JVc'* |gg| * fjí' HfeS<T***'*
1»\\ 1 WSl * / Hjggjrerlk •*«»' ■ rú'® cfiiiÉH nr v
Hér sjást nokkrir af erlendu skátunum sem sækja Landsmótið.
DV-mynd GVA
Nýtt lýðveldi
í Viðey
Vikuna 27. júlí til 3. ágúst verður
Landsmót skáta í Viðey. Fér það
fram undir heitinu „Nýtt lýðveldi.
Viðey 1986“. Fá allir íbúar Viðeyjar-
lýðveldisins vegabréf, m\mduð
verður þjóðstjóm og þing. Lýðveldið
mun svo að sjálfsögðu eiga fána.
skjaldarmerki, lög og þjóðsöng. Dag-
skrá mótsins verður mjög fjölbrevtt
og hægt að velja um leiki, þrautir,
fræðslu og ferðalög. Auk þess verður
íþróttamót og varðeldar af ýmsu
tagi.
Tværtjaldbúðir
Á mótinu verða tvær tjaldbúðir,
skátatjaldbúðir og fjölskvldutjald-
búðir. Skátatjaldbúðunum verður
skipt í torg og hefur hvert félag sitt
afrnarkaða svæði. Á mótið koma er-
lendir skátar viða að úr Evrópu svo
og frá Bandaríkjunum og Japan.
I Viðey verður sjúkragæsla, póst- og
símaþjónusta og einnig verður banki
starfræktur á mótinu. Gefa á út sér-
stakt dagblað mótsins sem selt
verður gegn vægu verði en annars
verður mótsgjaldið 5.750 kr. fvrir
hvern einstakling. Er þá innifalið
fullt fæði allan mótstímann, móts-
merki, mótsbók, h\Tna og vegabréf
lýðveldisins.
Þátttakendur á mótinu verða senni-
lega um 1000 en 2. ágúst verður
mótið opið gestum sem ekki eru í
tjaldbúðum. Á þriðjudagskvöldið. 29.
júlí, verður kvöldvaka í Laugardals-
höll klukkan 19.30. Verður hún opin
öllum og kostar ekkert inn. Eru
skátar ákveðmr í að Landsmótið
verði hið glæsilegasta. JFJ
Ljósleiðara-
strengur
til Hvolsvallar
„Við erum famir að nálgast Selfoss
og með þessum ljósleiðarastreng opn-
ast mögulcikar fyrir aðila sem hyggja
á sjónvarpsrekstur að sjónvarpa efni
frá Reykjavík til Hvolsvallar og end-
urvarpa þaðan áfram,“ sagði Ölafur
Tómasson hjá Pósti og síma.
Undanfamar tvær vikur hafa staðið
yfir framkvæmdir á vegum Pósts og
síma þar sem plægður hefur verið nið-
ur ljósleiðarastrengur milli Reykja-
víkur og Hvolsvallar. Strengurinn
tekur við boðum á sama hátt og tölvur
og verður hlutverk hans fyrst um sinn
að flytja talrásir með sama formi og
stafræna símakerfið. „Þetta er í fyrsta
sinn sem svona strengur er lagður
utan Reykjavíkur, en hér innanbæjar
er í notkun stafrænt símakerfi sem
liggur frá Austurvelli í símstöðina í
Múla. Frá okkar bæjardyrum séð er
þetta fyrst og fremst fyrir talrásir en
möguleikamir fyrir sjónvarpssending-
ar með strengnum em miklir," sagði
Bergþór Halldórsson, verkfræðingur
hjá Pósti og síma.
Hjá Pósti og síma liggja fyrir tillögur
um svipaða lögn frá Reykjavík til
Akureyrar og er áætlað að fram-
kvæmdin muni kosta um hundrað
milljónir króna. Enn hefur enginn
aðili lýst áhuga sínum á að nýta sér
ljósleiðarastrenginn fyrir sjónvarps-
sendingar en viðræður em í gangi á
milli samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og Pósts og síma um
samstarf í þessum efnum.
-S.Konn.
Herjólfur:
Skrifstofustjóri hættir
„Það er rétt að ég hætti störfúm hjá
Herjólfi fyrir viku,“ sagði Elín Alma
Arthúrsdóttir í samtali við DV.
Elín Alma var skrifstofustjóri Herj-
ólfs og gegndi störfum framkvæmda-
stjóra. Hún var einn umsækjenda um
stöðuna er ráðið var í hana fyrir
skemmstu en Magnús Jónasson
hreppti starfið. Bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, Guðmundur Ólafsson, hélt
því fram í viðtali við DV að gengið
hefði verið framhjá Elínu Ölmu sem
hæfasta umsækjanda en Magnús Jón-
asson verið ráðinn pólitískt en hann
er formaður fulltrúaráðs Sjálfetæðis-
félaganna í Eyjum. Elín var spurð að
því hvort líta bæri á uppsögn hennar
sem mótmæli gegn ráðningu Magnús-
ar.
„Ég hef ekkert á móti Magnúsi enda
þekki ég hann ekki. Ég hafði ekki
áhuga á að vinna lengur hjá Heijólfi."
- ás.
Nú er mikið úrval
af hústjöldum,
göngutjöldum og
gistitjöldum í ferðalagið.
Sendum í póstkröfu.
Apollo
2ja manna, verð kr. 4.748,-
3ja manna, verð kr. 5.872,-
Barnatjöld í miklu úrvali frá kr. 1.000,
Hefur þú mátað aila sólstólana?
Viðleguútbúnaður
í miklu úrvali.
Hagstætt verð.
5 manna tjald, kr. 9.970,-
Fleygahiminn, kr. 12.292,-
(Keypt saman 10% staðgreiðslu-
afsláttur.)
Dallas
4ra manna, verð kr. ca 19.850,-
6 manna, verð kr. 25.040,-
cfcUgcrtf-
Eyjaslóð 7, Reykjavík - Pósthólf 659
Símar 14093 - 13320 Nafnnr. 9879 -1698