Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Blaðsíða 32
44
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
Sviðsljós
I>V
Ólyginn
, sagði . . .
Madonna
og eiginmaðurinn Sean
Penn eru að gera gamla bí-
tilinn George Harrison
endanlega gráhærðan. Það
þarf mikið til að koma þess-
um þögla og óhagganlega
tónlistarmanni úr jafnvægi
en honum var nóg boðið
þegar þau hjónin heimtuðu
að Sean fengi myndina
Shanghai Surprise í hendur
til þess að endurgera ýmis
atriði - leikstjórnarlega séð.
,Kemur ekki til greina,"
sagði Harrison og benti á að
herra Madonna hefði enga
reynslu í þessum efnum.
Pennarnir neituðu að leggja
til raddir í lokavinnslu mynd-
arinnar og það var ekki fyrr
en Harrison var kominn með
staðgengla fyrir þau í öll
hlutverk að slegið var af
kröfunum. Nú telst víst Sean
Penn hjálparmaður hins þol-
inmóða Harrisons og það
fyrirfinnst ekki ein einasta
sála í allri Hollívúdd sem
öfundar bítilinn af aðstoð-
inni.
Jane
Wyman
segist ekki reyna að draga
dul á sín stærstu persónu-
einkenni - hún vill helst vera
miðdepillinn allsstaðar. Hún
var eitt sinn gift manni sem
hafði einmitt sömu ástríðu -
Ronald Reagan síðar forseta
Bandaríkjanna. Þessir tveir
miðdeplar komu sér illa sam-
an um hvor ætti að skína
skærar þannig að leiðir
skildu og einu samskiptin á
síðari árum eru í gegnum
fjölmiðla. Jane gefur yfirlýs-
ingar um hversu miklu meiri
laun hún hafi í leiklistinni en
sjálfur Bandaríkjaforseti get-
ur státað af og gamli kúrek-
inn svarar með því að þegja
upphátt. En hún hefði alténd
skaffað vel í hjónabandinu
svo ...
Stefanó, eiginmaður Karólínu, hefur
nú af henni þungar áhyggjur.
I
Á baðströndinri skömmu áður en
hún missti meðvitund.
Missir
Karólína
bamið?
Á eynni Cavaao milli Sardiniu og
Korsiku eyddu Karólína og Stefanó
maður hennar nokkrum sæludögum
í síðustu viku. En ekki varði það
lengi því á stöndinni missti Karólína
skyndilega meðvitund og komu eig-
inmaður hennar og lífvörðurinn að
henni liggjandi i sandinum. Hún var
samstundis flutt með þyrlu til læknis
og er í stöðugum rannsóknum síðan.
Faðir Karólínu, Rainier fursti, fyr-
irskipar algera hvíld fyrir þessa
dóttur sína fram að fæðingu og eigin-
maðurinn víkur ekki frá henni eina
mínútu. Læknar óttast mjög að hún
missi fóstrið og ráðleggja rúmlegur
meirihluta dagsins. Einkalæknir
hennar, Hubert Harden, segir prins-
essuna einfaldlega að niðurlotum
komna af þreytu og ef ekkert sé að
gert megi búast við því að illa fari.
Rainier hefur aflýst öllum opin-
berum verkefnum sem Karólína
hafði á hendi og stöðugt er til taks
þyrla til þess að flytja hana rakleiðis
á sjúkrahús. Furstinn hlakkar til
fæðingar barnsins og hefur undir-
strikað gleði sína með því að gefa
Karólínu splunkunýja lystisnekkju í
fyrirframfæðingargjöf.
Og eins og allir vita er von á
stúlkubami - ef allt fer vel - og naf-
nið er á hreinu - Grace.
Það vantar ekkert upp á hressilegar hreyfingar barnsins í móðurkviði.
Þjálfunin hefst snemma hjá William prinsi í Bretlandi. Hann er.fjögurra ára
og nú þegar farinn að sýna þjóðhöfðingjatakta opinberlega. Héma sést Villi
Iitli heilsa hinum konunglega lífverði en Harry litlibróðir kærir sig greini-
lega kollóttan um slíka hirðsiði. Michael, prinsessa af Kent, reyrdr að vekja
áhuga dótturinnar, Gabriellu Windsor, en henni er öldungis sama um allt
tilstandið.
Fyrsta hjólhýsið
Þróunin í hönnun hjólhýsa hefur verið með ágætum og ýmislegt breyst frá
því að myndin var tekin í kringum nítján hundruð og tuttugu. Kassabílalag-
ið er engin ímyndun því þarna er timburhúsi skellt á gamlan Ford Pickup.
Fyrstu eiginlegu hjólhýsin komu á markaðinn tuttugu árum síðar en þessi
forveri þeirra stóð sig með ágætum og veitti eigendum sínum ómælda ánægju
- mílu eftir mílu.
Ósvikinn
krókódílaskór
Þetta er ósvikinn krókódílaskór,
gerður úr skinni raunverulegs
krókódils og hnykkt á því með
sporði, tönnum og augum. Franski
hönnuðurinn Andre Marion fékk
hugmyndina eftir að hafa hlustað á
útvarpsmann biðja um krókódílaskó
með alvöruskolti. Skógerðin tók sex-
tíu klukkustundir og það er aðeins
hægt að fá þessa gerð með sérpönt-
unum og dýrðin kostar um áttatíu
þúsund krónúr párið!