Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Blaðsíða 26
38 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986. Konur fengsælar á Mumeyrarmóti Hestamannafélögin Sleipnir og Smári héldu góðhestakeppni og kappreiðar á Mumeyrum um síð- ustu helgi. Mumeyrarmót hafa oft verið fjölsótt og með stærstu mótum sumarsins. En nú var ekki sama reisn yfir mótinu og áður fyrr. Ef til vill hefur landsmótið, sem haldið var nýlega, svo og brakandi þurrkur valdið því að þátttakan var minni en áður. Kvenmenn virðast vera að sækja sig í hestamennskunni í Ámessýslu. Þrír efstu knapar i bamaflokki og unglingaflokki i gæðingakeppninni hjá Smára vom kvenmenn og einnig sigurvegarar í báðum unglinga- flokkunum hjá Sleipni. Sá knapi sem átti og sýndi efsta hest í A flokki hjá Sleipni var einnig kvenmaður. Annie B. Sigfúsdóttir hlaut Sveins- merki Smára og Þuríður Einars- 93 í einkunn og Trítill, sem Haukur Haraldsson á og sýndi, varð þriðji með 7,85 í einkunn. í B flokki hjá Smára stóð efstur Snarfari Ingvars Þórðarsonar, sem Ásrún Davíðsson sýndi, og hlaut 8,14 í einkunn. Stjama, sem Sigfús Guðmundsson á en Annie B. Sigfúsdóttir sýndi, varð í öðm sæti með 8,03 í einkunn og með sömu einkunn, þó broti minna, var Stígandi sem Gunnar Már Gunnarsson á og sýndi. í bama- flokki hjá Smára sigraði Rósamunda Sævarsdóttir á Klæng með 8,12 í ein- kunn, Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir varð í öðm sæti með 8,07 í einkunn á Gissuri og Kristjana Lilja Sigurðar- dóttir í þriðja sæti á Tinnu með 7,95 í einkunn. í eldri flokki unglinga sigraði Borghildur Ágústsdóttir á Krumma með 8,09 í einkunn, Stein- unn B. Birgisdóttir varð í öðm sæti á Gígju með 7,96 í einkunn og Elín Sigurvegarar í B flokki hjá Smára. dóttir riddarabikar Sleipnis. Helstu úrslit mótsins urðu þessi: Góðhestakeppnin Hjá Snlára urðu úrslit þau í A flokki að Krummi, sem Magnús T. Svavarsson á og sýndi, stóð efctur með 8,18 í einkunn, Högni, sem Val- gerður Auðunsdóttir á en Jón Vigfússon sýndi, varð annar með 7, Ósk Þórisdóttir varð i þriðja sæti á Nasa með 7,81 í einkunn. Hjá Sleipni urðu helstu úrslit þau í gæðingakeppninni að í B flokki sigraði Ögri Þorvaldar Sveinssonar, sem Einar Öder Magnússon sat, og hlaut 8,27 í einkunn. Rosi Áma Guðmundssonar varð annar með 8, 23 í einkunn en Símon Grétarsson sýndi hann. Dúx, sem Magnús Skúlason á og sýndi, varð í þriðja sæti með 8,21. I A flokki sigraði Flugvar, sem Rúna Einarsdóttir á og sýndi, og hlaut 8,23 í einkunn. Skálmar Ragnheiðar Hafeteinsdótt- ur, sem Halldór Vilhjálmsson sýndi, varð í öðm sæti með 8,12 í einkunn og Dröfh Skúla Magnússonar, sem Magnús Skúlason sat, varð í þriðja sæti með 8,02 í einkunn. 1 eldri flokki unglinga sigraði Ragna Gunnars- dóttir á Tjörva með 8,27 í einkunn, Borghildur Ágústsdóttir sigraði i unglingaflokki hjá Smára. Steinn Skúlason varð í öðm sæti á Framfara með 8,15 í einkunn og Garðar Matthíasson í þriðja sæti með hestinn Segul með 8,04 í ein- kunn. I bamaflokki sigraði Am- heiður Helga Ingibergsdóttir á Mána með 8,29 í einkunn, Bjami Guðmundsson varð í öðm sæti með Sveip og 8,05 í einkunn og Rúna Einarsdóttir i þriðja sæti á Hvin með 8,03 í einkunn. Kappreiðar Þátttaka í kappreiðum var nokkur að vanda. Bætt hefúr verið við 150 metra nýliðaskeiði og 250 metra ný- liðastökki sem er einungis fyrir innanfélagsknapa. í 350 metra stökki sigraði Undri Guðna Kristinssonar, sem Jón Ólafur Jóhannesson sat, á 25.2 sek. Blakkur, sem Pétur Kjart- ansson á, varð í öðm sæti á 25,3 sek. en Lótus Krisins Guðnasonar varð þriðji á 25,8 sek. Róbert Jónsson sat Lótus. I 300 metra brokki sigraði Héðinn Tómasar Steindórssonar, sem Steindór Tómasson sat, á 41,4 sek., Máni, sem Amheiður Helga Ingibergsdóttir á og sat, varð í öðm sæti á 46,2 sek. og Blesi, sem Vignir Amarson á og sat, varð þriðji á 47,0 sek. Kristur, sem Guðni Jónsson á en Róbert Jónsson sat, sigraði í 800 metra stökkinu á 62,6 sek. Bylur Grétu Guðmundsdóttur varð annar á 66,1 sek. en Aron Guðmundsson sat hann. Hebron, sem Axel Geirsson á og sat, varð í þriðja sæti á 73,2 sek. Trausti Guðmundar Steindórs- sonar sigraði í 150 metra nýliða- skeiði á 17,2 sek. Trítill, sem Haukur Haraldsson á og sat, varð annar á 17,7 sek. og Öm Skúla Steinssonar varð þriðji á 18,0 sek. en Steinn Skúlason sat hann. Skjár Önnu Vil- hjálmsdóttur sigraði í 250 metra nýliðastökki á 19,8 sek. Halldór Vil- hjálmsson var knapi. Mön Helga Jónssonar, sem Elín Ósk Þórisdóttir sat, varð önnur á 20,4 sek. og Gáta, sem Elín Ósk á og sat, varð þriðja á 20,6 sek. Erling Sigurðsson varð sigursæll í skeiðkeppnunum. Hann sigraði í 150 metra skeiði á Hvin, sem hann og Steindór Steindórsson eiga, á 16,1 sek. Dynur varð í öðm sæti á 16,4 sek., knapi og eigandi Magnús Geirsson, Frakkur þriðji á 16,8 sek., knapi og eigandi Már Ólafsson. Erl- ing Sigurðsson átti fyrsta og þriðja hest í 250 metra skeiðinu og sat þá báða. Vani sigraði á 24,1 sek. Busla, sem Símon Grétarsson á og sat, varð í öðm sæti á 24,4 sek. en Þrymur í þriðja sæti á 24,9 sek. Tvistur Guðna Kristinssonar sigraði í 250 metra stökkinu á 19,0 sek. Jón Ólafur Jó- hannesson var knapi. Lonta þeirra Þorkels og Gylfa varð i öðm sæti á 19.2 sek. og Goði, sem Marta Esther Hjaltadóttir á og sat, varð í þriðja sæti á 19,3 sek. Tekið var upp á þeirri nýbreytni að keppa í tölti. Þar sigraði Magnús Skúlason á Dúx, Símon Grétarsson varð í öðm sæti á Rosa og Annie B. Sigfúsdóttir í þriðja sæti á Stjömu. Gilsfjörður er litill fjörður er gengur úr botni Breiðafjarðar og er nokkur vafi hvar hann byijar. Þorvaldur Thoroddsen telur hann ná allt undir i' Akureyjar og aðrir telja hann ná út undir Tjaldanes og Króksfjarðames. Fjörðurinn er svo gmnnur að út úr honum fellur um fjöm nema mjór áll er eftir miðjum firði. Undirlendi með ströndum er lítið en stutt dalhvilft inn af fjarðarbotni. Þar er grösugt og rísa hlíðar með hjöllum upp frá sléttlend- inu. Gilsfjörður getur verið fagur á sum- rpm en erfiður á vetrum. I Ólafedal, sem er 5 km langur dalur sem gengur til suðurs úr innanverðum Gilsfirði, er einn bær, samnefndur. Þar stofnaði Torfi Bjamason upp á eigin spýtur fyrsta búnaðarskóla á íslandi og starf- aði skólinn á þriðja áratug, á árunum 1880-1907, er ný skipan var gerð á búnaðarfræðslu í landinu. Torfi var ejnn mestur forgöngumaður í land- búnaði á sínum tíma. Torfi rak tó- vinnuvélar í ólafedal og jarðyrkju- verkfeeri vom smíðuð þar. Sumarið 1955 var þeim hjónum Torfa Bjamasj-ni og Guðlaugu Zakarías- Austur-Barðastrandavsýsla Gilsfjörður ■ ,* . . '• . ■-............ ......./■ w*. . . ■< ■ T >*, • 4 - /■ ? '*#' * ■ ' ■ • .-.v Fuglalíf er fjölbreytt i Gilsfirði og æðarfugl viða. dóttur reist minnismerki í túninu í ■ . Menntaskólans við Si^ijd. Gaman er Ólafsdal. Erstuttaðrennaafþjóðveg- T ítlVlSt að renna heim að Ólafsdal og virða inum þangað og blasir minnismerkið ____________________________________ fyrir sér húsakost, sjá gamlar vélar við vegfarendum. Ólafedalur er nú í Gunnar Bender sem bera aldurinn vel og skoða sig eyði en bæjarhús em skólasel __________________________________________ um, eða renna fyrir bleikju í Ólafs- dalsánni en töluvert veiðist af henni. Það er hægt að ganga á fjöll í Gils- firði, skoða fjörur, fossa, eins og Gullfoss innst inni í dalnum, glæsileg- an foss í Múlá og skoða fúglalíf sem er töluvert í Gilsfirði. Það hefur margt gerst á Vestfjörðum og einnig í Gilsfirði, hvort sem það em tröll sem ætla að moka sund á milli Vestfjarða og landsins, nálægt því sem það er mjóst, milli Gilsfjarðar og Kollafjarðíu, sem tókst ekki, eða galdramenn sem þóttust vera mestir manna. Ef þú átt leið um Gilsfjörð þá hægðu á ferðinni og virtu hann fyrir þér, foss- ,ar, fjöll og fyrsti búnaðarskólinn á íslandi eiga eftir að vekja eftirtekt þína. Það er áhrifamikið að ganga um hljóðláta ganga Ólafcdals og virða fyr- ir sér áhöld og tæki sem ekki em lengur notuð. Það hefur þurft mikla bjartsýni til að setja upp skóla í Ólafs- dal um 1880, í þessum dal sem núna geymir aðeins minningar liðins tíma. Virtu hann fyrir þér næst þegar þú átt leið um Gilsfjörð. G. Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.