Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
Iþróttir
• Kevin Keegan -til Saudi-Arabíu?. Mynd-
in að ofan var tekin á Laugardalsvelli þegar
Keegan lék með Hamborg í Evrópubikarn-
um gegn Val.
Bjóða Kevin
an stórfé
Keeg
-semla
semlándsliðsþjálfara
Forráðamenn knattspymusambands Saudi-
Arabíu eru nú að reyna að fá Kevin Keegan,
fyrrum fyrirliða enska landsliðsins, tii sín scm
landsliðsþjálfara. Þeir hafa boðið honum 120
þúsund sterlingspund - skattfrjáls - rúmlega
sjö milljónir íslenskra króna - í kaup. Auk
þess allt uppihald greitt, eins margar flugferðir
heim tii Englands og hann óskar eftir. Einnig
dagpeninga svo Keegan geti verið þátttakandi
í þvi lúxuslífi sem þekkt er í Saudi-Arabíu.
Kevin hefur enn ekki tekið ákvörðun í mál-
inu, hvort hann þekkist boðið. Hann er ekki á
flæðiskeri staddur fjárhagslega. Varð fyrsti
breski leikmaðurinn til að vinna sér inn milljón
sterlingspund á litríkum leikferli þar sem hann
lék með Liverpool, Hamborg, Southampton og
Newcastle en hóf feril sinn hjá Scunthorpe í
Lincolnshire. Hann hætti keppni 1984 og hasl-
aði sér völl í viðskiptum. Hefur gert það gott
þar svo tilboð arábanna er ekki eins lokkandí
fyrir hann og flesta aðra. hsim
Þátttakendur frá 21 þjóð
mættu á samveldisleikana
- ekki minnst á stjómmál í setningarræðu Philips prins
Tuttugu þúsund áhorfendur voru ú
Edinborgar-leikvanginum í gærkvöld
þegar Philip prins setti þrettándu sam-
veldisleikana sem munu standa yfir
næstu tíu dagana. Þéttskipaður völlur
en helmingur þeirra þjóða, sem upp-
haflega höfðu tilkynnt þátttöku, mætti
ekki til leiks til að mótmæla stefhu
bresku ríkisstjómarinnar, einkum for-
sætisráðherrans, Margrétar Tatcher,
gagnvart Suður-Afríku. Þetta setti ,
svip á setningarathöfhina en rétt áður
en hún átti sér stað varð óvænt atvik.
Eftir miklar viðræður við mótsstjóm-
ina síðasta sólarhringinn hafði
Bermúda hætt við þátttöku en hætti
við að hætta á síðustu stundu. Tólf
af þrettán keppendum Bermuda vom
á Meadowbank-leikvanginum og
fögnuðu mjög.
Keppendur frá 27 þjóðum mættu því
til leiks - keppendur 31 þjóðar mættu
ekki til leiks. Þar á meðal var Ind-
land, fjölmennasta ríki samveldisins,
sem ætlaði að senda fjórða stærsta
hópinn á leikana, 218 þátttakendur.
Einnig nokkur Afríkulönd eins og
Kenýa, Nígería og Ghana, sem eiga
mjög góðu íþróttafólki á að skipa,
Tanzanía, Uganda, Zambia og
Zimbabwe. Þá var íþróttafólk Bangla-
desh og Jamaíka ekki meðal þátttak-
Philip prins setti samveldisleikana i Edinborg i gærkvöld. DV-mynd GVA
enda. Hinar þjóðimar, sem hættu við
þátttöku, flest smáþjóðir, einkum frá
eyjum, Kýpur, Bahamaeyjar, Grenada,
Barbados, Jómfrúreyjar, Sri Lanka og
Trinidad svo nokkrar séu nefndar. Af
þeim sem hættu við þátttöku hafði
Kenýa tilkynnt flesta keppendur, þeg-
ar Indland er frátalið, eða 90.
Þátttakendur á annað þúsund
Þátttakendur ú leikunum verða á
annað þúsund frá 27 þjóðum. Englend-
ingar flestir, eða 400 enskir þátttak-
endur. Stórir hópar einnig frá Kanada,
eða 368, Ástralíu 307, Skotlandi 213,
Wales 176 og Nýja-Sjálandi 143. Síðan
koma Norður-írar með 97, Hong Kong
77, Guemsey 65, Fiji 64, Maneyja 58.
Fleiri þjóðir vom ekki með yfir 50
keppendur. Fæstir frá Falklandseyjum
og Singapore, tveir frá hvom landi.
Ekki hættu allar Afríkuþjóðir sam-
veldisins við þátttöku. Swaziland
sendi 46 þátttakendur, nokkrar aðrar
færri.
í setningarræðu sinni las Philip
prins upp tilkynningu frá Elísabetu
drottningu. Þar var ekki minnst á
stjómmál. Þakkir til framkvæmda-
nefndarinnar fyrir frábæran undir-
búning, rætt um íþróttaanda og
vináttu.
Þó meirihluti upphaflegra þátttöku-
þjóða - 49 lönd tilheyra samveldinu
breska - hafi hætt við þátttöku má
búast við því að samveldisleikamir í
Edinborg verði mikill íþróttaviðburð-
ur. Þar verða flestir snjöllustu íþrótta-
menn samveldisins sem einkum em frá
Englandi, Astralíu og Kanada. Vissu-
lega vantar hlauparana þekktu frá
nokkrum Afríkuþjóðum og Jamaíka
en flestar aðrar þjóðir, sem hættu við
þátttöku, eiga ekki góðu iþróttafólki
á að skipa. En ensku hlauparamir
Coe, Cram og Ovett ásamt Johnson,
Kanada, verða eflaust mest í sviðsljós-
inu og þeir standa alltaf fyrir sínu.
hsím
Brown og Cesar
til Frakklands
Argentínumaðurinn Jose Luis
Brown og Julio Cesar frá Brasilíu
hafa nú verið keyptir til franska liðs-
ins Brest. Þeir mimu koma til Frakk-
lands í næstu viku og hefja þá æfingar
með liðinu. Þetta kom fram hjá Christr
ian Legarrec, stjómarmanni hjá Brest,
á blaðamannafúndi sem liðið boðaði
til í gær. Hann vildi þó ekki gefa upp
hve mikið franska liðið hefði þurft að
borga fyrir leikmennina.
Þetta hljóta að teljast stórtíðindi í
knattspymuheiminum því þetta em
tveir af þeim vamarmönnum sem hvað
mesta athygli vöktu í keppninni.
Brown skoraði hið mikilvæga opnun-
armark Argentínumanna í úrslita-
leiknum. Hann var nánast óþekktur
fyrir keppnina. Hann samdi til þriggja
ára við liðið. Julio Cesar, sem hafði
verið orðaður við mörg lið, samdi hins
vegar til fimm ára.
Það vekur svo sannarlega furðu hve
rúm fjúrráð frönsku liðin hafa til
kaupa á leikmönnum. Þau em komin
í harða samkeppni við hin fjársterku
Uð í nágrannalöndunum, á Spáni og
Ítalíu, um leikmenn. Áður vom tveir
Argentínumenn komnir til Frakk-
lands. Þeir Julio Olarticoecha, sem var
í vöminni hjá heimsmeistumnum
ásamt Brown, og sóknarmaðurinn
Jorge Burruchaga. Þeir em báðir hjá
Nantes. -SMJ
Gult spjald á
formann KSÍ
Það hefur verið stefria Knattspymudómara-
sambandsins að elta ekki ólar við blaðaskrif
og umtal hvers konar. En undanfarið hefur
verið ijallað um málefhi dómara af slíku þekk-
ingarleysi að steininn tekur úr, og er þess
vegna gerð sú undantekning að svara.
Dómaramál hafa verið í brennidepli fjöl-
miðla nú undanfarið og skal nú leiðrétt það
sem rangt hefur verið sagt um þessi mál.
Formaður KSl gerir sig beran að slíkri van-
þekkingu á málum er snerta dómara að undrun
og óánægju hefur vakið hjá knattspymudóm-
arasambandinu. I samtali við Morgunblaðið
þann 19.07. er Ellert Schram, form. KSÍ, inntur
álits á ferðakostnaði dómara vegna þeirrar
gagnrýni sem fram kom í bréfi frá Stefáni
Gunnlaugssyni, form. KA, daginn áður. Segir
Ellert m.a. að viss ágreiningur sé milli KSl
annars vegar og dómarasambandsins hins veg-
ar um val á dómurum, hæfiúspróf og fleira.
Þessi fúllyrðing formanns KSÍ (ef rétt er eftir
höfð) er röng. Þing KSÍ, haldið í Eyjum í fyrra-
haust, komst að þeirri niðurstöðu að málefhi
knattspymudómara væru best komin hjá þeim
sjálfum. Ennfremur er eftir Ellert haft að:
„Dómarasambandið annast niðurröðun dóm-
ara á leiki og dómaranefnd KSl samþykki
síðan þær ákvarðanir." Þetta er líka alrangt
og í raun merkileg fáfræði hjá formanninum.
Sú nefhd sem annast niðurröðun dómara á
leiki og kallast illu heilli dómaranefnd, er skip-
uð þremur mönnum, 2 eru skipaðir af KSÍ
og 1 frá dómarasambandinu. Þessi nefild,
en ekki dómarasambandið, raðar dómurum
niður á leiki og þessi nefnd heyrir undir KSÍ
en ekki dómarasambandið. Vonast ég nú til
að ég þurfi ekki að sýna formanni KSl fleiri
gui spjöld vegna 'þessn máls.
Hitt er svo aftur annað mál að vissulega er
talsverður kostnaður þvi samfara að senda
dómara landshluta á milli. En það hefur alveg
gleymst í þessari umræðu að íþróttafélögin vel
flest hafa alveg vanrækt dómaramálin með
þeim afleiðingum að nú eru t.d. aðeins fimm
landsdómarar á Norður- og Austurlandi, sem
fullnægja þeim kröfum sem gerðar-eru, 3 A-
dómarar (1. deild) og 2 B-dómarar (2. deild). Á
þessu svæði eru Þór í 1. deild, KA, KS, Völs-
ungur og Einheiji í 2. deild og KA í 1. deild
kvenna. Það segir sig sjálft að fá verður dóm-
ara annars staðar frá á svæðið þar sem
stundum eru tveir, þrír og jafnvel 4 leikir á
Norðurlandi sama daginn.
Þann 16.07. voru málefni knattspymudóm-
ara meðhöndluð af slíkri vanþekkingu og
fordómum í DV að ekki verður við unað. Þeim
hluta greinarinnar er snýr að samskiptum
dómara og forustu þeirra vísa ég alfarið á bug.
Blaðamaður tæpir á „rangri túlkun svokall-
aðrar hagnaðarreglu" - samstarfsleysi dómara,
línuvarða og fleira. Þessu vil ég svara með því
að bjóða viðkomandi blaðamanni á dómara-
námskeið, þvi til þess að skrifa um dómgæslu
þarf blaðamaðurinn að skilja hana. Blaðamað-
ur telur þrekpróf það sem kemur frá UEFA/
FIFA ekki nægilega strangt fyrir ísienska
dómara en þetta sama þrekpróf er látið duga
í heimi atvinnumennskunar, t.d. Englandi og
Þýskalandi.
Blaðamaður skýlir sér á bak við „heimildar-
mann“ og segir að æfingarlaus maður um
sextugt geti staðist þrekprófið. Ef umræddur
blaðamaður er undir sextugu skora ég á hann
að reyna sig við þrekprófið, en það er i því
fóÍBið að*hlatroa 2.600 rnetra innan við 1?
min., síðan 400 metra á innan við 75 sek. og
að lokum 50 metra á innan við 8 sek.
I DV-greininni er talað um að fækka 1. deild-
ar dómurum úr 15 niður í 6 - í tvö trió. Þarf
ég að segja fleira um það. Er milliríkjalistinn
skrípaleikitr? Nei, okkur er millirikjalistinn
hið mesta alvörumál. Hann er ítarlega valinn
og að sjálfsögðu í stöðugri endurskoðun.
Árás blaðamanns á Þórodd Hjaltalín lýsir
vel lágkúru umræddrar greinar. Greininni er
ætlað að vera málefnaleg, samt tekur greinar-
höfúndur einn út úr og nafhgreinir. Raunar
eiga umsagnir S.K. um dómgæslu Þórodds
Hjaltalín í sumar sér engin fordæmi og eru
óskiljanlegar. Þóroddur Hjaltalin gerir meira
en að uppfylla þær kröfur sem til hans eru
gerðar og er fyllilega alls trausts verður.
Blaðamaður endar síðan grein sína með spum-
ingunni laun til dómara? Þessi spuming blm.
er lýsandi dæmi um þekkingarleysi hans á
málefhum íslenskrar knattspymu.
Iþróttafélögin era að kikna undan kostnaði
en það hefur víst farið framhjá blaðamanni.
Dómarar eru ólaunaðir áhugamenn rétt eins
og leikmenn enda sarmýmist annað ekki lög-
um ISÍ.
Að lokum: Til þess að umræða verði gagnleg
þarf hún að vera sanngjöm - telji blaðamaður
þörf á að moka flórinn þarf hann að gæta
þess að falla ekki flatur.
F.h. stjórnar Knattspymudómarasam
bands Islands, Heimir Bergmann.
• Hafþór Kolbeinsson gengur af le
dómarinn hafði sýnt honum rauða s|
0-1 fyrir Siglfirðinga. Hafþór skorað
Athugasemdir frá EBS
Ég hef ekki frekar en dómarasamband-
ið nennt að elta ólar við ómaklega og
staðlausa gagnrýni á störf Knattspymu-
sambandsins. Ut af þessum skrifum
Heimis Bergmanns vildi ég aðeins segja
þetta: Heimir getiu- sagt hverjum sem er
að enginn ágreiningur sé í knattspymu-
hreyfingimni um dómaramál - en ekki
mér. Ég veit betur og í rauninni var það
fyrir mina tilstuðlan á síðasta ársþingi
KSÍ að ekki var gengið til atkvæða um
róttækar breytingar á skipan dómara-
mála sem ég vissi að mundu mæta
andstöðu dómarasambandsins. Þar vildi
ég bera klæði á vopnin eins og ég hef
ávallt leitast við að gera í samskiptum
KSÍ við dómara. Kannski H.B. sé að gefa
mér gult spjald til að ég breyti um afstöðu.
Að þvi er varðar tilvitnun í MBL. frá
19.7. þar sem eftir mér er haft að dómara-
sambandið annist niöurröðun dómara á
leiki, sem dómaranefnd KSÍ síðan sam-
þykki, gætir ónákvæmni. Blaðamaður
var að spyrja um tiltekna leiki í sextán
liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Form.
dómaranefndar KSÍ hefur og hafði tjáð
mér að form. KDSl gerði tillögur um þá
niðturöðun, sem nefndin féllst ó, enda í
samræmi við þá stefnu að dómaranefndin
og stjórn KSI hefur leitast við að taka
eins mikið tillit til sjónarmiða dómara og
kostur er. Kannski Heimir vilji að KSI
breyti um þá afstöðu.
Ellert B. Schram.