Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Side 7
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
7
DV
Viðskipti
Þurfa íslendingar að vinna fiskinn meira innanlands?
Danir vilja
selja Japönum
hrognfulla síld
Fiskverðið
Reykjavík:
Bv. Asþór landaði 21. júlí 125 tonn-
um, heildarverðmæti kr. 2,558 millj.
Þorskur var 20 tonn, ufsi 25 tonn
og karfi 25 tonn, auk annars fisks í
litlu magni. Bv. Ögri landaði 22. júlí
295 tonnum, mest karfa. Bv. Engey
landaði 21. júlí 150 tonnum af karfa.,
þar af 70 tonnum af þorski. Landan-
ir annarra skipa hafa verið litlar.
Grimsby:
Bv. Bessi landaði 22. júlí alls 156
tonnum fyrir kr. 8,7 millj. Meðalverð
Fiskmarkaðirrdr
Ingólfur Stefánsson
á þorski var 58,70 kr. kílóið. Seldur
var fiskur úr gámum í síðustu viku
fyrir kr. 35 millj. Meðalverð á þorski
var kr. 52, meðalverð á ýsu kr. 55,
ufsa kr. 23,17, karfa kr. 15,41 og kola
kr. 34. Alls voru seld 735 tonn.
í þessari viku, það sem af er, hefur
verið seldur fiskur í gámum fyrir kr.
13 millj. Meðalverð hefur verið svip-
að og í síðustu viku.
Danmörk:
Það er víðar en á íslandi sem vandi
er með síld og síldarafúrðir. Sjávar-
útvegsráðherra Danmerkur var á
fundi með útgerðar- og sjómönnum
þar sem rætt var meðal annars um
að veiða síld til fiskimjölsfram-
leiðslu. Sjávarútvegsráðherra taldi
að síldveiðar til fiskimjölsfram-
leiðslu myndu ekki bæta hag fiski-
og útgerðarmanna þótt veiðar yrðu
leyfðar með þeim hætti. Sagði hann
að þeir erfiðleikar, sem nú steðjuðu
að, væru ekki þess eðlis að þeir yrðu
leystir auðveldlega. Síldveiðiflotinn
á nú við mikla erfiðleika að etja og
er ekki séð með hvaða hætti mætti
leysa þann vanda. Meðal þess sem
vandanum veldur er að ekki hefur
enn náðst samkomulag milli Efha-
hagsbandalagslanda, Norðmanna og
Svía um veiðamar i Skagerak. Verð-
ið á síld hélst nokkuð gott meðan
lítil veiði var í Norðursjó en nú er
öldin önnur þegar nóg er af síldinni.
Sölumenn em andvígir því að
fiskað verði í bræðslu. Þeir telja að
miklir möguleikar séu á góðum við-
skiptum við Japani ef rétt er að
staðið. Þeir em kröfuharðir en vilja
borga vel fyrir þá vöm sem þeim lík-
ar. Þeir benda á að selja megi
hrognafulla síld til Japans fyrir gott
verð. Telja þeir að hrognafullur
skarkoli sé þar í góðu verði og jafn-
vel megi fá gott verð fyrir hrogna-
fullan sandkola ef staðið er að
verkuninni eins og Japanir vilja.
Gæti þetta komið á móti bræðslu-
veiðinni á síld og yrði útkoman betri.
Royal Greenland getur veitt
500 manns atvinnu
í nóvember hefst bygging fiskverk-
smiðjunnar Royal Greenland í
Álaborg í Danmörku. Þessi jóska
verksmiðja á að verða tilbúin til
framleiðslu á miðju ári 1987 og veit-
ir þá um 70-80 manns stöðuga vinnu.
Royal Greenland mun hafa mikil
áhrif á vinnslu fisks á Grænlandi en
verksmiðjur þar munu sjá um for-
vinnslu.
í 10 verksmiðjum, sem grænlenska
landsstjómin á, vinna 1700 manns
heilsdagsstörf. Ef byggt verður eins
og gert er ráð fyrir og fjármagn fæst
verður pakkað fiski og rækju. Sagði
forstjóri Royal Greenland, Mogens
Werauch, að eftir að Álaborgarverk-
smiðjan hefur tekið til starfa muni
þurfa að fjölga um 500 manns í græn-
lensku verksmiðjunum.
Aðaltilgangurinn með Álaborgar-
verksmiðjunni er að veita stöðuga
vinnu í grænlensku verksmiðjuhum.
I Álaborgarverksmiðjunni verður
varan fúllunnin og til. að byija með
verður meðal annars pakkaður
reyktur lax og stórlúða, ennfremur
verður um að ræða formuð stykki,
steikt og tilbúin til neyslu í hádegis-
verðinn, o.s.frv. Menn frá Royal
Greenland hafa verið að kynna sér
fyrirkomulag á vinnslu fisks i Bret-
landi, Ameríku og á íslandi en þeir
segja að þar sé lítið hægt að læra
þar sem þeir flytji alla forvinnslu til
útlanda. Selji aðeins flökin til
vinnslu í erlendum verksmiðjum.
Framangreindar upplýsingar eru
úr Dansk Fiskeritidende frá 26. júní
1986, lauslega þýddar og endursagð-
ar.
íslenskir fiskverkendur hafa átt í
miklum fjárhagsvanda. Athugandi
er hvort ekki hefur verið gert of
mikið af því að láta hráefnið í hend-
ur erlendum verkendum til frekari
vinnslu, t.d. að búa fiskinn til neyslu
á heimilunum með lítilli fyrirhöfn.
Nútímaþjóðfélagið krefst þess að fá
alla neysluvöru í hendurnar þannig
úr garði gerðar að sem minnstan
tíma taki að matreiða.
Hull:
Ms. Hamrasvanur landaði í Hull
17. júlí fyrir kr. 2,5 millj. Stór þorsk-
ur fór á kr. 60, ýsa 63 krónur, koli
43 kr. og stórlúða á kr. 150.
Gjaldþrot Reykhólaskips:
Skuldar meira en
tuttugu milljónir
„Mér sýnist á öllu að þetta séu
skuldir upp á 20 til 22 milljónir, án
þess þó að ég sé búinn að fara ræki-
lega í gegnum reikninga. fnnköllun
birtist nú um mánaðamótin og því má
búast við skiptafundi í byrjun októb-
er,“ sagði Jón Ólafsson sem skipaður
hefur verið bústjóri í gjaldþrotabúi
Reykhólaskips.
Ymislegt í rekstri Reykhólaskips
virðist orka tvímælis og má meðal
annars nefna að aðalfúndir voru ekki
haldnir svo sem lög um hlutafélög
gera ráð fyrir og var síðasti aðalfúnd-
ur haldinn í nóvember 1984. Á þeim
fundi var samþykkt að boðaður yrði
hluthafafundur sem aldrei var hald-
inn. í ársreikningum fyrirtækisins er
skip þess, Helgey, metið á 15-17 millj-
ónir, en heimildir DV herma að Helgey
sé í hæsta lagi 9 milljón króna virði.
Við endurskoðun á ársreikningi fé-
lagsins fyrir árið 1985 bendir endur-
skoðandi á að framkvæmdastjóri
félagsins hafi ekki staðið nægilega vel
að frágangi gagna, né heldur hafi hann
skilað þeim á tilskildum tíma. I sömu
endurskoðun kemur fram að á meðan
fyrirtækið skuldaði l,8.milljón í lífeyr-
issjóð og opinber gjöld frá fyrra ári,
auk 660 þúsunda í aftekin opinber
gjöld, greiddi Ólafur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri sér tæp 300 þúsund í
fyrirfram greidd laun.
Steingrímur Gautur Kristjánsson
hefur verið skipaðm- umboðsskipta-
ráðandi í Reykjavík en Stefán Skarp-
Helgey: Er verðmæti skipsins innan við helmingur skuldanna?
«
■ss-.
s* m m»
héðinsson, sýslumaður Barðastrand- um sem var stærsti hluthafinn í
arsýslu, sér um gjaldþrotaskipti Revkhólaskipi.
Þörungaverksmiðjunnar á Reykhól- -S.Konn.
i VARAHIBI 1 HIUIIR | )PIÐ A MORGUN KL, 9-2 UhUI
Allt í h lelgarmatinn
NAUTH -KJÖ! i Nautahakk 199 kr. kg Nautagúllas 429 kr. kg S'V-uM Nautasnitsel 489 kr. kg W Nautabuff 539 kr. kg Hryggvöðvar 539 kr. kg
Opið ] til kl. 20 í svöld
Munið BARNAHORNIÐ Á ANNARRI HÆÐ Matvörumarkaður 1. hæð - Rafdeild 2. hæð - Húsgagnadeild 2. og 3. hæð - Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð - Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-grilliö Sérverslanir í JL-portinu
u\ JIS KORT Jón IINRR /aaaaaa % • \z- ^ 'Z.'2 Z. Loftsson hf. rnrMf rrn i it?4
Hringbraut 121 Sími 10600