Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
Utlönd______________
Viðbrögð flest
á einn veg
Bein sjónvarpsútsending og geysi-
leg urnfjöllun blaða færði brúðkaup
Andrews prins og Söru Ferguson
heim í stofú til allra ríkja Evrópu
og víðar. Það var aðeins á íslandi
og í álíka þróuðum löndum sem al-
menningur þurfti að gera sér að góðu
að frétta af því af afspum.
Fyrir utan hina átján hundruð
gesti. sem boðnir voru í Westminster
Abhey. er áætlað að umiþrjú hundr-
uð milijónir manna í fjömtíu og
tveimur löndum hafi séð brúðkaupið
í beinni útsendingu.
„Stórkostlegt tralala
í Westminster"
Vinsælt dagblað í Frakklandi
sagði í bleikri stríðsfyrirsögn „Þau
giftast". Annað dagblað er með fyrir-
sagnir um þau á þessa leið, „Yndis-
lega bresk“ um brúðina og
..Vandræðabamið“ um prinsinn.
Jafnvel kommúnistablaðið L’Hum-
anite veitti lesendum sínum þá
þjónustu að segja frá brúðkaupinu.
„Stórkostlegt tralala í Westminster"
er fyrirsögnin í því blaði.
Franska sjónvarpið dubbaði upp
fyrrverandi fréttaskýrEinda, Leon
Zitrone, sem hefur lýst öllum kon-
unglegum breskum brúðkaupum
fyrir frönsku þjóðinni frá því að El-
ísabet drottning gifti sig.
Ókeypis kampavín
í Lúxemborg leigðu hótel sérstakt
gervihnattasamband við London til
að geta fært þjóðinni og gestum sín-
um sómasamlega umfjöllun um
brúðkaupið. Marie-Astrid, prinsessa
i Lúxemborg, var á sínum tíma mjög
orðuð við Karl Bretaprins, en ekkert
meira varð úr því. Hótelin reyndu
að gera útsendinguna eins raun-
verulega og mögulegt var og buðu
gestum sínum upp á kampavin með-
an á útsendingu stóð.
Erkihertoginn i Lúxemborg, sem
hefur náin samskipti við bresku kon-
ungsfjölskylduna, hitti Söru Fergu-
son fyrir skömmu er hann var í
heimsókn í Buckinghamhöll. Sagt
var að hann væri himinlifandi vegna
brúðkaupsins og sendi hann son
sinn. Henri prins, í sinn stað til að
vera viðstaddur brúðkaupið.
í Vestur-Þýskalandi var einnig
bein sjónvarpsútsending frá brúð-
kaupinu. Æsifréttablöð þar eyddu
mikiu plássi undir umfjöllun um
brúðkaupið og Bild notaði alla bak-
síðu blaðsins í gær til að velta
vöngum yfir því hvemig kjóll Söru
mvndi líta út.
Sonur árið1988?
Stjömufræðingur nokkur mun
hafa tjáð Bild að hertogahjónin af
Jórvík myndu eignast son vorið 1988
og síðan dóttur í desember 1989.
Belgískir sjónvarpsáhorfendur
fengu líkt og aðrir, sem fylgdust með
atburðum í Westminster í gær,
þriggja og hálfs tíma útsendingu frá
brúðkaupinu, með útskýringum á
bæði hollensku og frönsku. Næstum
öll dagblöð í Belgíu birtu myndir af
öðru brúðhjónanna eða báðum á
forsíðu í gær.
Það er af sem áður var
Þótt íta.’ir séu mjög hrifnir af
kóngafólki voru sumir fjölmiðlar allt
að því kaldh eðnir í garð Breta og
vom eitthvað að minnast á rýmun
breska heimsv ‘ldisins. II Tempo í
Róm sagði í for. íðufrétt frá London
að á tímum Viktoríu drottningar
hefðu Bretar ekki verið ánægðir
nema eitt ríki bættist í breska heims-
veldið á fimm ára fresti. „Núna er
nóg fyrir þá að fá nýjan maka inn í
konungsfjölskylduna á ftmm ára
fresti bætti það við.
La Republica sagði að svo virtist
sem glansinn kringum konungsfjöl-
skylduna ykist eftir þvi sem þjóðin
vrði lítilfjörlegri. L’unita, blað
kommúnista, sagði að þetta væri
eins og í ævintýri þar sem „alþýðu-
stúlkan giftist prinsinum og heldur
að hún hafi unnið stærsta happ-
drættisvinning lífs síns“.
Alltviðþaðsama
á austurvígstöðvunum
Sovétmenn höfðu sama hátt á og
fyrir fimm árum þegar Karl og Diana
giftust. Þeirra fjölmiðlar minntust
ekki einu orði á brúðkaupið og íbúar
í Moskvu sögðu að þeir hefðu ekki
heyrt neitt um þetta brúðkaup.
„Auðvitað myndi ég hörfa á ef þeir
sýndu þetta i sjónvarpinu," sagði
verkamaður í Moskvu. „Ég vissi
bara ekki að þetta væri að gerast."
I gærmorgun fannst ekki heldur
stafúr um brúðkaupið í Þjóðviljan-
um okkar íslenska.
Sovéska sjónvarpið sýndi örstutt
brot frá brúðkaupinu 1981, nokkrum
dögum eftir það, og dagblöð birtu
fréttir af því nokkrum dögum seinna.
Talsmaður fréttadeildar Sovéska
sjónvarpsins sagðist efast um að sýnt
yrði frá brúðkaupinu samdægurs.
„Hvað sem er, en ekki
konunglegt“
I Ástralíu var sýnt beint frá brúð-
kaupinu á fjórum af fimm sjón-
varpsrásum þar í landi. I sumum
þeirra hófst dagskráin tólf klukku-
stundum fyrir brúðkaupið.
Á myndbandaleigum í Sydney ku
hafa verið örtröð af fólki sem var
að reyna að ná sér í efni til að þurfa
ekki að horfa á brúðkaupsdagskrá í
hálfan sólarhring. Sumir sögðust
myndu taka hvaða spólu sem er,
aðeins ef ekki væri minnst á neitt
konunglegt í henni.
Næstum allur hinn siðmenntaði heimur fékk að fylgjast með brúðkaupi
Söru Ferguson og Andrews prins í beinni sjónvarpsútsendingu. Viðbrögð
fjölmiðla um viða veröld eru flest á einn veg. Menn hrífast af glæsileika
brúðhjónanna og athöfninni.
Portúgalir svíkja út fé í Skandinavíu
Haukur Lárus Haukssan, DV,
Kaupmamtahcói:
Starfsmenn skandinavískra banka,
verslana og lögreglu eru að verða
gráhærðir þessa dagana vegna millj-
ónafjársvika portúgalsks glæpa-
hrings með Eurotékka. Nú þegar
hafa þrír Portúgalir verið settir í
gæsluvarðhald í Kaupmannahöfri
eftir að hafa svikið út peninga með
stolnum Eurotékkum. Eurotékka er
einungis hægt að nota ásamt sér-
stöku tékkákorti sem hefur sama
númer og tékkamir. Auk þess þarf
nafhið á tékkunum að samsvara
nafni í vegabréfi.
Þesseir öryggisráðstafanir hafa
ekki hindrað portúgalskan glæpa-
hring í stórfelldri svikastarfsemi með
kort þessi og vegabréf. Glæpahring-
urinn hefur einfaldlega prentað og
framleitt kort og vegabréf er passa
við hina stolnu Eurotékka. Talsmað-
ur tjársvikadeildar lögreglunnar í
Kaupmannahöfri segir að kortin og
vegabréfin séu svo vel úr garði gerð
að einungis bankar geti við ná-
kvæma athugun gengið úr skugga
um hvort um fölsun sé að ræða.
Allt að fyllast af fölsuðum
tékkum
Þessa dagana er aðalmiðstöð
Eurotékkanna í Belgíu að yfirfyllast
af stolnum tékkum sem hafa verið
innleystir með fyrmefhdum hætti og
hafa fulltrúar hennar verið á ferð í
Skandindvíu. Skandinavia hefur
nefnilega til þessa verið tilvalinn
vettvangur fyrir fjársvik Portúgal-
anna en bankar og verslanir á þeim
slóðum krefjast ekki eins oft að sjá
vegabréf í Eurotékkaviðskiptum og
annars staðar tíðkast. Þannig er vit-
að til þess að átta Portúgalir hafi
svikið út sem svarar um fimm millj-
ónum íslenskra króna með stolnum
Eurotékkum á þessu ári. Sex þeirra
hafa þegar verið gripnir, þrír í Dan-
mörku, tveir í Svíþjóð og einn í
Noregi. Sá sjöundi hljóp á brott í
banka í Kaupmannahöfh þegar
grunsemdir vöknuðu um áreiðan-
leika hans. Eftir varð vegabréf er
virtist komið frá prentsmiðju glæpa-
hringsins í Portúgal.
Vel skipulögð svik
Fjársvikin em mjög vel skipulögð.
Þjófamir fá fast gjald, eða tuttugu
prósent af verðmæti tékkanna. Síð-
an eru prentuð kort og vegabréf sem
passa við hina stolnu tékka og loks
er maður sendur af stað til Skandin-
avíu til að innleysa þá. Sá heldur
um tuttugu til þrjátiu prósentum
fyrir sjálfan sig og skilar afganginum
til glæpahringsins sem þannig fær
fimmtíu til sextíu prósent af verð-
mæti tékkanna í sinn hlut.
I fyrradag fékk þrjátíu og níu ára
gamall Portúgali eins árs fangelsis-
dóm við borgardóm Kaupmanna-
hafnar. Hann náði ekki að byija
fjársvikin þar sem hann lenti í leit
í tollinum á Kastrupflugvelli. Toll-
verðimir fundu hundrað fjömtíu og
fimm stolna Eurotékka ásamt til-
svarandi fölsuðum kortum og
vegabréfum. Samkvæmt venju vom
vegabréfssíðumar með persónuleg-
um upplýsingum falsaðar en með
sömu mynd. Portúgalinn reyndi að
sleppa undan í flughöfninni og við
rannsókn kom í ljós að hann ætlaði
að vera í viku í Kaupmannahöfh. Á
þeim tíma átti hann líklega að inn-
leysa Eurotékka að verðmæti átta
hundmð sjötíu og fimm þúsund ís-
lenskra króna.
ítalir líka liðtækir
Portúgalir em ekki einir um þessa
iðju. Italir prenta einnig falska Eu-
rotékka, kort og vegabréf. Það kom
í ljós fyrr í þessum mánuði þegar
ítali millilenti í Kaupmannahöfn á
leið frá Róm til Uruguay. Hann
gleymdi handfarangri sínum á gang-
inum í flugstöðvarbyggingunni. Við
athugun kom í ljós heill bunki fals-
aðra vegabréfa með mynd af einum
og sama manninum. ítalinn var strax
handtekinn. Hann hafði verslað fyrir
sjálfan sig í fríhöfninni með fölsuð-
um Eurotékkum og þar með var
hægt að sækja hann til saka fyrir
fjársvik.
Falsaðir dollaraseðlar, sem verið
hafa í umferð í Skandinavíu, em
yfirleitt ítalskir að uppmna. Ungur
Dani hefur játað að hafa ásamt öðr-
um keypt falsaða hundrað dollara
seðla á Ítalíu fyrir um þijátíu dollara
stykkið. Fölsunin, sem er misjöfn að
gæðum, var uppgötvuð er reynt var
að fá seðlunum skipt. í Svíþjóð. Þyk-
ir því fúll ástæða til að vera á verði
og krefjast vegabréfs þegar viðskipti
með Eurotékka eiga sér stað.
Svo virðist sem Miðjaröarhafsþjóöir geri nú út á Skandinaviumarkaö með stolna Eurotékka og falsaöa dollara-
seðla. Það mun vera vegna þess að eftirlit í Skandinavíu er mun lélegra en í öðrum löndum.
Umsjón: Ólafur Arnarson