Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Side 11
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
11
'_____________________________________________________________________Viðtalið
Oddur Einarsson, nýráðinn bæjarsijóri Njarðvíkur:
Var TTrekinn“ úr starfi
til að fara í Háskólann
Nýráðinn bæjarstjóri í Njarðvík-
um heitir Oddur Einarsson, borinn
og bamfæddur vesturbæingur sem
kom í heiminn 13. janúar 1953. Hann
á að baki fjölbreyttan starfsferil og
segist lítast vel á nýja starfið og
hlakkar til að glíma við þau verk-
efni sem því fylgja.
Sumarfríið segist Oddur ætla að
nota til að kynnast verðandi sam-
starfsfólki sínu og til að setja sjálfan
sig inn í málin. Einnig er hann að
leita að húsnæði til að leigja því
Oddur ætlar sér að flytjast til Njarð-
víkur en vantar ennþá þak yfir
höfuðið.
Kennarinn tók bækurnar og
henti í ruslið
Oddur gekk í Öldugötuskóla,
Melaskóla og Hagaskóla og segir
það hafa verið skemmtileg ár. „Þeg-
ar ég var í Melaskóla kenndi mér í
tvo vetur mjög minnisstæður maður,
Axel Kristjónsson, sérstakur og lit-
ríkur karakter. Hann var mikill
skapmaður og átti það til að hverfa
á braut þegar honum mislíkaði eitt-
hvað en koma aftur og láta þá eins
og ekkert hefði í skorist. Eg man
sérstaklega eftir því þegar hann bað
okkur i 10 eða 11 ára bekk að skrifa
í aðra hverja línu. Þegar hann sá
að megnið af bekknum skrifaði í
hverja línu tók hann af okkur bæk-
umar og henti í mslið. Þrátt fyrir
þetta var hann mikill vinur krak-
kanna og bauð okkur oft í bíltúr út
fyrir bæinn á laugardögum eftir
skóla,“ sagði Oddur.
Hætti í Háskólanum á miðju
ári
Leið Odds lá í Menntaskólann í
Reykjavík þaðan sem hann varð
stúdent úr fommáladeild. „Ég hef
alltaf haft gaman af málum og varð
slarkfær í dönsku með því að lesa
Andrés önd,“ sagði Oddur. Hann hóf
nám við guðfræðideild Húskólans
strax haustið eftir en hætti á miðju
ári. Þótti kennslunni eitthvað ábóta-
vant. „Ég var þá að vinna í launa-
deild ^ ármálaráðuneytisins í
jólafríinu og ákvað að halda því
áfram. Ég kynntist konunni minni á
balli eftir starfsmannagleði en hún
vann í annarri deild í ráðuneytinu.
Nokkur tími leið uns samdráttur
okkar komst upp en við giftum okk-
ur á meðan við bæði unnum þama,“
segir Oddur. Kona hans heitir Una
Oddur Einarsson.
Dagbjört Kristjánsdóttir og eiga þau
4 böm.
Aftur i Háskólann
Oddur hafði aðeins unnið í íjár-
málaráðuneytinu i 2 ár þegar hann
hóf nám við Háskólann í guðfræði
á nýjan leik. „Ég var eiginlega rek-
inn til að byrja. Steingrímur Pálsson,
yfirmaður minn, vissi af því að ég
hafði ætlað í Húskólann. Það haíði
þó dregist því mér líkaði vinnan
vel. Hann kallaði mig inn til sín og
sagði mér að fara í námið annars
yrði ég rekinn," segir Oddur.
Kynntist hinni þjóðinni
Oddur var lögregluþjónn á sumrin
eins og titt er um guðfræðinema.
„Slíkt reynir á og víkkar sjóndeild-
arhringinn. Maður kynnist sérstæð-
um heimi og hinni þjóðinni sem býr
i þessu landi. Þjóð sem fæstir
þekkja,“ segir Oddur. Hann játar því
að þessi störf geti verið mannbæt-
andi „en aðeins ef menn láta
eymdina og volæðið ekki of mikið á
sig fá.“ Fyrstu útköllin standa hon-
lun enn skýrt fyrir hugskotssjónum.
Heldur með þeim sem eru
að tapa
Oddur hefur aldrei haft gaman af
íþróttum, sérstaklega ekki keppnis-
íþróttum og segist ekki skilja þá
áráttu að þurfa alltaf að sigra ein-
hvem. „Þegar ég horfi á íþróttir
held ég iðulega með þeim sem eru
að tapa.“ segir Oddur. Hann segist
alltaf hafa synt mikið sér til heilsu-
bótar þó að það hafi dottið niður
eftir að hann flutti norður. „Annars
eyði ég öllum þeim tíma sem ég hef
aflögu í lestur blaða og bóka enda
vil ég fyrir alla muni fylgjast með.
Ég á þokkalega stórt plötusafri með
því helsta í klassískri tónlist sem ég
hlusta talsvert á. Annars er ég
grúskari og hef gaman af flestu,“
segir Oddur sem hefur ekki á undan-
fömum árum átt margar frístundir.
Oddur alls staðar
Vinnan hefur verið áhugamál
Odds undanfarin ár eða öllu heldur
vinnumar. Hann flutti strax og hann
fékk vígslu á Skagaströnd og gerðist
sóknarprestur þar. Einnig varð hann
stundakennari, hefur starfað sem
lögregluþjónn, bankagjaldkeri á
sumrin og síðustu tvö ár hefur hann
unnið sem skrifstofustjóri Höfða-
hi'epps í hálfu starfi.
Fræg er sú saga sem norðlenskir
gámngar bjuggu til um Odd. Hún
segir svo frú að ferðamaður hafi
komið á kántríhátíð á Skagaströnd.
Fór ferðalangurinn i bankann og
skipti ávísun hjá Oddi gjaldkera.
Þegar hann bað um gistingu var
honum bent á skólann og Oddur
kennari hlevpti honum inn. Á laug-
ardagskvöldinu sá hann Odd lög-
regluþjón gæta laga og réttar og á
sunnudaginn hlýddi hann á Odd
prest messa. Er þrí engin furða að
frístundir Odds séu ekki fleiri.
Sótti um á síðasta degi
Oddur segist hafa verið orðinn
þrevttur á því að þurfa sífellt að
di'eifa starfskröftunum og því farið
að líta í kringum sig eftir nýju starfi.
„Við vorum að vísu búin að festa
rætur á Skagaströnd en ég er nýj-
ungagjarn og vildi reyna eitthvað
nýtt. Sem skrifstofustjóri Höfða-
hrepps hafði ég kynnst umfanginu
við rekstur bæjarfélags og líkað vel.
Þegar ég sá stöðuna síðan auglýsta
á síðasta degi lét ég slag standa og
sendi skevti. Þeir réðu mig og nú
er ég á förum frá Skagaströnd og
hef sótt um lausn frá embætti," segir
Oddur. Hann segir að það sé sama
við hvað hann starfi, hann hafi
ávallt fylgt einni grundvallarreglu.
„Að koma fram af heilindum, það
hefur revnst mér vel,“ segir Oddur
Einarsson. JFJ
Borgafjórðun
Gamla
símstöðin
ræður
ekki víð
álagið
Símamál í Borgarfirði og reyndar
víðar virðast hafa verið í einhverj-
um ólestri að undanfömu. Að sögn
Sigurðar Ólafssonar, símstöðvar-
stjóra i Borgamesi, er oft slæmt
samband eins og vfða annars stað-
ar og erfitt að fá són. Sagði
Sigui'ður að þegar mikið álag væri
á símanum réði gamla símstöðin
ekki við verkið.
„Það er von á nýrri símstöð bráð-
lega sem verður afkastameiri og
lagast þá þetta til muna. Hins veg-
ar þarf ekki nema bilun í Reykja-
vík eða Akranesi til að orsaka
eifiðleika hér og jafnvel þannig að
ekki sé hægt að hringja innan-
hæjar,“ sagði Sigurður Ölaf&son.
JFJ
Vmnuskolinn:
Oriofið
reiknað
inn í
launin
Unglingar í unglingavinnunni fá
orlof sitt greitt með launum sínum.
sem þeir fú hálfcmánaðarlega, en
ekki greitt sérstaklega eins og er
um aðra launþega þessa lands.
Sá misskilningur hefur verið
uppi að unglingar þessir, sem em
yngri en 16 ára, fái alls ekki greitt
orlof, eins og lög segja fyrir um.
Að sögn Amfinns Jónssonar. um-
sjónarmanns Vinnuskólans, er það
stjóm Vinnuskólans sem ákveður
laun unglinganna en aðrar reglur
gilda um þá en 16 ára og eldri. Til
dæmis er ekki tekið af þeim í spari-
merki.
„Það var ákvörðun stjómarinn-
ar að sú tala, sem þessir krakkai'
fá í laun. innihaldi allt sem við-
kemur launum, þar með talið
orlof,“ sagði Amfinnur.
Hann sagði þó að krakkamir
ættu kost á kaupauka, allt að tíu
prósentum, ofan á launin. Væri þa
metið vinnulag, framkoma og
fleira slíkt í hverjum hópi fyrir sig,
en krakkamir \únna í litlum hóp-
um.
Kynningarverö:
100,- spólan - 50,- barnaefni.
Opið:
16-23.30 virka daga
14—23.30 laugardaga og sunnudaga.
Urvalið er hreint ótrúlegt
Komið - sjáið og sannfærist
fhSVIDEOj
Barmahlíð 8 - Sími 21990.