Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður
færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu i sama simtali.
Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,-
Hafið tilbúið:
/Nafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer -kortnúmerN
og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
Neytendur
Við byggingu 100 fermetra húss má gera ráð fyrir um 150 rúmmetrum af steypu. Það gerir 696.000 krónur þar sem
steypuverð reyndist lægst samkvæmt skyndikönnun Neytendasíðunnar en 870.000 krónur þar sem það var hæst.
AUGLÝSIR
Jli
STÖR-
LJEKKUN
U.N.1
vegna hagstæðra
innkaupa
Nautahakk 199 kr. kg
Nautagúllas 429 kr. kg
Nautasnitsel 489 kr. kg
Nautabuff 539 kr. kg
Hryggvöðvar 539 kr. kg
Verð þetta bjóðum
við meðan birgðir
endast.
Jl!
KORT
Opið til kl. 20.00
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Hvað kostar
steypan?
Það getur munað 174 þúsundum á
steypukostnaði við byggingu 100 fer-
metra húss. Neýtendasíðan komst að
þessu er við könnuðum verð á steypu
á hinum ýmsu steypustöðvum lands-
ins.
Verðlagning á steypu er frjáls en
verð á sementi er það sama um allt
land því Flutningsjöfhunarsjóður sér
um flutningskostnaðinn. Það sem af
er þessu ári hefur nokkur samdráttur
orðið á sementssölu og þá sérstaklega
á Stór-Reykjavíkursvæðinu, eða um
16 prósent miðað við sama tíma í fyrra.
Búist er við að sementssala verði um
9.000 tonnum minni í ár heldur en síð-
astliðið ár.
Við könnuðum verð á steypu á 11
steypustöðvum á landinu og spurðum
um verð á svokallaðri S-200 steypu
sem er mest notuð. Á flestum steypu-
stöðvunum er veittur staðgreiðslu-
og/eða magnafsláttur sem er mjög
misjafh eftir stöðvum. Misjafnt er við
hvaða magn er miðað eigi afsláttur
að fást og hve hár afslátturinn er.
Uppgefið verð er verð á hverjum rúm-
metra. Miðað við þetta rúmmetraverð
var steypa ódýrust hjá Steypustöð
Suðumesja, 4.640 krónur rúmmetrinn.
Dýrust reyndist hún vera hjá Steypu-
sölunni Neskaupstað, 5.800 krónur
rúmmetrinn. Ef við tökum dæmi um
100 fermetra hús þá má gera ráð fyrir
að um 150 rúmmetra af steypu þurfi
við byggingu þess. Er steypukostnaður
696.000 krónur þar sem verðið var
lægst en 870.000 krónur þar sem það
var hæst. Hér er algjörlega um grunn-
verð að ræða, það er enginn afeláttur
tekinn til greina.
-RóG.
Verð á rúmmetra af steypu
Steypuþjónustan Hvammstanga
Steypustöð Skagafjarðar jmg
Steypustöð Suðurlands tap
Steypustöð Vestmannaeyja
Steypusalan Neskaupstað
Möl og sandur, Akureyri
Steypustöð Akraness
Steypustöð Suðurnesja
Steypustöðin hf.
BM Vallá
Steypuverksmiðja Óss hf.
J
7
✓
J
7
4.935
4.968
5.560
5.604
5.800
5.560
4.960
4.640
5.260
5.250
4.865
1000 2000 3000 4000 5000 6000
Areynsla eða
afclöppun
Mörgum finnst að þeir geti aldrei
orðið of grannir og leggja allt kapp á
að vera í sem bestu formi. Sumir geta
jafnvel verið of „heilsusamlegir" eða
að minnsta kosti of æstir í að vera í
fínu formi. Nú síðastliðin ár hefur lík-
amsrækt gengið mikið út á að hreyfa
sig og gera sem mest en nú segja sér-
fræðingar í þessum málum að of mikill
hamagangur geti bara haft slæm áhrif.
Margur nútímamaðurinn lifir við
stöðugt álag. Streita og mikil spenna
er orðin mjög svo algengur fylgifiskur
dagsins í dag. Líkamsæfingar í lok
strembins dags eiga oft að „hressa fólk
við“ en varast verður að fara í of erfið-
ar æfingar, ekki síst ef álagið hefur
verið mjög mikið um daginn. Erfiðar
æfingar geta bókstaflega orðið lúnum
líkamanum ofraun.
Ráðið er að taka tillit til aðstæðna.
Sértu svöna rétt dasaður er þú kemur
heim úr vinnunni er í lagi að stunda
einhverja líkamsrækt en sértu úrvinda
af þreytu og óvenju stressaður þá
slepptu því. Þú getur hæglega ofboðið
skrokk þínum og heilsu. Líkaminn
þarfnast heilbrigðs jafnvægis á milli
afslöppunar og áreynslu og verður
hver fyrir sig að finna hvað hentar í
hvert skiptið.
-RóG.